Treystir á stuðning jaðarflokka til hægri 2. nóvember 2005 03:00 KAZIMIERZ MARCINKIEWICZ. Nýr forsætisráðherra Póllands.
Kazimierz Marcinkiewicz sór á mánudag embættiseið sem nýr forsætisráðherra Póllands. Hann fer fyrir minnihlutastjórn íhaldsflokksins Laga og réttlætis (PiS). Aleksander Kwasniewski, fráfarandi forseti Póllands, tók embættiseiðinn af Marcinkiewicz í forsetahöllinni í Varsjá. Þar var síðan nýja ríkisstjórnin, sem skipuð er sautján ráherrum, sett í embætti. Nokkrir ráðherrar eru ekki úr flokki Marcinkiewicz, en tilgangurinn með því er að breikka stuðning við hana á þingi. Lög og réttlæti hefur 155 af 460 fulltrúum í neðri deild pólska þingsins, en flokkurinn greip til þess ráðs að mynda minnihlutastjórn eftir að viðræður um myndun meirihlutastjórnar með frjálshyggjuflokknum Borgaravettvangi fóru út um þúfur í síðustu viku. Stjórnin þarf að standast atkvæðagreiðslu um traustsyfirlýsingu á þingi þann 10. nóvember. Marcinkiewicz sagðist áfram myndi reyna að afla stuðnings Borgaravettvangs og valið á ráðherrum virðist til þess fallið að ýta undir það. Þannig er til dæmis utanríkisráðherrann Stefan Meller ekki í neinum flokki, en hann var sendiherra Póllands í Moskvu. En það eru þrír flokkar á hægri jaðrinum; Sjálfsvörn (Samoobrona), Bændaflokkurinn og Pólska fjölskyldufylkingin - sem væntanlega munu standa saman um að verja minnihlutastjórnina falli. Donald Tusk, leiðtogi Borgaravettvangs, gagnrýndi Lög og réttlæti fyrir að velja að gera "Sjálfsvörn" hægripopúlistans Andrzej Lepper að bandamanni sínum.
Erlent Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Innlent Fleiri fréttir Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila