Jákvæð áhrif Kópavogsleiðarinnar Umræða um leikskólamál hefur verið lífleg undanfarið og Kópavogsleiðin sérstaklega til umræðu. Skoðanir eru skiptar, eins og eðlilegt er þegar gerðar eru breytingar á mikilvægu samfélagskerfi. Skoðun 10.3.2026 14:30
Varðveisla Guðmundarlundar Guðmundarlundur í Vatnsendahlíð í vatnsendalandi er eitt vistlegasta útisvæði Kópavogs og algjör perla fyrir fjölskyldur og ungmenni. Lundinum er einstaklega vel við haldið af Skógræktarfélagi Kópavogs sem heldur nú úti flottu leiksvæði fyrir börn, mini-golf velli, frisbí-golf velli, útigrillum, salernisaðstöðu og hefur Skógræktarfélagið m.a. staðið fyrir Ævintýri í Jólaskógi við góðar undirtektir. Talið er að um 200.000 manns heimsæki Guðmundarlund árlega. Skoðun 10.3.2026 10:00
Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Fólksbíll rann í hálku og endaði í Kópavogstjörn á ellefta tímanum. Tvö önnur umferðarslys urðu vegna launhálku á Reykjanesbraut. Enginn er alvarlega slasaður. Innlent 8.3.2026 23:03
Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið 7.3.2026 07:01
Vegfarandi á sjúkrahús og Kringlumýrarbraut lokað eftir þriggja bíla árekstur Innlent 5.3.2026 22:36
Viðreisn opinberar listann í Kópavogi Viðreisn í Kópavogi hefur opinberað lista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vor. Innlent 5. mars 2026 20:31
Ráðist var á ungmenni í strætóskýli Ráðist var á ungmenni í strætóskýli í dag og óskað eftir aðstoð lögreglu. Þegar hún kom á vettvang hafði meintur gerandi yfirgefið svæðið og fannst hvergi. Málið er á borði lögreglustöðvar sem sinnir Kópavogi og Breiðholti í Reykjavík. Innlent 5. mars 2026 18:20
Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Eldri borgari sem um árabil hefur barist gegn framkvæmdum í miðborg Kópavogs er fluttur á brott. Hann segist hafa gefist upp, selt íbúð sína á hrakverði og ber Kópavogsbæ ekki góða sögu. Lögfræðingur húsfélags í Fannborg segir íbúa fyrst og fremst ósátta við skort á upplýsingum frá bænum. Innlent 5. mars 2026 15:42
Opið bréf frá leikskólastjórnendum í Kópavogi Kæri bæjarstjóri og bæjarstjórn í Kópavogi, takk fyrir að hlusta á ákall okkar leikskólastjórnenda og annarra hagsmunaaðila leikskóla og bregðast við þeim stórkostlega vanda sem blasti við starfsemi leikskóla í Kópavogi. Skoðun 5. mars 2026 12:48
Leikskólastjóri og fyrrverandi fótboltamaður fram fyrir Miðflokkinn Kjördæmastjórn Miðflokksins í Kópavogi hefur staðfest hvaða frambjóðendur verða í efstu fimm sætunum á lista flokksins í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Greint var frá því í síðustu viku að Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður flokksins, yrði oddviti í bæjarfélaginu. Innlent 4. mars 2026 17:45
Grunaður um að kýla konu og sparka svo í hana þegar hún lá eftir Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu sem hann mun hafa framið utandyra við Kópavogsbraut að nóttu til í júlí 2023. Innlent 3. mars 2026 22:52
Gular viðvaranir á suðvesturhorninu Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða. Veður 3. mars 2026 06:34
Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Kjósendur eiga betra skilið en upphrópanir og rangfærslur. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi hljóp aðeins á sig þegar hann hélt því fram í grein hér á Vísi sl. mánudag að uppbygging slökkvistöðvari í efri byggðum væri föst „í gíslingu“ Kópavogsbæjar en lét hjá líðast að nefna að stöðin er fjármögnuð og á áætlun og verður tilbúin 2030. Hvers konar gíslataka er það eiginlega – lélegasta gíslataka sögunnar? Skoðun 28. febrúar 2026 14:15
Sannleikur um slökkvistöð í Kópavogi Undirritaður skrifaði á dögunum grein á Vísi sem bar titilinn „Af hverju er engin slökkvistöð í Kópavogi“ sem virðist hafa valdið titringi hjá pólitískri forystu Kópavogsbæjar. Skoðun 28. febrúar 2026 08:01
„Valsreiturinn... í Pyongyang“ Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið. Lífið 27. febrúar 2026 17:10
Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar. Innlent 26. febrúar 2026 12:02
Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður Miðflokksins, verður oddviti Miðflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Innlent 26. febrúar 2026 09:30
Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Vegfarandi segir glæfralegan akstur ökumanns snjóruðningstækis hafa valdið skemmdum á bíl hans á Hafnarfjarðarvegi. Mikil hætta hafi verið á ferðum og hann verið viss um að framrúðan myndi springa. Þá hafi fleiri ökumenn greint frá tjóni. Innlent 26. febrúar 2026 00:07
Maðurinn grunaður um manndráp á Kársnesi áfram í haldi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur úrskurðað grískan karlmann sem grunaður er um að hafa ráðið portúgölskum manni bana í Kópavogi, í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 25. febrúar 2026 15:34
Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030. Innlent 24. febrúar 2026 12:23
Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Reynir Freyr Pétursson, þyrluflugstjóri hjá Heliair, vill að keyptar séu skjólur og samið við þyrlufyrirtæki til að bregðast við þegar upp koma gróðureldar. Minni skjólur á minni þyrlum séu töluvert afkastameiri en stór skjóla á stórum þyrlum Landhelgisgæslunnar. Innlent 24. febrúar 2026 09:11
„Mikið áfall að vera allt í einu komin með eld í bakgarðinn“ Gróðureldarnir við Elliðavatn í gær eru meðal þeirra stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Hestamenn í Kópavogi óttuðust um tíma að eldarnir bærust í hesthúsin og segja það áfall að vera með eld í bakgarðinum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn sem gerði rýmingu hesthúsa erfiðari svo og slökkviliðsmönnum að komast á staðinn. Innlent 23. febrúar 2026 19:03
Erfitt að segja til um upptök gróðureldanna Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda. Innlent 23. febrúar 2026 13:02
Af hverju er engin slökkvistöð í Kópavogi? Það er engin slökkvistöð í Kópavogi. Í efri byggðum Kópavogs er viðbragðstími slökkviliðs 15 til 19 mínútur. Skoðun 23. febrúar 2026 10:01
Sinueldur við Elliðavatn Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið. Innlent 22. febrúar 2026 15:39
Kópavogsmódelið leggst þyngra á barnafjölskyldur en Reykjavíkurleiðin Málflutningur Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík, þar sem hún fjallar um hina nýkynntu Reykjavíkurleið í leikskólamálum, vakti athygli okkar í síðastliðinni viku. Skoðun 22. febrúar 2026 14:03