Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

„Þetta verða mjög spennandi kosningar“

Það eru verulega spennandi kosningar í vændum í Reykjavík að sögn Ólafs Þ. Harðarsonar stjórnmálafræðings, en spennan gæti magnast enn frekar eftir að kosningaúrslitin liggja fyrir í vor. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking tróna yfir aðra flokka í Reykjavík samkvæmt nýrri könnun Maskínu á fylgi flokkanna í borginni og hið nýja Vinstri gæti náð inn að minnsta kosti tveimur fulltrúum úr röðum VG og Vors til vinstri.

Innlent
Fréttamynd

„Nú verður fjör” hjá Sjálf­stæðis­mönnum sem kynna lista í Mosó

Sjálfstæðisflokkurinn í Mosfellsbæ hefur nú svipt hulunni af sínum lista yfir frambjóðendur flokksins í sveitarfélaginu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hilmar Gunnarsson, ritstjóri og Mosfellingur leiðir listann, en í öðru og þriðja sæti eru þær Jana Katrín Knútsdóttir, bæjarfulltrúi og hjúkrunarfræðingur, og Elísabet S. Ólafsdóttir sáttamiðlari.

Innlent
Fréttamynd

Fram­sókn sviptir hulunni af fram­boðs­lista í Mosó

Framsóknarflokkurinn í Mosfellsbæ hefur samþykkt framboðslista flokksins í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sævar Birgisson, viðskiptafræðingur og bæjarfulltrúi, leiðir listann og þau Halla Karen Kristjánsdóttir, íþróttakennari og formaður bæjarráðs og Leifur Ingi Eysteinsson, tómstunda- og félagsmálafræðingur verma annað og þriðja sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Rósin á­fram í hnappagati Sam­fylkingarinnar

Stjórn Samfylkingarfélagsins Rósarinnar hefur lokið viðræðum sínum um mögulegt samstarf við stjórnmálasamtökin Vor til vinstri, sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í sameiningu með Vinstri grænum undir nafni Vinstrisins. Niðurstaða viðræðnanna er sú að Rósin hyggst ekki fara í samstarf með Vinstrinu, heldur halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Heiða hætt? Nei, bara veik heima“

Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri var ekki viðstödd kynningu á framboðslista Samfylkingarinnar í borginni síðdegis í gær. Eftir því var tekið að Heiða Björg var ekki á hópmynd sem tekin var og frambjóðendur hafa keppst við að dreifa á samfélagsmiðlum. Pólitískir andstæðingar telja fjarveru Heiðu benda til ósættis innan raða Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum

Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor.

Innlent
Fréttamynd

Íris kveður stjórn­málin í Eyjum

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru.

Innlent
Fréttamynd

Bæjar­stjóri Mosfelssbæjar á lista Sam­fylkingar í Reykja­vík

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og fyrrverandi bæjarstjóri Akraness, mun skipa sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Sveitarstjórnarkosningar. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á listanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, munu skipa heiðurssæti á listanum. 

Innlent
Fréttamynd

Bjarni Guð­jóns hættir hjá VÍS

Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Geti átt í sam­starfi við nær alla flokka

Prófkjör Pírata hefst á morgun en tveir frambjóðendur hafa boðið fram krafta sína í oddvitasætið, Alexandra Briem, núverandi oddviti, og Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi. Þau segjast bæði tilbúin að leita að samstarfsflokkum í allar áttir en sá flokkur þurfi að samræmast þeirra grunngildum. Að mati Alexöndru geti það ekki allir.

Innlent
Fréttamynd

Trausti vill snúa aftur

Trausti Hjaltason vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningunum. Hann var bæjarfulltrúi flokksins í tvö kjörtímabil og hefur áður verið varaþingmaður fyrir Suðurkjördæmi. Prófkjör flokksins fer fram 13. mars.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu í fram­boði í próf­kjöri Pírata

Ellefu eru í framboði í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefst á morgun. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, fjórir eftir öðru til fimmta sæti og fjöldi eftir neðri sætum. 

Innlent
Fréttamynd

Miklar hreinsanir fyrir­hugaðar í borgar­stjórnar­liði xD

Brynjar Níelsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður, er á leið í borgarstjórn. Hann ætlar að gefa kost á sér og mun væntanlega skipa þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Morgunblaðið boðar miklar hreinsanir á núverandi borgarstjórnarfulltrúum.

Innlent
Fréttamynd

Líf bar sigur úr býtum

Líf Magneudóttir, núverandi oddviti Vinstri grænna í Reykjavík, sigraði í forvali flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún mun vera í öðru sæti á sameiginlegum lista VG og Vors til Vinstri. Sanna Magdalena Mörtudóttir mun hins vegar leiða listann.

Innlent
Fréttamynd

Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið

Forval Vinstri grænna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor stendur nú yfir og lýkur klukkan fimm á morgun. Í morgun höfðu 27 prósent á kjörskrá greitt atkvæði en fjölgað hefur töluvert í flokknum undanfarnar vikur.

Innlent
Fréttamynd

„Ég held ég hafi migið í saltan sjó“

Tveir frambjóðendur vilja oddvitasætið í forvali Vinstri grænna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Sitjandi oddviti segir vinstrið þurfa á reynslu að halda en mótframbjóðandinn boðar meiri róttækni í húsnæðis- og samgöngumálum.

Innlent
Fréttamynd

Regína lætur staðar numið í Mosó

Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í Mosfellsbæ hefur ákveðið að hætta störfum að loknum sveitarstjórnarkosningum í vor hver sem útkomin verði. Ákvörðunin sé ekki léttvæg en hún vilji að framboð viti að hverju þau gangi nú þegar kosningabaráttan fer í hönd.

Innlent