Erlent

Tugir særðust í sprengingu í olíubirgðastöð við London

43 manneskjur slösuðust, þar af tvær alvarlega, eftir að gífurlegar sprengingar urðu í einni af stærstu olíubirgðastöð Bretlands í London snemma í gærmorgun. Birgðastöðin nefnist Buncefield og er staðsett rétt fyrir utan bæinn Hemel Hempstead norður af London.

Svo virðist sem slys hafi valdið sprengingunum en ekki hryðjuverk eins og einhverjir héldu í fyrstu. Lögreglan í Bretlandi bjóst við því að sprengingar á svæðinu myndu halda áfram í langan tíma í gær, en 16 milljónir lítra af olíu voru geymdir þar. Rúður í nágrenninu brotnuðu og hús voru umkringd miklum reykjar­mekki. Náði reykjarstrókurinn við birgðastöðina allt að 3000 metra upp í loftið.

"Þetta er mjög stór geymsla og hún á eftir að brenna í töluverðan tíma," sagði Frank Whiteley, yfirmaður hjá lögreglunni í Hertfordskíri í gær. "En þetta er allt undir fullri stjórn." Ekkert benti til þess að hryðjuverkamenn hefðu valdið sprengingunum þrátt fyrir að al-Kaída samtökin hafi lengi hótað því að eyðileggja eldsneytisbirgðir vestrænna ríkja.

@Mynd -FoMed 6,5p CP:Reykjarstrókur Mikill reykjarstrókur myndaðist þegar olían brann í Buncefield-birgðastöðinni norður af London í gær. 43 manneskjur slösuðust í sprengingunum sem urðu snemma í gærmorgun.Mynd/AP

Bretar hafa verið mjög á varðbergi gagnvart hryðjuverkamönnum síðan sprengingar urðu í lestarkerfi landsins í júlí af völdum sjálfsmorðsárása. Þá fórust 56, þar á meðal fjórir sjálfsmorðsárásarmenn. "Allt bendir til þess að þetta hafi verið slys," sagði Whiteley. "Samt sem áður verðum við að halda öllum möguleikum opnum þar til við vitum fyrir víst hvað gerðist."

Mannskæðasta olíuslys Bretlands til þessa varð 6. júlí 1988 þegar 167 verkamenn fórust í miklum eldsvoða á olíuborpallinum Piper Alpha undan ströndum Skotlands. Árið 1994 kviknaði í olíugeymslustöð í Milford Haven í Wales. 26 verkamenn slösuðust og milljarðatjón varð. Olíufyrirtækin Texaco og Gulf voru í framhaldinu sektuð fyrir að brjóta heilbrigðis- og öryggisreglur. Buncefield er fimmta stærsta olíubirgðastöð Bretlands en þær eru um fimmtíu talsins. Sér hún um 5% af allri olíunotkun Breta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×