Eiturflekkurinn kominn til Harbin 25. nóvember 2005 05:00 Vatns er þörf Ílát, stór og smá, eru eftirsóttasti varningurinn í Harbin þessa dagana.
Vatnsból kínversku borgarinnar Harbin eru ennþá lokuð vegna bensenmengunar í Songhua-fljóti en flekkurinn barst þangað í fyrrinótt. Fyrir tæpum hálfum mánuði varð sprenging í efnaverksmiðju í Jilin, sem er 380 kílómetrum ofar við Songhua-fljótið, og ókjör af eiturefninu bensen runnu út í ána. Bensen er leysiefni sem til dæmis er notað til málningargerðar. Efnið getur valdið hvítblæði og dauða, sé þess neytt í stórum skömmtum. Songhua-fljót sér 3,8 milljónum íbúum Harbin fyrir neysluvatni. Stjórnvöld í héraðinu létu hins vegar engan vita um slysið fyrr en í vikubyrjun þegar skrúfað var fyrirvaralaust fyrir vatnsleiðslur. Í kjölfarið varð talsverð skelfing þegar þyrstir borgarbúar tóku að sanka að sér því hreina vatni sem völ var á. Fljótlega jókst þó upplýsingagjöfin og jafnframt tóku vatnsbílar að streyma til borgarinnar úr nálægum byggðum. Í gær var komið með 16.000 tonn af vatni til Harbin og mynduðust að sögn ríkisfréttastofunnar Xinhua langar raðir fólks með fötur, könnur, kúta og katla. Seint í gærkvöld náði eiturflekkurinn loks til Harbin og er búist við að það taki áttatíu kílómetra breiða eiturblönduna fjörutíu klukkustundir að streyma framhjá borginni. Þegar ófögnuðurinn er runninn hjá segjast yfirvöld ætla að hreinsa árfarveginn tryggilega. Tugir þúsunda borgarbúa hafa yfirgefið borgina undanfarna daga. Fréttaritari Lundúnablaðsins Times í borginni segir að ógerningur sé að kaupa sér miða í lestir eða flugvélar en þær snúi síðan aftur til baka galtómar. Ekki er vitað til að nokkur hafi orðið fyrir eitrun en fimmtán sjúkrahús eru þó höfð í viðbragðsstöðu. Ennfremur er ekki ljóst hvort íbúar bæja ofar við fljótið hafi bergt á vatninu áður en viðvaranir voru gefnar út. Neyðarlög taka gildi í dag í Khabarovsk-héraði í Rússlandi en búist er við að bensenflekkurinn berist þangað í næstu viku.
Erlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira