Erlent

Yrði skærari en Pólstjarnan

þorsteinn sæmundsson telur mestar líkur á að Apophis muni fara fram hjá jörðu í öruggri fjarlægð.
þorsteinn sæmundsson telur mestar líkur á að Apophis muni fara fram hjá jörðu í öruggri fjarlægð.

Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur sem fylgist manna best með því sem gerist í heimi geimrannsókna segir ekki ástæðu til að hlaupa upp til handa og fóta vegna Apophis og hugsanlegrar hættu á að hann rekist á jörðina.

"Ég held að það séu mestar líkur á því að nánari mælingar á braut smástirnisins sýni að það fer fram hjá án þess að okkur stafi hætta af," segir hann. Næsta tækifæri til að mæla braut steinsins af meiri nákvæmni að sögn Þorsteins gefst árið 2013 og svo enn aftur árið 2021. "Ef þær mælingar sýna sömu niðurstöðu þá yrði að reyna að grípa til aðgerða," segir hann. Þorsteinn telur raunhæft að hægt verði að senda geimfar til móts við steininn til að breyta braut hans.

"Tæknin er að komast á það stig að við eigum að geta breytt braut smástirnis eins og þessa," segir Þorsteinn. Hins vegar segir hann að það sé óumflýjanlegt að smástirni rekist á jörðina fyrr eða síðar. Það hafi gerst og eigi eftir að gerast aftur. "Líkurnar á því að þetta gerist á einni mannsævi eru einn á móti tíu þúsund, sem eru bara þó nokkuð miklar líkur."

Þorsteinn dregur ekkert úr því að slíkur árekstur myndi valda gríðarlegu tjóni. "Ef stór loftsteinn færi í hafið, sem mestar líkur eru á, þá myndi það framkalla flóðbylgjur sem gætu verið nokkur hundruð metrar á hæð." Samkvæmt núverandi útreikningum á braut Apophis fer hann fram hjá jörðinni í um þrjátíu þúsund kílómetra fjarlægð þann 13. apríl 2029. Það er mjög nálægt að sögn Þorsteins og nefnir til dæmis að gangi það eftir myndi steinninn geta sópað burt nokkrum fjarskiptatunglum ef illa tekst til.

"Hann mun að minnsta kosti sjást greinilega á himni og að öllum líkindum verða skærari en Pólstjarnan," segir Þorsteinn Sæmundsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×