Nazarbayev gersigraði í forsetakosningunum 5. desember 2005 05:00 Sigurviss. Nursultan Nazarbayev var sagður svo öruggur um sigur að fyrir helgi boðaði hann til sigurhátíðar með stuðningsmönnum sínum sem haldin verður í dag, rétt eftir að opinber úrslit verða kunngjörð.
Nursultan Nazarbayev, forseti Kasakstan, fékk í það minnsta 75 prósent atkvæða í forsetakosningum í landinu í gær. Kjörfundurinn virðist hafa gengið að mestu hnökralaust fyrir sig en Öryggissamvinnustofnun Evrópu ÖSE mun kveða upp sinn dóm í dag. Fimmtán milljónir manna búa í Kasakstan og er talið að 75 prósent atkvæðisbærra manna hafi nýtt sér kosningarétt sinn. Almennt var búist við að Nazarbayev yrði endurkjörinn til næstu sjö ára en hann hefur verið forseti landsins síðan árið 1989, á meðan Kasakstan var ennþá hluti Sovétríkjanna. Fjórar útgönguspár sem birtar voru á miðnætti að staðartíma sýndu að Nazarbayev fékk allt frá 75 prósentum atkvæða upp í ríflega áttatíu prósent. Helsti andstæðingur hans, Zharmakhan Tuyakbai, virðist hins vegar aðeins hafa fengið tíu prósent. Í aðdraganda kosninganna kvörtuðu mótframbjóðendur forsetans yfir því að bæklingum og auglýsingum þeirra hefði verið stolið og dagblöðum þeim hliðholl hefði verið lokað. Onalsyn Zhumabekov, formaður landskjörstjórnar, lýsti því hins vegar yfir strax að loknum kjörfundi í gær að öll skilyrði hefðu verið uppfyllt við framkvæmd kosninganna. Kosningaeftirlitsmenn Samveldis sjálfstæðra ríkja, sem í eru flest lýðveldi fyrrum Sovétríkjanna, tóku í svipaðan streng og sögðu að svo virtist sem kosningarnar hefðu farið heiðarlega fram. Skýrsla kosningaeftirlitsmanna ÖSE um kjörfundinn og aðdraganda hans verður birt í dag. Kasakstan er talið hafa vegnað best af þeim fyrrverandi lýðveldum Sovétríkjanna sem eru í Mið-Asíu en landið er auðugt af olíu. Nazarbayev hefur í valdatíð sinni haldið uppi vingjarnlegum samskiptum við stjórnvöld í Moskvu, Washington og Peking og starfar til dæmis lítil kasöksk herdeild með fjölþjóðlega herliðinu í Írak.
Erlent Mest lesið „Ástandið er að versna“ Erlent Fækkar herforingjum um fimmtung Erlent Konan „terroríseri“ alla í hryllingshúsinu Innlent Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna Erlent Byssum stolið úr bílskúr í Kópavogi Innlent Gunnlaugur Claessen er látinn Innlent Ekki standi til að sækja strandveiðiheimildir í aflamarkskerfið Innlent Segist „eiginlega sammála“ ákvörðun Amgen Innlent Bætir í vind og úrkomu í kvöld Innlent Skjálfti 4,8 að stærð í Bárðarbungu Innlent Fleiri fréttir Fækkar herforingjum um fimmtung Lokuðu flugvöllum í Moskvu vegna dróna „Ástandið er að versna“ Íbúar Gasa verði fluttir á brott „í þágu eigin öryggis“ Páfabíll verður færanleg heilsugæsla fyrir börn á Gasa Aldrei fleiri stríð í heiminum síðan í síðari heimsstyrjöld Ráðherra segir að Ísraelar muni ekki fara aftur frá Gasa Árásarmaðurinn í Uppsölum handtekinn Komu naumlega í veg fyrir hryðjuverkaárás í Bretlandi Með bæði betri og fleiri vopn en síðast Ætla að hernema Gasaströndina Segir réttarríkið standa í vegi sínum Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Til marks um „skringilega“ skautun víða um heim Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Föður rafmyntajöfurs rænt og skorinn af honum fingur Fjarhægrimaður sigurstranglegastur í forsetakosningum Rúmena Fimm handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ PAP vann stórsigur í Singapúr Innsti hringur Trump í skærum við þýsk yfirvöld Verkamannaflokkurinn bar sigur úr býtum Íbúar Nuuk orðnir tuttugu þúsund Maður sem lét snáka bíta sig 200 sinnum lykill að tímamótamóteitri Umsetin af krókódílum í 36 klukkutíma eftir nauðlendingu Birti mynd af sér í páfaskrúða Sögulegur sigur Umbótaflokks og skipbrot stóru flokkanna tveggja Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Sjá meira