Danir safna fyrir fórnarlömbum 8. janúar 2005 00:01
Stærsta landssöfnun Danmerkur hófst í morgun og er búist við að samanlagt framlag þjóðarinnar til fórnarlamba náttúruhamfaranna í Asíu fari yfir sem nemur tveimur milljörðum íslenskra króna. Miðað við íbúafjölda gefa hver Dani og Íslendingur yfir tífalt meira en hver Bandaríkjamaður. Alla vikuna hafa sjónvarps- og útvarpsstöðvar í Danmörku lagt málefninu lið. Áður en aðalsöfnunin hófst á sjónvarpsstöðinni TV2 klukkan átta í morgun var samanlagt framlag Dana komið í sem nemur einum komma sjö milljörðum íslenskra króna. Nú um hádegi var upphæðin komin í einn komma níu milljarða íslenskra króna og þar með hafa Danir jafnað síðasta söfnunarmet frá 1999, þegar safnað var vegna stríðsfórnarlamba á Balkanskaganum. Má því fastlega búast við að tveimur milljörðum verði náð áður en yfir lýkur á miðnætti í kvöld. Dagblaðið Berlingske Tidende hefur í dag eftir utanríkisráðherranum Per Stig Møller að Danir séu í þriðja sæti meðal landa Evrópusambandsins þegar litið er til söfnunarupphæðar á hvern íbúa. Hann segir þó að þetta sé ekki keppni, málefnið sé það sem skipti máli. Þannig vísar hann á bug umræðu um að Evrópa og Bandaríkin séu í keppni og ekki vill hann gagnrýna lágt framlag Bandaríkjamanna. Blaðið birtir lista yfir hæstu löndin og í efsta sæti tróna Ástralíumenn með um 2.800 íslenskar krónur á íbúa. Hver Norðmaður hefur gefið 2.400 krónur og hver Dani um þúsundkall. Eftir 150 milljóna króna framlag íslensku ríkisstjórnarinnar, sem kom söfnunarupphæð Íslendinga í 250 milljónir, gefur hver Íslendingur 850 krónur. Svíar hafa gefið 550 íslenskar krónur á íbúa en Bretar 120 krónur og Bandaríkjamenn 80 krónur. Landssöfnun Dana hófst rétt fyrir sjö í morgun þegar lest lagði af stað frá Álaborg áleiðis til Kaupmannahafnar þar sem hún kom nú rétt fyrir hádegi með fjárframlög og muni sem fólk mátti skutla um borð á leiðinni, en þeir verða svo seldir á uppboði. TV2 segir að minnsta kosti tíu milljónir íslenksra króna hafa safnast á leið lestarinnar í gegnum landið. Danski tónlistarbransinn leggur sitt af mörkum en í útsendingu í kvöld verður frumflutt lagið Hvor Små Vi Er eða Hvað við erum smá, sem samið var sérstaklega fyrir söfnunina. Ríkislögreglan birtir nýjar tölur um látna og saknaða á Netinu á hverjum degi og í gær lækkaði tala yfir þá Dani sem er saknað niður í 57 en sjö eru látnir. Nafnalisti var hins vegar tekinn af Netinu á miðvikudaginn þar sem nægar upplýsingar höfðu safnast. Sama aðferð hefur verið notuð í Noregi og Finnlandi en í Svíþjóð hafa stjórnvöld verið gagnrýnd fyrir að gera nafnalista ekki opinberan. Í Danmörku, Noregi og Finnlandi fækkaði fólki á listanum fljótt eftir að þeir voru gerðir opinberir.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent