Erlent

Scooby-Doo auglýsi ekki óhollan mat

Offita meðal barna er mikið vandamál. Bandarískum börnum sem þjást af offitu fer fjölgandi ár frá ári. Drengurinn á myndinni er á heilsuhæli fyrir of feit börn í Miami í Flórída. Slíkum heilsuhælum hefur fjölgað mikið vestanhafs enda offituvandinn mikill.
Offita meðal barna er mikið vandamál. Bandarískum börnum sem þjást af offitu fer fjölgandi ár frá ári. Drengurinn á myndinni er á heilsuhæli fyrir of feit börn í Miami í Flórída. Slíkum heilsuhælum hefur fjölgað mikið vestanhafs enda offituvandinn mikill.

Ný skýrsla um auglýsingar á matar- og drykkjarvörum fyrir bandarísk börn þykir marka tímamót þar í landi. Í skýrslunni, sem kom út í fyrradag og er unnin af viðurkenndri bandarískri stofnun í læknavísindum (Institute of Medicine), er kallað eftir róttækum breytingum í markaðssetningu og framleiðslu á matvælum fyrir börn.

Samkvæmt nýlegum rannsóknum þjáist um 31 prósent bandarískra barna af offitu. Þessi staðreynd er megin­ástæða þess að stofnunin gerði ítarlegar rannsóknir á því hvort tengsl væru á milli markaðssetningar á óhollum mat og drykk og offitu barna.

"Það eru sterkar vísbendingar um að sjónvarpsauglýsingar á mat og drykk hafi áhrif á það hvað börn kjósi að borða," segir J. Michael McGinnis í viðtali við bandaríska dagblaðið USA Today.

McGinnis er formaður nefndar sem hafði umsjón með rannsókninni. Nefndin fór gaumgæfilega yfir hundruð rannsókna á áhrifum markaðssetningar, sérstaklega auglýsinga í sjónvarpi, á mataræði barna. Í skýrslunni kemur fram að bandarísk fyrirtæki eyði árlega um 600 milljörðum króna í markaðssetningu á matvörum ætluðum börnum.

Enn fremur kemur fram að meirihluti þessara matvara sé ekki hollur eða næringarríkur. Þar sem börn greina oft ekki á milli hefðbundins sjónvarpsefnis og auglýsinga leggur stofnunin meðal annars til að þekktar teiknimyndapersónur eins og Scooby-Doo og fleiri séu ekki notaðar til að auglýsa óholla matvöru. Höfundar skýrslunnar, sem eru meðal annarra prófessorar í virtum háskólum eins og Prince­ton, Cornell og Stanford, ganga samt enn lengra.

Þess er beinlínis krafist að bandarísk matvælafyrirtæki breyti um stefnu og hefji framleiðslu á hollari matvöru fyrir börn og markaðssetji hana. Þó stofnunin hafi ekkert raunverulegt vald vinnur hún í nánum tengslum við bandaríska þingið og hefur mikil áhrif á þingmenn. Í skýrslunni er lagt til að ef matvælafyrirtæki breyti ekki sjálfviljug um stefnu innan tveggja ára verði sett lög sem banni auglýsingar á óhollustu í sjónvarpi á þeim tímum sem barnaefni er sýnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×