Heldur umbótum Schröders áfram 1. desember 2005 05:30 Merkel boðar bjartsýni. Kanslarinn lagði áherslu á tækifærin sem fælust í hinu nýja stjórnarsamstarfi stóru flokkanna.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, boðaði í stefnuræðu sinni í þýska Sambandsþinginu í gær að halda þeim kerfisumbótum áfram sem lagt hefði verið af stað með í tíð fyrri ríkisstjórnar, með það að markmiði að blása nýjum þrótti í efnahags- og þjóðlíf Þýskalands. Hún hét því einnig að koma tengslunum vestur um haf í samt lag, en andstaða fyrrverandi kanslarans Gerhards Schröder við Íraksstríðið setti mark sitt á samskipti ríkisstjórnar hans við ráðamenn í Washington. Merkel lét þess reyndar getið að ásakanir um leynilega fangaflutninga á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA um lofthelgi og flugvelli Þýskalands og fleiri Evrópulanda yllu nýrri spennu í samskiptunum við Bandaríkin. Hún treysti því hins vegar að í Washington væru þessar áhyggjur Evrópumanna teknar alvarlega og bráðlega tækist að upplýsa málið þannig að það yrði samstarfi bandamannanna beggja vegna Atlantshafs ekki til trafala. Merkel kvað líka afdráttarlaust að orði í tilefni af fréttum af því að mannræningjar hefðu rænt þýskri konu í Írak. Hún sagði stjórn sína ekki láta kúga sig, en meðal krafna mannræningjanna er að þýsk stjórnvöld skeri á öll samskipti við Íraksstjórn. Kanslarinn lét einskis frekar getið um stefnu stjórnar sinnar í Íraksmálum. Í ræðunni gaf Merkel enn fremur til kynna breyttar áherslur í Evrópustefnunni. Lagði hún áherslu á að stjórn hennar vildi eiga sem best samskipti við minni ríki álfunnar, en í þeirra röðum voru ekki allir sáttir við þá áherslu sem stjórn Schröders lagði á að eiga nána samleið með Frökkum. Stefnuræðan verður rædd í Sambandsþinginu það sem eftir er vikunnar.
Erlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Fleiri fréttir Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Sjá meira