ESB hótar að refsa fangelsisríkjunum 29. nóvember 2005 06:30 Szymany-flugvöllur í Póllandi. Talið er að flugvöllurinn hafi verið notaður sem áfangastaður fangaflugvéla.
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tjáð forystumönnum Evrópusambandsins að hún þurfi lengri frest til að bregðast við ásökunum um að leyniþjónustan CIA reki leynifangelsi í Evrópu og fljúgi þangað með grunaða hryðjuverkamenn. Franco Frattini, sem fer með dóms- og lögreglumál innan framkvæmdastjórnar ESB, skýrði frá því í gær að lítið hefði orðið um svör frá Hvíta húsinu og bandaríska utanríkisráðuneytinu við spurningum sambandsins um málið í síðustu viku. "Þeir báðu okkur um meiri tíma til að meta stöðuna. Eins og sakir standa höfum við engin svör fengið." Frattini sagði enn fremur að hverju því aðildarríki sem uppvíst yrði að því að hafa heimilað CIA að reka slík fangelsi innan sinna landamæra yrði refsað, mögulega með því að atkvæðisréttur þess yrði afturkallaður um skeið í stofnunum ESB. Rekstur leynifangelsa væri skýrt brot á sáttmálum sambandsins. Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands, lýsti því afdráttarlaust yfir í sjónvarpsviðtali í gær að CIA hefði aldrei rekið leynifangelsi í Póllandi. Þá viðurkenndi Frattini að Vasile Blaga, innanríkisráðherra Rúmeníu, hefði fullvissað sig um að ásakanir um að ríkisstjórn landsins hefði heimilað slík fangelsi væru ósannar. Hann bætti því hins vegar við að ef fangaflutningar og leynilegt varðhald hefðu átt sér stað án vitneskju stjórnvalda í viðkomandi löndum væri jafnframt um mjög alvarlegt mál að ræða.
Erlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira