Fjórmenningar neita að hafa skipulagt hryðjuverk 28. október 2005 13:15
Fjórmenningarnir sem eru í haldi lögreglunnar í Danmörku, vegna gruns um að þeir hafi ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu á næstunni, neita allir sök. Þá segja sænskir fjölmiðlar að átján ára Svíi hafi verið handtekinn í Sarajevó í síðustu viku, grunaður um að hafa ætlað að gera þar sjálfsmorðsárás. Mennirnir búa allir á höfuðborgarsvæðinu í Danmörku, og voru handteknir í íbúðum sínum í Kaupmannahöfn, Frederiksberg og Brøndby. Lögreglan handtók alls tuttugu og fimm manns í áhlaupinu í gær, og voru fjórmenningarnir úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald. Þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárásir á næstunni einhversstaðar í Evrópu. Lögreglan segist ekki hafa þorað að bíða með að handtaka mennina, eftir að hafa fengið upplýsingar um málið frá dönsku leyniþjónustunni. Mennirnir voru handteknir í kjölfar aðgerða lögreglunnar í Sarajevó í Bosníu fyrir rúmri viku. Þar fundust við húsleit sprengiefni og vopn ætluð til árása úr launsátri. Danska leyniþjónustan fékk upplýsingar frá yfirvöldjum í Sarajevó um að tengsl væru milli hópanna. Fjórmenningarnir sem voru handteknir í Danmörku í gær, eru sextán til tuttugu ára, allir af mið-austurlenskum uppruna búsettir í Danmörku. A.m.k. einn þeirra er með danskan ríkisborgararétt. Danska lögreglan hefur staðfest fréttir sænskra fjölmiðla um að tengsl séu milli mannanna fjögurra og átján ára Svía sem var handtekinn fyrir hryðjuverkastarfsemi í Sarajevó í Bosníu. Sænski blaðið Expressen segir átján ára Svíann hafa ætlað sér að gera sjálfsmorðsáraa á breska eða bandaríska sendiráðið í Sarajevó, en það vill danska lögreglan ekki staðfesta við fjölmiðla. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, segir við sjónvarpsstöðina TV 2 að málið sé alvarlegt, honum sé brugðið yfir því einu að grundvöllur hafi verið til að úrskurða mennina í varðhald. Dómsmálaráðherra landsins, Lene Espersen, segist vilja skoða það nánar að danska leyniþjónustan, fái greiðari aðgang að upplýsingum, t.d. farþegalista flugfélaga.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira