Lögreglusveitir lokuðu kjörstöðum 2. desember 2005 04:45
Til óeirða kom á nokkrum kjörstöðum í Egyptalandi eftir að lögregla ákvað að loka þeim. Á þessum stöðum var búist við að stjórnarandstæðingum mundi vegna vel. Lokaumferð egypsku þingkosninganna fór fram í gær og er óhætt að segja að víða hafi verið heitt í kolunum. Lögregla lét loka nokkrum kjörstöðum þar sem félagar í Bræðralagi múslima höfðu verið aðsópsmiklir. Í bænum Kafr el-Sheik, sem er við óshólma Nílar, var skotið á kjósendur með þeim afleiðingum að einn lést og sextíu særðust. Í nálægu þorpi sættu starfsmenn í kjördeildum barsmíðum öryggissveita. Kjósendur létu aðgerðirnar hins vegar ekki á sig fá heldur klifruðu inn um bakglugga á kjörstað og komust þannig í kjörklefa. Formælandi innanríkisráðuneytisins sagði aðgerðirnar nauðsynlegar þar sem félagar í Bræðralaginu hefðu efnt til óspekta og fælt kjósendur annarra flokka á brott. Hosni Mubarabak forseti hefur undir þrýstingi frá Bandaríkjunum komið á fót nokkrum lýðræðisumbótum. Velgengi frambjóðenda Bræðralagsins í fyrstu tveimur umferðunum er sögð hafa skotið valdhöfunum skelk í bringu og því hefur verið gripið til þessara harkalegu aðgerða.
Erlent Mest lesið Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Innlent Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Erlent Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Erlent Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Innlent Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Erlent Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Innlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Erlent Fleiri fréttir Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Davos-vaktin: Beðið eftir ræðu Trumps Hvað býr bakvið sólgleraugu Macron? Morðingi Abe dæmdur í lífstíðarfangelsi Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Sjá meira