Erlent

Trump hafi nú engu að tapa

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Eiríkur Bergmann er prófessor í stjórnmálafræði.
Eiríkur Bergmann er prófessor í stjórnmálafræði. Vísir/Anton Brink

Prófessor í stjórnmálafræði segir niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum frekar afhroð Repúblikana í stað sigurs Demókrata. Ákveðið frost gæti verið fram undan á þinginu. Bandaríkjaforseti hafi nú engu að tapa.

„Þetta er aðeins meiri sigur Demókrata en menn gerðu ráð fyrir. Það stefndi flest í þessa átt og kannanir voru búnar að sýna þetta en ég held að óvissan hafi verið í því að kannanir hafa haft rangt fyrir sér áður,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, sem ræddi niðurstöður kosninganna í Bítinu á Bylgjunni.

Á þessari stundu er Demókrataflokkurinn talinn hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins en enn er ekki búið að telja öll atkvæðin. 

„Þetta er algjört afhroð Repúblikana. Miklu frekar en sigur Demókrata,“ segir Eiríkur.

Ræður enn utanríkismálum

Donald Trump Bandaríkjaforseti var áberandi í kosningabaráttunni þrátt fyrir að vinsældir hans mælist í sögulegu lágmarki meðal flokksmanna Repúblikanaflokksins. Hann lofaði oft að ef að Repúblikanar myndu sigra báðar deildirnar fengju allir Bandaríkjamenn fimm þúsund Bandaríkjadali.

Eftir að niðurstöðurnar urðu að mestu ljósar segir Eiríkur að nú hafi Trump engu að tapa.

„Hann hafði þessum kosningum að tapa en héðan í frá hefur hann engu að tapa. Hann á ekkert undir pólitískt, hann getur ekki boðið sig fram aftur og það eru ekki aðrar kosningar svo að því leytinu til eru engin bönd sem halda honum í þeim efnum.“

Hingað til hafi Trump stjórnað landinu að mestu með tilskipunum og farið langt fram hjá þinginu. Eiríkur telur að hann muni halda því áfram og gefa í en þingið geti þó haldið honum í skefjum þegar kemur að innanríkismálum. Trump hafi þó enn mikil völd þegar kemur að utanríkismálum.

„Það er ekkert sem takmarkar möguleika hans á að hreyfa sig utanlands. Þá getur vel verið að fókusinn færist þangað,“ segir hann.

„Það sem er stórmerkilegt við niðurstöður þessara kosninga er að það er viðbragð Íran að loka Hormússundi sem skilar þessu. Það viðbragð við árásunum hækkar eldsneytisverð í Bandaríkjunum og það er algjörlega kristalskýrt að það eru þessar verðlagshækkanir og þessi aðþrenging sem skila þessari niðurstöðu.“

Einnig hafi tollar sem forsetinn hefur sett á einnig haft töluverð áhrif á matvælaverð sem leiðir til eins konar lífskjarakrísu vestanhafs.

Áhugaverðar niðurstöður

Eiríkur telur að nú gæti verið frost fram undan í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að þingið nái lögum í gegnum báðar deildirnar enda þau á borði forsetans til staðfestingar. Sömuleiðis mun þingið ekki taka í gegn beiðnir forsetans.

„Það er fátt sem demókratar með meirihluta í deildum þingsins geta gert upp á eigin spýtur,“ segir Eiríkur.

Kosningarnar hafi samt sem áður leitt í ljós nokkrar áhugaverðar niðurstöður.

„Fyrsti músliminn í Michigan, fyrstu svörtu konuna í öldungadeildarsæti, það er ýmislegt sem virðist vera áhugavert við þessar niðurstöður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×