Forsetakosningarnar lítt spennandi 8. janúar 2005 00:01
Lítil spenna ríkir vegna forsetakosninga í Palestínu, sem fara fram á morgun, enda eru úrslitin nánast gefin. Mahmoud Abbas verður kjörinn þó að enginn virðist hafa trú á stefnu hans. Talið er að hann hafi 100 daga til að skila árangri. Mahmoud Abbas nýtur yfirburðafylgis meðal Palestínumanna samkvæmt könnunum og trausts á alþjóðavettvangi. Töluverðar væntingar eru bundnar við hann sem eftirmann Jassirs Arafats, en þeir eru sagðir vera nánast eins ólíkir og hugsast gæti. Arafat var byltingarleiðtogi og hryðjuverkamaður sem var óhræddur við að fara sínu fram og láta á sér bera. Abbas er frekar dagfarsprúður maður í gráum jakkafötum, maður sem ekki fer mikið fyrir. Stefna hans er hófsöm og hann er andsnúinn ofbeldi. Í ljósi þess verða vinsældir hans að teljast undarlegar því að tveir þriðju hlutar Palestínumanna eru, samkvæmt nýlegri könnun, á því að ofbeldi og hryðjuverk hafi skilað meiru en viðræður. Abbas er mun hófsamari en mikill meirihluti Palestínumanna sem bendir til þess að hann hafi ekki mikinn tíma eftir kosningar til að sýna að aðferðir sínar skili árangri. Gerist ekkert fljótlega má búast við því að flokksfélagar hans gefist upp á honum og stefnu sem þeir hafa litla trú á. Abbas virðist meðvitaður um þetta og hefur því gert sitt besta til að höfða til allra í kosningabaráttunni. Markmið hans í embætti er ljóst. Hann lofar því að palestínskt barn muni fá að lyfta fána Palestínu á bænaturnum moska, á kirkjum og veggjum Jerúsalemborgar. Stjórnmálaskýrendur segja hann hafa hundrað daga til að skila árangri.
Erlent Fréttir Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent