Erlent

Danir spari vatn og rafmagn

Strikið. Fullyrt er að hver fjölskylda geti sparað þúsundir króna árlega með því að draga úr vatns- og rafmagnsnotkun.
Strikið. Fullyrt er að hver fjölskylda geti sparað þúsundir króna árlega með því að draga úr vatns- og rafmagnsnotkun.

Umhverfisráðuneytið í Danmörku hefur hrundið af stað herferð til að fá landsmenn til að minnka vatns- og rafmagnsnotkun. Tilgangurinn er meðal annars sá að fá Dani til að skrúfa fyrir vatnið á meðan þeir tannbursta sig og bera á sig sápu í sturtunni. Einnig er skorað á fólk að hætta að þvo þvott á meira en 40 gráðu hita og hengja þvott til þerris í stað þess að nota þurrkara.

Er fullyrt að meðalheimili í landinu geti sparað þúsundir króna á ári með því að fylgja þessum ráðum. Haft er eftir umhverfisráðherra Danmerkur í dagblaðinu Politiken í gær að markmið ráðuneytisins í mengunarmálum náist ekki nema fólk dragi úr notkun á vatni og rafmagni innan heimilisins.

Umhverfisverndarsamtök gagnrýna hins vegar herferðina og segja að ríkið sé að kasta ábyrgðinni yfir á borgarana. Nær væri að fella niður opinber gjöld á umhverfisvænum vörum og efla almenningssamgöngur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×