Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Air Atlanta hefur dregið gríðarlega úr umsvifum sínum í Sádíu-Arabíu undanfarna mánuði að sögn framkvæmdastjóra vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Hann segir félagið fylgjast grannt með stöðunni í landinu eftir mannskæðar eldflaugaárásir Húta sem beinst hafa gegn flugvöllum í landinu. Innlent 13.10.2026 17:13
Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Hútar vara ferðalanga og flugfélög við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu í fyrstu yfirlýsingu sinni eftir mannskæða árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad höfuðborg Sádí-Arabíu í gær þar sem tólf létust og 309 manns særðust. Um er að ræða þriðju árásina á sádí-arabíska flugvelli í vikunni. Erlent 11.10.2026 10:55
Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Tólf eru látin eftir árás á alþjóðaflugvöllinn í Ríad, höfuðborg Sádi-Arabíu, og á fjórða hundrað særðust. Öllu flugi hefur verið beint annað og starfsemi vallarins tímabundið lögð niður. Hútar eru sagði ábyrgir fyrir árásinni. Erlent 10.10.2026 23:59
Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Ráðamenn í Kína hafa sent skilaboð til ráðamanna í Íran og beðið klerkastjórnina um hjálp við að halda aftur af Hútum í Jemen. Það er eftir að ríkisstjórn Sádi-Arabíu, sem selur talsvert af olíu til Kína, bað Kínverja um aðstoð. Árásir Húta á olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og lokun sunnanverðs Rauðahafs fyrir siglingum Sáda hafa komið verulega niður á getu konungsríkisins til að flytja olíu úr landi. Erlent 18. september 2026 10:01
Hútar skutu niður herþotu Sáda Hútar í Jemen segjast hafa skotið niður herþotu frá Sádi-Arabíu í dag. Þá segjast þeir einnig hafa gert umfangsmiklar árásir á olíuinnviði í Sádi-Arabíu á sama tíma og Sádar hafa látið sprengjum rigna yfir Húta. Erlent 16. september 2026 15:38
Sádar í slæmri stöðu en Trump kennir Selenskí um Mohammed bin Salman, krónprins Sádi-Arabíu, fundaði í morgun með Brad Cooper, aðmírál og yfirmanni yfirstjórnar herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum (Centcom). Prinsinn hefur á undanförnum dögum farið fram á við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, að Bandaríkjamenn aðstoði Sáda með árásum á Húta í Jemen. Því hefur Trump hafnað. Erlent 14. september 2026 11:17
Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni Sádi-Arabar hafa lokað einni mikilvægustu olíuleiðslu landsins eftir drónaárásir sem Írakar eru taldir bera ábyrgð á. Atvikið er nýjasta dæmið um útbreiðslu átakanna fyrir botni Persaflóa og setja aukinn þrýsting á alþjóðlegar olíuflutningaleiðir. Erlent 12. september 2026 14:01
Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Verð hráolíu hefur rokið upp í dag vegna áhyggja af enn frekari truflunum á flutningsleiðum olíu um heiminn, sem rekja má til aukinna og harðnandi átaka í Jemen. Hútar tóku í dag mikilvægan strandbæ við Rauðahaf sem mun gera þeim mun auðveldara að gera árásir á olíuflutningaskip á Rauðahafi. Erlent 10. september 2026 16:35
Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Erindrekar frá Pakistan komu í dag viðvörun á framfæri við ráðamenn í Íran. Klerkastjórnin var beðin um að koma böndum á Húta eftir umfangsmiklar árásir þeirra á Sádi-Arabíu, ellegar væri hætta á því að átök á svæðinu gætu stigmagnast verulega. Erlent 9. september 2026 23:21
Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Hútar skutu í nótt tugum dróna og eldflauga að fjórum borgum í Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árásirnar og ollu þær meðal annars skemmdum á olíuvinnsluinnviðum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu heita umfangsmiklum viðbrögðum en átök hafa harðnað í Jemen að undanförnu. Erlent 8. september 2026 20:50
Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Útlit er fyrir að sómalskir sjóræningjar séu aftur byrjaðir að láta til sín taka á Adenflóa og Rauðahafi, eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara um árabil. Fyrr í vikunni réðust sjóræningjar um borð í tyrkneskt skip sem var meðal annars að flytja vopn og sigldu því til Sómalíu. Erlent 20. ágúst 2026 16:14
Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Donald Trump segir að ef Hútar haldi áfram árásum á olíuflutningaskip á Rauðahafi muni hann draga bæði Írani og Húta til ábyrgðar. Árásir verði gerðar á bæði ríki. Forsetinn bandaríski segist verulega vonsvikinn með leiðtoga Húta, sem hafi hagað sér skynsamlega hingað til vegna stríðs Bandaríkjamanna gegn Íran. Erlent 23. júlí 2026 12:54
Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Olíuverð hefur haldið áfram að hækka í dag, samhliða aukinni útbreiðslu átaka í Mið-Austurlöndum og hafa fjárfestar áhyggjur af flæði olíu og jarðgass frá svæðinu. Hútar í Jemen hafa hótað því að loka Rauðahafi fyrir siglingum flutningaskipa og segjast hafa gert árás á tvö olíuflutningaskip frá Sádi-Arabíu. Viðskipti erlent 23. júlí 2026 10:26
Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Uppreisnarmenn Húta í Jemen, sem ráða stórum hluta landsins, segjast hafa ráðist á tvö olíuskip frá Sádí Arabíu á Rauða hafinu í nótt. Sádíarabísk yfirvöld hafa staðfest árás á annað skipanna en ekki á hitt og enn er óljóst hvort Hútar hafi í raun verið þar að baki. Engan mun hafa sakað. Erlent 23. júlí 2026 07:18
Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Bandaríkjamenn gerðu árásir á Íran í nótt, þá tíundu í röð síðan vopnahlé landanna tveggja fór út um þúfur. Íranir gerðu síðan árás á olíuskip á Hormússundi í morgun og skemmdu það þannig að áhöfnin þurfti að yfirgefa skipið. Erlent 21. júlí 2026 08:25
Báðir segjast hættir, í bili Útlit er fyrir að átökunum milli Ísrael og Íran, sem blossuðu upp á nýjan leik í gærkvöldi, sé lokið eða í það minnsta í bili. Ráðamenn í báðum ríkjum segjast hættir árásum en halda möguleikanum á því að hefja þær að nýju opnum. Erlent 8. júní 2026 13:34
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. Erlent 28. mars 2026 23:41
Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Hútar frá Jemen sendu flugskeyti í átt að Ísrael í morgun en þetta er fyrsta árás þeirra eftir að átök milli Bandaríkjanna, Ísraela og Írana hófst. Erlent 28. mars 2026 10:02
Sádar sprengja hergögn frá furstadæmunum í Jemen og hóta frekari árásum Her Sádi-Arabíu gerði í morgun loftárásir á höfnina í Mukalla í Jemen sem sagðar eru hafa beinst að vopnasendingum frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu vöruðu í kjölfarið furstadæmin við því að aðgerðir þeirra og stuðningur við vopnaðan hóp sem kallast STC væri einkar hættulegur. Erlent 30. desember 2025 09:41
Ógnaði öryggi hermanna með Signal-spjalli Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ógnaði öryggi hermanna með því að ræða yfirvofandi hernaðaraðgerðir gegn Hútum í Jemen. Það gerði hann í einkasíma sínum gegnum samskiptaforritið Signal, en blaðamaður var í einum hópnum sem Hegseth var í og var honum bætt í hópinn fyrir mistök. Erlent 4. desember 2025 21:32
Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Leiðtogar Húta í Jemen hafa gefið til kynna að þeir séu hættir árásum á bæði Ísrael og fraktskip á Rauðahafi. Er það vegna óstöðugs vopnahlés á Gasaströndinni, samkvæmt bréfi sem Qassam stórfylkin, hernaðarvængur Hamas, birti nýverið. Erlent 11. nóvember 2025 14:56
Hútar réðust inn til Sameinuðu þjóðanna og tóku ellefu starfsmenn í hald Uppreisnarmenn Húta í Jemen réðust í dag inn í starfsstöðvar Sameinuðu þjóðanna í höfuðborg landsins og tóku ellefu starfsmenn í hald. Þetta gerist í framhaldi af því að Ísraelsmenn felldu forsætisráðherra ríkisstjórnar Húta, Ahmed Ghaleb Nasser al-Rahawi al-Yafei, í loftárás á Sanaa á fimmtudag. Innlent 31. ágúst 2025 22:54
Felldu talsmann hernaðararms Hamas Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að Abu Obeida, talsmaður al-Qassam-sveita Hamas-samtakanna, hafi verið felldur í loftárás í gær. Heilbrigðisstarfsmenn á Gasaströndinni segja að minnsta kosti 43 Palestínumenn liggja í valnum frá því í gær. Flestir þeirra í Gasaborg, sem Ísraelar hafa lýst yfir að sé nú átakasvæði. Erlent 31. ágúst 2025 14:04