Hval­fjarðar­sveit

Hval­fjarðar­sveit

Mannfjöldi: 760 (2025). Flatarmál: 479 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Melahverfi, Leirársveit.


Fréttamynd

Vegir og gatna­mót í Hval­firði komnir að þolmörkum

Vegir og gatnamót í Hvalfjarðarsveit eru komnir að þolmörkum að sögn sveitarstjóra sem segir of mörg alvarleg umferðarslys verða í Hvalfirði. Hann kallar eftir tafarlausu samtali við stjórnvöld vegna málsins og segir ekki hægt að bíða lengur eftir aðgerðum.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Flýtum tvö­földun Vestur­lands­vegar – í þágu umferðaröryggis

Ný samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar sendir að sumu leyti jákvæð skilaboð til íbúa á Vesturlandi. Þar er meðal annars gert ráð fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar, þjóðvegar 1, á kaflanum frá Hvalfjarðargöngum að Borgarnesi. Það eru jákvæð tíðindi enda er um einn fjölfarnasta kafla þjóðvegar landsins að ræða og leið sem þúsundir ökumanna fara um á hverjum degi.

Skoðun
Fréttamynd

Spiluðu þjóð­sönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land

Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Segir upp­haf hvalvertíðar vera gleði­tíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“

Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur.

Innlent
Fréttamynd

Á­höfnin hlúði að Hólm­steini á siglingunni til Hval­fjarðar

Mótmælaaðgerð Hólmsteins Harðarsonar, þar sem hann kom sér fyrir í tunnu í mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9, vakti mikla athygli í gær. Með því vildi hann freista þess að fresta för skipsins út til veiða. Það fór engu að síður svo að skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn og sigldi norður til Hvalfjarðar. Sjá mátti tvo áhafnarmeðlimi hlúa að Hólmsteini þegar skipið sigldi inn Hvalfjörðinn. 

Innlent
Fréttamynd

Hólm­steinn skriðinn úr tunnunni

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 sigldi í dag úr höfn með mótmælanda um borð. Skipið er nú á leið inn Hvalfjörðinn og við fylgjumst með í beinni í spilaranum hér að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Kompásar stilltir fyrir komandi hval­veiðar

Lokaundirbúningur hvalvertíðar stendur yfir hjá Hval hf. og í dag var hvalbátunum tveimur, Hval 8 og Hval 9, siglt úr Reykjavíkurhöfn og um Faxaflóa í nokkrar klukkustundir. Töldu kunnugir að verið væri að prufukeyra gufuvélarnar og stilla kompása.

Innlent
Fréttamynd

Slökkva á ofni vegna verndar­ráð­stafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“

Forsvarsmenn Elkem á Íslandi hafa ákveðið að slökkva á einum þriggja ofna járnblendisverksmiðju félagsins á Grundatanga í sumar. Þetta er gert vegna verndarráðstafana Evrópusambandsins vegna kísilmálma. Með því að draga úr framleiðslunni yfir sumartímann getur félagið haldið öllu fastráðnu starfsfólki í vinnu en lítið sem ekkert verður ráðið í sumarstörf.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fræsa og mal­bika Vestur­lands­veg í kvöld

Frá klukkan 19 í kvöld og til tvö í nótt er stefnt á að fræsa og malbika kafla á Vesturlandsvegi við Esjumela og annan kafla við Kollafjörð klukkan 21. Hringvegurinn verður því að hluta til lokaður í kvöld og í nótt.

Innlent
Fréttamynd

Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir ver­tíðina

Hvalveiðibátnum Hval 8 var núna undir kvöld rennt úr slippnum í Reykjavíkurhöfn eftir klössun en áður var búið að yfirfara Hval 9. Þetta þykja ótvíræð merki um að Hvalur hf. stefni á stórhvalaveiðar í sumar.

Innlent
Fréttamynd

Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leir­ár­sveit og hin nýja ís­lenska gull­öld

Íslensk stjórnmál og samfélagsumræða árið 2026 einkennast um of af varnarbaráttu. Við ræðum um hvernig eigi að „laga“ kerfi sem eru löngu sprungin, hvernig eigi að „þétta“ byggð í kringum gamlar deilur og hvernig eigi að fjármagna innviði sem eru þegar orðnir úreltir á teikniborðinu. Reykjavík, okkar sögulega höfuðborg, er orðin gísl eigin vaxtarverkja.

Skoðun
Fréttamynd

„Mér finnst þetta ákaf­lega dapur­leg fram­ganga“

Oddvitaefni Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit segir það ekki tortryggilegt að hann hafi sagt upp sem bæjarstjóri Akraness til að fara í framboð. Hann sé ekki í framboði til að sameina sveitarfélögin eins og mótframbjóðendur hafa gefið í skyn. 

Innlent
Fréttamynd

Endur­ræsing hafin hjá Norðuráli

Endurræsing er hafin hjá Norðuráli eftir að bilun síðasta október varð til þess að framleiðsla dróst saman um tvo þriðju. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar þessa árs. Samkvæmt áætlunum í nóvember var gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni gæti hafist eftir ellefu til tólf mánuði.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Næturlokunin komi sér afar illa fyrir fjölda í­búa

Haraldur Benediktsson, bæjarstjóri á Akranesi, segir allt of stuttan fyrirvara á sjö vikna næturlokun Hvalfjarðargangnanna. Klukkan 21.30 í kvöld var göngunum lokað vegna viðhalds. Þau verða lokuð til klukkan sex. Næturlokunin stendur til 29. maí. Tilkynnt var um þessa sjö vikna næturlokun þann 2. apríl.

Innlent