Erlent

Mannréttindabrot færast í aukana

Ófremdarástand. Íraskur hermaður og slökkviliðsmenn skoða skemmdirnar sem sjálfsmorðsárás olli á anddyri sjúkrahúss í Írak í síðustu viku. Þrjátíu manns létust í sprengingunni og 35 særðust.
Ófremdarástand. Íraskur hermaður og slökkviliðsmenn skoða skemmdirnar sem sjálfsmorðsárás olli á anddyri sjúkrahúss í Írak í síðustu viku. Þrjátíu manns létust í sprengingunni og 35 særðust.

Mannréttindabrot í Írak færast sífellt í aukana og er ástandið orðið svo slæmt að fólk er farið að bera það saman við tíma Saddams Husseins.

"Fólk hagar sér nú eins og það gerði á tímum Saddams, eða jafnvel verr," segir Ayad Allawi, sem gegndi störfum fyrsta forsætisráðherra Íraks eftir fall Saddam Husseins. Þetta kemur fram í breska dagblaðinu Observer í gær. "Það er við hæfi að bera þetta saman, fólk minnist daga Saddams. Við börðumst við Saddam vegna þessara ástands, en nú sjáum við sömu hlutina aftur," segir Allawi, sem lét af störfum í apríl eftir fyrstu lýðræðislegu kosningar landsins.

Allawi er afar harðorður og sakar sjíamúslima í ríkisstjórninni um að vera ábyrgir fyrir aftökusveitum og leynilegum pyntingabúðum. Meðferð á föngum nýju öryggisgæslunnar er verri en sú sem leynilögregla Saddams sýndi sínum föngum, að sögn Allawis. Allawi var mikill fylgismaður innrásar Bandaríkjahers og gaf hann yfirlýsingar sínar á laugardag eftir að frekari vísbendingar bárust um að George Bush Bandaríkjaforseti ætlaði sér að fjarlægja allt að 40.000 bandaríska hermenn úr Írak á næsta ári og láta her Íraks taka við öryggisgæslu í landinu.

Talið er að yfirlýsingar Allawis muni grafa undan orðum ríkisstjórnar Íraks og Bandaríkjanna um að hlutirnir fari hratt batnandi í Írak. "Írak er miðpunktur þessa svæðis. Ef hlutirnir fara úrskeiðis geta hvorki Evrópa né Bandaríkin verið viss um öryggi sitt," segir Allawi og bætir við að innanríkisráðuneytið sé að miklum hluta til ábyrgt fyrir ófremdarástandinu, en nýverið komst upp um leynifangelsi ráðuneytisins.

Auk þess hefur þessi fyrsta lýðræðislega kosna ríkisstjórn Íraks verið sökuð um að eiga aðild að fjölmörgum mannshvörfum, pyntingum og aftökum. Allawi segist hafa svo litla trú á lögum og reglu í Írak að hann hafi skipað lífvörðum sínum að skjóta á alla lögreglubíla sem reyni að nálgast höfuðstöðvar hans án þess að hafa tilkynnt um komu sína fyrir fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×