Þrýsta á um svör við fangaflugsásökunum 2. desember 2005 05:00
Þingnefnd á Evrópuþinginu gagnrýndi í gær ríkisstjórnir Evrópusambandsríkja harkalega fyrir að bregðast ekki með fullnægjandi hætti við upplýsingum sem fram hefðu komið um starfsemi bandarísku leyniþjónustunnar CIA á evrópskri grundu. Í ályktun sem samþykkt var í borgararéttindanefnd þingsins segir að ásakanir um að CIA reki leynifangelsi í Austur-Evrópu og fljúgi með fanga fram og aftur um evrópska lofthelgi og flugvelli séu nú "ekki véfengdar". "Ég er alls ekki sannfærð um að það sé verið að gera nóg af hálfu stjórnvalda aðildarríkjanna til að komast til botns í þessu og finna hvað satt er," sagði Sarah Ludford, meðlimur nefndarinnar úr Frjálslynda demókrataflokknum í Bretlandi. "Við höfum nú fullnægjandi sönnunargögn um flug á vegum CIA. Nú verðum við að fá að vita hverjir voru um borð í þessum flugvélum og hvert þær fóru," sagði hún. Á þriðjudag sendi breska stjórnin, sem gegnir formennskunni í ESB þetta misserið, stjórnvöldum í Washington bréf þar sem bent er á þær áhyggjur sem ásakanir um þessa meintu starfsemi CIA hafa valdið í Evrópu og kurteislega farið fram á skýringar. Fátt hefur verið um svör frá ráðamönnum vestanhafs fram til þessa. Sean McCormack, talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins, vildi á miðvikudag hvorki játa því né neita hvort ásakanirnar ættu við rök að styðjast. Hann vildi heldur ekki svara því hvort svörin sem Evrópumenn myndu fá við spurningum sínum yrðu til að skýra málið til fullnustu. Condoleezza Rice utanríkisráðherra heimsækir nokkrar höfuðborgir í Evrópu í næstu viku og víst þykir að þá komist hún ekki undan því að gefa einhver svör. Breska blaðið The Guardian greindi frá því í gær að í ljós væri komið að meintar CIA-flugvélar hefðu átt viðkomu á evrópskum flugvöllum mun oftar en talið hefði verið fram til þessa. Blaðið hefði heimildir fyrir því að þessi flug hefðu verið fleiri en 300 síðan árið 2002. Getum hefur verið leitt að því að slíkar vélar hafi millilent yfir 60 sinnum á Íslandi.
Erlent Mest lesið „Þeir eru að gera svona hluti sem maður myndi bara sjá í bíómyndum“ Innlent „Við höfum varað við ástandinu árum saman“ Innlent Notaði fjóra hnífa til að verða móður sinni að bana: „Gakktu í bæinn, hún er dauð“ Innlent Tenerife-veður víða á landinu Innlent Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart Erlent Erfitt að geta ekkert gert nema horfa á kofann brenna Innlent „Við erum bara happí og heimilislaus“ Innlent Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Erlent Veiðigjaldaumræðum lokið: Málið verði ríkisstjórninni að falli Innlent „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Innlent Fleiri fréttir Uppgröftur að hefjast þar sem allt að 800 börn voru jarðsett Trump segir Pútín hafa komið sér á óvart „Tæknivilla“ hafi valdið árás á fólk sem var að sækja sér vatn Segjast hafa „útrýmt“ banamönnum ofurstans Gisèle Pelicot sæmd æðstu heiðursorðu Frakka Hvetja foreldra til að bólusetja börnin sín eftir andlát vegna mislinga Reyna aftur að sigla til Gasa Veita yfirráðasvæði Frakklands meira sjálfstæði Kim lofar Rússum „skilyrðislausum stuðningi“ Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Fjórir látnir eftir gríðarstóra loftárás Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Frakkar og Bretar ná saman um að skiptast á hælisleitendum Þriðjungur endurreisnarinnar gæti fallið á Rússa Liðsmenn Verkalýðsflokks Kúrda leggja niður vopn Fyrsta rafknúna flugvélin í dönsku innanlandsflugi Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Fannst lifandi inni í kistu tveimur dögum eftir að leit hófst Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Bandaríkjamenn refsa sendifulltrúa SÞ í málefnum Palestínumanna Tveir létust í loftárásum Rússa á Kænugarð í nótt Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Sjá meira