Scooby-Doo auglýsi ekki óhollan mat 8. desember 2005 01:00 Offita meðal barna er mikið vandamál. Bandarískum börnum sem þjást af offitu fer fjölgandi ár frá ári. Drengurinn á myndinni er á heilsuhæli fyrir of feit börn í Miami í Flórída. Slíkum heilsuhælum hefur fjölgað mikið vestanhafs enda offituvandinn mikill.
Ný skýrsla um auglýsingar á matar- og drykkjarvörum fyrir bandarísk börn þykir marka tímamót þar í landi. Í skýrslunni, sem kom út í fyrradag og er unnin af viðurkenndri bandarískri stofnun í læknavísindum (Institute of Medicine), er kallað eftir róttækum breytingum í markaðssetningu og framleiðslu á matvælum fyrir börn. Samkvæmt nýlegum rannsóknum þjáist um 31 prósent bandarískra barna af offitu. Þessi staðreynd er meginástæða þess að stofnunin gerði ítarlegar rannsóknir á því hvort tengsl væru á milli markaðssetningar á óhollum mat og drykk og offitu barna. "Það eru sterkar vísbendingar um að sjónvarpsauglýsingar á mat og drykk hafi áhrif á það hvað börn kjósi að borða," segir J. Michael McGinnis í viðtali við bandaríska dagblaðið USA Today. McGinnis er formaður nefndar sem hafði umsjón með rannsókninni. Nefndin fór gaumgæfilega yfir hundruð rannsókna á áhrifum markaðssetningar, sérstaklega auglýsinga í sjónvarpi, á mataræði barna. Í skýrslunni kemur fram að bandarísk fyrirtæki eyði árlega um 600 milljörðum króna í markaðssetningu á matvörum ætluðum börnum. Enn fremur kemur fram að meirihluti þessara matvara sé ekki hollur eða næringarríkur. Þar sem börn greina oft ekki á milli hefðbundins sjónvarpsefnis og auglýsinga leggur stofnunin meðal annars til að þekktar teiknimyndapersónur eins og Scooby-Doo og fleiri séu ekki notaðar til að auglýsa óholla matvöru. Höfundar skýrslunnar, sem eru meðal annarra prófessorar í virtum háskólum eins og Princeton, Cornell og Stanford, ganga samt enn lengra. Þess er beinlínis krafist að bandarísk matvælafyrirtæki breyti um stefnu og hefji framleiðslu á hollari matvöru fyrir börn og markaðssetji hana. Þó stofnunin hafi ekkert raunverulegt vald vinnur hún í nánum tengslum við bandaríska þingið og hefur mikil áhrif á þingmenn. Í skýrslunni er lagt til að ef matvælafyrirtæki breyti ekki sjálfviljug um stefnu innan tveggja ára verði sett lög sem banni auglýsingar á óhollustu í sjónvarpi á þeim tímum sem barnaefni er sýnt.
Erlent Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Berserksgangur á gististað Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fleiri fréttir Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Sjá meira