Erlent
Andlit Iceland keðjunnar rekið eftir kókaínhneyksli Vandræðagemsinn Kerry Katona, sem áður var í hljómsveitinni Atomic Kitten, hefur verið rekin sem andlit Iceland verslunarkeðjunnar í Bretlandi eftir kókaínhneyksli.Þetta kemur fram á fréttavef Sky. Iceland keðjan var áður í eigu Baugs en nú eru skilanefndir Landsbankans og Glitnis stærstu hluthafarnir. Erlent 17.8.2009 19:56
Morðið í Óðinsvéum: Sló stelpuna 20 sinnum Fertugur danskur karlmaður sem er grunaður um að hafa myrt 13 ára gamla dóttur sína í Óðinsvéum í gær hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur. Samkvæmt læknisráði verðiur maðurinn vistaður á geðdeild á gæsluvarðhaldstímanum. Erlent 17.8.2009 15:46
Kanada ásælist Norðurpólinn Kanadamenn hafa skipulagt viðamiklar heræfingar við Norður heimskautið á næstunni en æfingarnar eru sagðar vera liður í þeirri viðleitni Kanadamanna að minna á sig og tilkall sitt til svæðisins en margir renna nú hýru auga til svæðisins og þeirra auðlinda sem það hefur að geyma. Erlent 17.8.2009 11:13
19 látnir í sprengingu í Ingúsetsíu Að minnsta kosti nítján eru látnir eftir að sprengja sprakk við höfuðstöðvar lögreglunnar í Ingúsetsíu sem er múslímskt sjálfstjórnarhérað í Rússlandi. Sprengingin varð í Nazran, stærstu borg héraðsins og talið er að hún hafi innihaldið 20 kílógrömm af sprengiefninu TNT. Erlent 17.8.2009 11:08
Kókaíndollarar algengir í Bandaríkjunum Á níu af hverjum tíu peningaseðlum í umferð í Bandaríkjunum má finna leifar af Kókaíni. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri rannsókn þar sem skoðaðir voru seðlar frá þrjátíu borgum í Bandaríkjunum auk þess sem seðlar frá Japan, Canada, Brasilíu og Kína. Erlent 17.8.2009 08:40
Sundmaðurinn í Burma látinn laus John Yettaw, Bandaríkjamaðurinn sem synti yfir stöðuvatn til þess að heimsækja Búrmíska stjórnarandstöðuleiðtogann Aung San Suu Kyi hefur verið látinn laus. Erlent 17.8.2009 08:30
Þrettán bretar hafa fallið í Afganistan það sem af er ágústmánuði Yfirmenn breska hersins í Afganistan segja að hermennirnir þar séu staðráðnir í að halda baráttunni Talíbana áfram þrátt fyrir mikil átök og hækkandi dánartölur. Nú hafa 204 breskir hermenn fallið í Afganistan frá því Bretar hófu afskipti af málum þar árið 2002. Þrettán hermenn hafa fallið í ágúst og fjórir um liðna helgi en hermennirnir reyna nú að auka öryggi borgara í landinu til þess að unnt verði að halda kosningar þar síðar í vikunni. Erlent 17.8.2009 08:06
Karzai nýtur mest stuðnings Hamid Karzai, sitjandi forseti Afganistans, nýtur mests stuðnings forsetaframbjóðenda í skoðanakönnun sem birt var í kvöld en forsetakosningar fara fram landinu næstkomandi laugardag. Erlent 16.8.2009 23:30
Aukið öryggi opnar á möguleika um frekari aðstoð Árangur Pakistana í að ná til baka lykillandssvæðum af Talibönum gefur þeim frekara svigrúm til viðræðna við Bandaríkjamenn um orku og efnahagsmál. Þetta sagði sérstakur erindreki Bandaríkjastjórnar í heimsókn sinni til Pakistans í dag. Erlent 16.8.2009 22:30
Mannskæð sprengjuárás í Bagdad Tvær sprengjur sprungu á sama tíma í kvöld við vinsælan veitingastað í hverfi shíta múslima í austurhluta Bagdad, höfuðborg Íraks. Að minnsta kosti sex féllu og á þriðja tug særðust í árásinni. Erlent 16.8.2009 21:15
Enn loga eldar í Kaliforníu Eldar loga enn í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum en vonar standa til að slökkviliðsmenn nái von bráðar tökum á eldum í grennd við borgina Santa Cruz sunnan af San Francisco. Erlent 16.8.2009 21:00
Tuttugu pör létu pússa sig saman á íþróttaleikvangi í Bosníu Tuttugu múslímsk pör létu pússa sig saman á Zenica leikvanginum í Bosníu í gærkvöld og sögðu skipuleggjendur þetta stærstu sharía gifingaveislu sem haldin hefur verið að múslímskum sið í Evrópu. Erlent 16.8.2009 18:54
Stærsta muffinskaka í heimi Stærsta muffinskaka í heimi var bökuð í dag en hún vegur hvorki meira né minna en hálft tonn, og rúmlega það. Kakan var bökuð í bakarí í Michigan í Bandaríkjunum en þetta var önnur tilraun til þess að slá heimsmetið. Erlent 16.8.2009 18:51
Ráðist á borgarstjóra Ofbeldismaður vopnaður málmröri réðist á borgarastjóra Milwaukee í gærkvöldi. Árásin er ekki sögð tengist starfi hans. Erlent 16.8.2009 17:35
Faðir myrti 13 ára gamla dóttur sína Fertugur danskur karlmaður er í haldi lögreglu grunaður um að hafa myrt 13 ára gamla dóttur sína á heimili þeirra í Óðinsvé í dag. Móðir stúlkunnar hringdi á lögreglu eftir að átök upphófust á heimili fjölskyldunnar. Stúlkan var flutt á sjúkrahús en hún látin áður en þangað var komið. Erlent 16.8.2009 15:26
Smábarn lést eftir fall af hótelsvölum 18 mánaða breskur drengur lést eftir að hann féll af hótelsvölum á ítölsku eyjunni Sardiníu í gær. Drengurinn var í sumarfríi með fjölskyldu sinni á eyjunni og voru foreldar hans að skipta um föt þegar slysið varð. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn en hann hlaut alvarlega höfuðáverka. Erlent 16.8.2009 15:14
Bjargaði eigin lífi Ellefu ára bresk stúlka náði á síðustu stundu að bjarga lífi sínu þegar bíll sem hún sat í, féll fram af kletti og ofan í sjó. Erlent 16.8.2009 13:00
200 breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá 2001 Yfir 200 breskir hermenn hafa fallið í Afganistan frá því stríðið hófst þar árið 2001. Nú um helgina létust tveir. Gordon Brown, forsætisráðherra, sagði sumarið hafa verið sérlega erfitt en árangur hefði þó náðst í baráttunni við hryðjuverkamenn og merki um það væru komandi forsetakosningar í Afganistan. Erlent 16.8.2009 12:38
Tvær rússneskar herþotur hröpuðu Tvær rússneskar herþotur hröpuðu í morgun en undirbúningur fyrir stóra flugsýningu stendur nú yfir í Rússlandi. Flugvélarnar voru hluti af úrvalshópi Rússnesku riddaranna, en þær voru við æfingar þegar þær skullu saman. Erlent 16.8.2009 12:36
Undirbúa starfsmenn skóla undir svínaflensuna Heilbrigðisstarfsmenn vestanhafs reyna nú hvað þeir geta að undirbúa kennara og aðra starfsmenn skóla undir svínaflensuna. Viðbúið er að þegar skólastarf hefst verði töluverð aukning flensutilfella. Erlent 16.8.2009 11:15
Yfir 40 létust í brúðkaupi Yfir 40 létust í Kúveit þegar eldur kom upp í tjaldi sem komið hafði verið upp fyrir brúðkaupsveislu í gærkvöldi. Flestir þeirra sem létust voru konur og börn. Tjaldið varð alelda á örskammri stundu en hátt í sextíu slösuðust, margir tróðust undir þegar fólk reyndi að flýja eldinn. Erlent 16.8.2009 10:48
Talibanar hóta kjósendum Talibanar í Afganistan hótuðu í morgun að skera fingur af kjósendum og ráðast á kjörstaði, en fingrafar er tekið af þeim sem kjósa í Afganistan. Tilgangurinn er að fá Afgana til að sniðganga forsetakosningarnar sem fara fram þar eftir fjóra daga. Erlent 16.8.2009 10:14
Ráðgátan um týnda skipið tekur nýja stefnu Ráðgátan um Arctic Sea, finnska flutningaskipsins sem hvarf af ratsjá fyrir hálfum mánuði tók nýja stefnu í gær þegar rússnesk siglingarvefsíða tilkynnti að staðsetningartæki skipsins hefði gefið frá sér merki. Samkvæmt upplýsingum vefsíðunnar lítur út fyrir að skipið eða búnaðurinn sé við strendur Frakklands. Ekki er þó vitað hvort staðsetningartækið sé enn um borð í skipinu. Erlent 16.8.2009 09:58
Karzai fordæmir árásirnar Hamid Karzai, forseti Afganistans, fordæmdir harðlega sjálfsmorðsprengjuárás öfgamanna í gær þegar. Að minnsta kosti níu og rúmlega 100 manns særðust þegar árásarmaðurinn sprengdi sig í loft upp fyrir utan höfuðstöðvar NATO í landinu. Meðal hinna særðu er Hawa Nuristani, þingkona á afganska þinginu. Erlent 16.8.2009 07:15
Frambjóðandi fórnarlamb kynþáttafordóma í Þýskalandi Zeca Schall, frambjóðandi Kristilegra demókrata í komandi kosningum í Þýskalandi, er hvattur af flokki lýðræðislegra þjóðernissinna, flokks hægra öfgamanna, til að koma sér frá Þýskalandi. Schall er dökkur á hörund en hann fluttist til Þýskalands frá Angóla fyrir 21 ári síðan. Erlent 15.8.2009 23:30
Öflugir vindar hamla slökkvistarfi Talið er að öflugir vindar muni hamla slökkvistarfi í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum, en miklir eldar hafa geisað þar frá því í síðustu viku. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir. Erlent 15.8.2009 22:15
Ætlaði að ráðast á bandaríska sendiráðið Sjö létust og hátt í 100 særðust í sjálfsmorðsárás Talibana á höfuðstöðvar NATO í Afganistan í morgun. Í dag eru aðeins fimm dagar þar til forsetakosningar fara fram í landinu. Erlent 15.8.2009 21:00
Tölvuleikur um svínaflensuna Það er óhætt að segja að tækifærin leynist víða. Að minnsta kosti sá þýski veirufræðingurinn Albert Osterhaus tækifæri í svínaflensunni. Hann hefur nú búið til tölvuleikinn "The Great Flu" eða flensan mikla. Erlent 15.8.2009 19:31
Fílar fá gervifætur Tveir fílar á Tælandi hafa verið svo lánsamir að fá sérhannaða gervifætur. Mosha sem er þriggja ára missti fótinn fyrir rúmum tveimur árum og var fyrsti fílinn í heiminum til að fá gervifót. Erlent 15.8.2009 19:27
Reyna að bjarga íbúum úr aurskriðu Björgunarsveitarmenn freista þess nú að bjarga hátt í tvö þúsund íbúum bæjarins Shiao Lin í Tævan, sem varð illa úti þegar auðskriða féll þar í síðustu viku. Erlent 15.8.2009 19:02