Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil

Andri Már Eggertsson skrifar
Óskar Borgþórsson setti sigurmarkið fyrir Víking undir lok leiks.
Óskar Borgþórsson setti sigurmarkið fyrir Víking undir lok leiks. vísir

Eftir að hafa lent tvisvar undir tókst Víkingi að vinna Stjörnuna 3-2 í þriðju umferð Bestu deildar karla.

Stjarnan tók forystuna í tvígang með mörkum Örvars Eggertssonar og Andra Rúnars Bjarnasonar en Elías Már Ómarsson jafnaði snögglega í bæði skipti.

Óskar Borgþórsson setti svo sigurmarkið undir lok leiks með góðum skalla.

Með sigrinum stökk Víkingur upp í 2. sæti Bestu deildarinnar, með 7 stig. Stjarnan þurfti hins vegar að sætta sig við sitt fyrsta tap eftir tvo sigra í fyrstu tveimur umferðunum.

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi…

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira