Þór - Breiða­blik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri

Árni Gísli Magnússon skrifar
Þór hefur leikið þrjá leiki í röð án taps.
Þór hefur leikið þrjá leiki í röð án taps. vísir

Þór stökk upp úr botnsætinu með 1-0 sigri gegn Breiðabliki í 17. umferð Bestu deildar karla. Christian Greko Jakobsen skoraði eina markið með skalla eftir hornspyrnu rétt fyrir hálfleik.

Þór situr nú í 11. sæti deildarinnar, tveimur stigum fyrir ofan FH sem sest á botninn og jafnt nágrannaliðinu KA að stigum. Þórsarar hafa leikið þrjá leiki í röð án taps.

Breiðablik hafði leikið fjóra deildarleiki í röð án taps en tókst ekki að setja jöfnunarmarkið í dag.

Nánari umfjöllun og viðtöl eru væntanleg á Vísi von bráðar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira