Innan marka tjáningarfrelsis 1. desember 2005 01:30 Åke Green. Hvítasunnusafnaðarpresturinn Åke Green mætir í Hæstarétt Svíþjóðar í Stokkhólmi þegar réttarhöldin í máli hans þar hófust hinn 9. nóvember síðastliðinn.
Prestur í sænskum hvítasunnusöfnuði, sem í stólræðu líkti samkynhneigð við "krabbameinsæxli á þjóðarlíkamanum", hét því í gær að hann væri hættur að skammast út í homma eftir að Hæstiréttur Svíþjóðar sýknaði hann af ákæru um brot á ströngum lögum gegn hatursáróðri. Hæstiréttur í Stokkhólmi komst að þeirri niðurstöðu að hin umdeilda stólræða prestsins Åke Green, sem haldin var fyrir tveimur árum, félli innan marka laga um tjáningarfrelsi sem væru í samræmi við ákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu. "Þetta er frábært fyrir trú- og tjáningarfrelsið," sagði Green í símaviðtali við AP frá heimili sínu á eynni Öland. "Það er stórkostleg tilfinning að við skulum fá að hafa það frelsi í friði." Með dómnum er bundinn endi á málaferli sem stóðu yfir í tvö ár og vöktu athygli bæði innan Svíþjóðar og utan, en í þeim var tekist á um mörk tjáningarfrelsis og réttar minnihlutahópa til lagaverndar gegn hatursáróðri. Saksóknarar sögðust virða dóm Hæstaréttar og að hann vekti athygli á að dómstólum bæri að taka tillit til evrópska sáttmála og slíkra lagalega skuldbindandi alþjóðasamninga. Gagnrýnendur sögðu niðurstöðuna til þess fallna að opna allar gáttir fyrir svæsið orðbragð á opinberum vettvangi í garð samkynhneigðra og annarra minnihlutahópa.
Erlent Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Innlent Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Erlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira