Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Þegar þeir Alexander Stubb, forseti Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hringdu í Vladimír Pútín Rússlandsforseta á dögunum, stóð til að símtalið myndi taka um tuttugu mínútur. Þess í stað stóð það yfir í rúmar níutíu mínútur og kom mögulegt vopnahlé í Úkraínu varla til umræðu. Erlent 28.10.2026 12:12
Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Ný yfirlýsing sem snýr að áhrifum nýrrar tækni á börn og ungmenni var undirrituð á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í dag, þann 27. október, sem er í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs sem fram fer í Helsinki þessa dagana. Kristrún Frostadóttir segir jákvætt að þjóðirnar, sem hafi oft verið frumkvöðlar þegar kemur að velferðarmálum, taki höndum saman um að bjóða tæknirisum birginn. Innlent 27.10.2026 22:02
„Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Kristrún Frostadóttir segist ekki gera athugasemd við að starfsbræður hennar í Noregi og í Finnlandi hafi rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Hún viti í grófum dráttum hvað kom fram í símtalinu og að lykilatriðið sé að samtalið sé átt á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta. Innlent 27.10.2026 18:06
Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Lögreglan í Finnlandi hefur lokað fyrir skipaumferð á svæði í nágrenni við Helsinki eftir að óþekktur málmhlutur fannst í sjónum. Mikill viðbúnaður er á svæðinu og lögreglan óskar eftir aðstoð finnska hersins. Erlent 3. október 2026 21:33
Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Niðurstöður nýrrar rannsóknar sem sýna að íslenskir karlmenn hafi íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á hinum Norðurlöndunum er viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag að mati doktorsnema sem kallar eftir viðbrögðum. Innlent 3. október 2026 14:17
Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Íslenskir karlmenn hafa íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en kynbræður þeirra á Norðurlöndum samkvæmt nýrri rannsókn. Doktorsnemi segir niðurstöðurnar sláandi og sérstaklega komi á óvart að mun fleiri íslenskir karlar en norrænir telji að hægt sé að leysa úr ágreiningi með ofbeldi. Svör þeirra skera sig einnig úr þegar kemur að spurningum um lýðræði. Innlent 2. október 2026 06:02
Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Finnskar tvíburasystur fæddu báðar barn á kvennadeild háskólasjúkrahússins í Turku sama daginn. Sama ljósmóðir og læknanemi voru einnig viðstaddar báðar fæðingar systranna. Lífið 29. september 2026 16:15
Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Fimmtungur íslenskra ungmenna á aldrinum fimmtán til nítján ára drekkur orkudrykk einu sinni á dag eða oftar. 36 prósent drekka orkudrykk vikulega eða oftar. Töluvert fleiri íslensk ungmenni drekka aldrei orkudrykk en ungmenni á öðrum Norðurlöndum. Innlent 22. september 2026 06:41
Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka Finnar hafa gengið til liðs við Frakka í verkefni sem varðar fælingarmátt kjarnorkuvopna. Þeir eru tíunda ríkið sem tekur þátt en Svíar og Norðmenn hafa þegar gengið í hópinn. Erlent 14. september 2026 21:42
Finnar taka þátt í kjarnorkuvernd Frakka Finnar ætla að hefjast samstarf um öryggis- og varnarmál við yfirvöld í Frakklandi. Samningur þessi mun fela í sér að Finnland mun heyra undir kjarnorkuvopnavernd Frakklands og Finnar munu eiga í auknu varnarsamstarfi við Frakka og aðrar þjóðir sem að samstarfinu koma. Erlent 14. september 2026 10:01
Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár Rúmlega áttræður karlmaður í Turku í Finnlandi sætir ákæru fyrir að hafa geymt lík foreldra sinna í frystikistum í rúmlega þrjátíu ár. Maðurinn sagðist hafa gert það til þess að virða ósk föður síns. Erlent 14. september 2026 09:58
Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Réttarhöld yfr rússneskum skipstjóra flutningaskips sem sleit sæstrengi milli Finnlands og Eistlands hófust í Helsinki í dag. Skipið dró akkeri um 130 kílómetra eftir hafsbotninum þar til finnska strandgæslan stöðvaði för þess. Erlent 9. september 2026 07:46
Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Niðurstöður PISA-könnunarinnar sýna að einungis 28 prósent nemenda af erlendum uppruna búa yfir grunnhæfni í lesskilningi. Munurinn minnkar þegar tekið er tillit til félags- og efnahagslegrar stöðu en hverfur ekki. Niðurstöður sýna að algengt sé að nemendur úr hópi innflytjenda standi verr að vígi en aðrir nemendur með engan erlendan bakgrunn, sama hvort litið er til læsis, vísinda eða stærðfræði. Innlent 8. september 2026 22:02
Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Hugverkastofnun Evrópusambandsins hefur staðfest að borgin Rovaniemi í Lapplandi eigi vörumerkið „opinbert heimili jólasveinsins“. Hollenskur blaðamaður reyndi að fá vörumerkið afturkallað. Erlent 31. ágúst 2026 13:45
Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlendir fjölmiðlar fylgjast með Íslandi í dag vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Fulltrúar um fjörutíu fréttamiðla eru staddir hér á landi til að fjalla um málið. Erlent 29. ágúst 2026 11:36
Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Um fimmtugur íbúi dvalarheimilis í Finnlandi lést eftir að lögreglumaður skaut hann með rafbyssu í síðustu viku. Aðstandendur hans segja að hann hafi verið andlega fatlaður. Erlent 19. ágúst 2026 10:01
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Dóttir mín sem er uppalin og býr í Bretlandi er enn miður sín yfir úrslitum Brexit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2016. Hún mjög reið yfir öllum lygunum sem Brexit hópurinn setti fram – á hliðum strætisvagna, í bæklingum sem bornir voru í hús, í dagblöðum, í viðræðuþáttum í sjónvarpi og útvarpi – og víðar. Skoðun 17. ágúst 2026 08:03
„Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Árið 1995 gengu Svíþjóð, Finnland og Austurríki í ESB. Síðan þá hefur vöxtur landsframleiðslu á mann (sem gefur ágætis hugmynd um þróun velmegunar) verið í kringum 3% á ári. Afar svipaður og á Íslandi. Skoðun 9. ágúst 2026 14:01
Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Við sátum oft heima við kvöldverðarborðið eða á kaffistofunni í vinnunni og ræddum það sem stundum var kallað um daginn og veginn. Mest ræddum við samt um það sem við sáum í Sjónvarpinu kvöldið áður, fræðsluþáttinn um Sama frá finnska sjónvarpinu og breskan þátt um Sohohverfið í Lundúnum. Allir komu að umræðunni frá sama sjónarhóli, stofusófanum. Allir töluðu út frá sömu upplýsingum. Skoðun 7. ágúst 2026 16:02
Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Jónsbók, fyrirtæki sem sérhæfir sig í lögfræðiaðstoð með gervigreind, hefur ráðið til sín átta lögmenn í söluteymi félagsins, sem koma frá Króatíu, Finnlandi og Póllandi. Viðskipti innlent 7. ágúst 2026 08:01
Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Tveir norrænir þingmenn sem tilheyra ECR-þingflokknum á Evrópuþinginu eru sakaðir um rasisma í garð sænskrar Evrópuþingkonu. Hótanir um málaferli ganga á víxl. Miðflokkurinn fékk aðild að ECR á sama tíma og flokkar þingmannanna tveggja í vikunni. Erlent 24. júní 2026 10:03
Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rússar hafa á síðustu árum aukið umsvif sín á herstöðvum við landamærin að Norðurlöndum og Eystrasaltsríkjunum. Loftmyndir sýna hvernig gróður hefur vikið fyrir hervirkjum á sama tíma og umferð herbíla hefur aukist á svæðunum. Erlent 10. júní 2026 11:16
Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi. Erlent 5. júní 2026 18:36
Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Sautján ára ökumenn þurfa að merkja bíla sína og þeim verður bannað að aka á nóttunni samkvæmt nýjum reglum sem taka gildi í Finnlandi um helgina. Markmiðið er sagt að fækka umferðarslysum ungra ökumanna. Erlent 28. maí 2026 10:43