Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Jakob Bjarnar skrifar 15. október 2026 10:23 Karl Gauti Hjaltason er afar ósáttur við að nú standi til, á næstu dögum, að hella eigi átta tonnum af vítissóda í Hvalfjörð. vísir/vilhelm Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins segir að á næstu dögum muni fara fram einkennileg tilraun í nágrenni höfuðborgarinnar: hella eigi átta tonnum af natríumhýdroxíði, öðru nafni vítissóda, í Hvalfjörðinn. Þetta sagði hann í dagskrárliðnum Störfum þingsins í gær.
Vísir hefur fjallað um leyfisveitingar til fyrirtækisins Rastar sem stendur að þessum rannsóknum. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafnaði umsókn Rastar um rannsóknarleyfi í maí í fyrra á þeim forsendum að ekki væri til neinn lagarammi um rannsóknir af því tagi sem Röst vildi stunda í Hvalfirði. En utanríkisráðuneytið venti þá óvænt kvæði sínu í kross og veitti leyfið. Haraldur Eiríksson, eigandi Hökla ehf., leigutaka Laxár í Kjós, hefur lýst yfir þungum áhyggjum af þessum fyrirætlunum auk þess sem hann telur hér um vafasama stjórnsýslu að ræða. Leyfið sé veitt á þeim forsendum að fyrir liggi tillaga til lagabreytingar sem opnar á svona rannsóknir. Málið hafi ekki fengið þinglega meðferð. Karl Gauti er ekki sáttur og segir vítissódann ætandi og hættulegt efni. Forsvarsmenn verkefnisins telji hann geta bundið koltvísýring í Hvalfirðinum og þannig komið loftslaginu til góða. „Ekki virðist nógu vel tekið mið af því að Íslendingar skara fram úr á heimsvísu í notkun endurnýjanlegra og vistvænna orkuauðlinda eins og við öll vitum. Nei, við eigum auðvitað að vera tilraunastofa heimsins í þessum efnum og ef vítissódi gæti bjargað heiminum úr þessum kröggum þá er best að gera tilraunir með efnið hér, rétt við höfuðborg heimsmeistaranna, í lokuðum firði þar sem finna má rómaðar laxveiðiár og dýrlegt lífríki.“ Karl Gauti sagði að ekki virtist sem tillit væri til þess tekið að framleiðsla og flutningur á vítissóda kalli á umtalsverða losun á koltvísýringi þannig að verkefnið að því leyti sé mengandi og skaðlegt fyrir loftslagið. Hvalfjörðurinn og Kjósin á góðviðrisdegi.vísir/vilhelm „Ekki er ljóst hvort kolefnið sem verkefnið á að binda sé meira en framleiðsla og flutningur á sama efni losa. Kostnaðurinn við þessa tilraun hlýtur að reiknast sem hluti af þeim útgjöldum sem við verjum til loftslagsaðgerða en undanfarin ár hafa tugir eða hundruð milljarða runnið eftirlitslítið úr vasa skattgreiðenda í þessu skyni.“ Ekki fari mikið fyrir eftirliti með ráðstöfun þessara útgjalda og leyfði Karl Gauti sér að ítreka það sem hann hefur áður sagt: „Að upplýsingar um mælanlegan árangur af ráðstöfun þessa geipifjár hafa ekki fengist frá stjórnvöldum þótt vitaskuld eigi skattgreiðendur fullan rétt á slíkum upplýsingum.“ Karl Gauti sagði í lok sinnar ræðu Hvalfjörðinn dýrmæta náttúruperlu og hann mótmælir því harðlega að fjörðurinn skuli nú verða lagður undir tilraunaverkefni með eiturefni, eins og hann orðar það.
Loftslagsmál Stjórnsýsla Umhverfismál Alþingi Kjósarhreppur Hvalfjarðarsveit Tengdar fréttir Lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirætlunum Rastar Haraldur Eiríksson, leigutaki Laxár í Kjós og Bugðu, telur stjórnsýsluna á afar furðulegu róli er varðar leyfisveitingar til handa rannsóknarfyrirtækinu Rastar sem Haraldur segir að vilji sturta 20 tonnum af vítissóda í Hvalfjörð. 3. febrúar 2025 11:49 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira
Lýsir yfir þungum áhyggjum af fyrirætlunum Rastar Haraldur Eiríksson, leigutaki Laxár í Kjós og Bugðu, telur stjórnsýsluna á afar furðulegu róli er varðar leyfisveitingar til handa rannsóknarfyrirtækinu Rastar sem Haraldur segir að vilji sturta 20 tonnum af vítissóda í Hvalfjörð. 3. febrúar 2025 11:49