Tætir í sig „siðferðislega óréttlætanlega“ ákvörðun Formúlu 1 Utanríkisráðherra Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó segir ákvörðun Formúlu 1 að koma á laggirnar keppni í mótaröðinni í Rúanda siðferðislega óréttlætanlega. Formúla 1 16.10.2026 11:31
Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Málaliðar á vegum Erik Prince, stofnanda málaliðafyrirtækisins Blackwater, lentu í umsátri í Austur-Kongó í síðasta mánuði. Að minnsta kosti tuttugu málaliðar og hermenn féllu eða særðust í umsátrinu og þar á meðal maður sem barðist í UFC. Erlent 14.10.2026 21:31
Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Enn er ekkert lát á útbreiðslu ebólu í Austur-Kongó en skortur er á heilbrigðisstarfsfólki til að takast á við veiruna. Veiran hefur nú greinst í sjö héruðum landsins og fer tilfellum fækkandi í einhverjum þeirra en ástandið er verst í austurhluta landsins þar sem tilfellum hefur fjölgað um 73 prósent á þremur vikum. Erlent 24.9.2026 10:22
Mótmæltu flutningi á ebólusmituðum Bandaríkjamönnum til Kenía Hundruð ungmenna mótmæltu fyrir utan bandaríska herstöð í bænum Nanyuki í morgun. Þar hafa Bandaríkjamenn sett upp einangrunarmiðstöð fyrir bandaríska ríkisborgara sem eru smitaðir af ebólu eða gætu hafa smitast. Hæstiréttur Keníu komst nýverið að þeirri niðurstöðu að miðstöðin mætti ekki vera þar í landi. Erlent 1. júní 2026 13:00
Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Árásir á heilbrigðisstarfsmenn og sjálfboðaliða í Austur-Kongó hafa gert störf þeirra hættulegri og erfiðari. Tortryggnir og óttaslegnir íbúar hafa kastað grjóti í sjálfboðaliða sem reyna að vekja athygli á faraldri ebólu sem lýst hefur yfir á svæðinu og þá stafar þeim einnig ógn af víga- og glæpahópum sem hafa myrt þúsundir og stökkt gífurlegum fjölda á flótta á undanförnum árum. Erlent 26. maí 2026 11:30
Skikkaðir í einangrun fram að HM Landsliðsmenn Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó þurfa að einangra sig fram að fyrsta leik liðsins á HM í fótbolta vegna ebólu í ríkinu. Þetta segir Andrew Giuliani, yfirmaður starfshóps Hvíta hússins sem sér um komandi heimsmeistaramót. Fótbolti 23. maí 2026 14:02
Hættir við æfingabúðir af ótta við ebólu Landslið Austur-Kongó hefur hætt við fyrirhugaðar æfingabúðir af ótta við ebólusmit en mikill faraldur geysar þar í landi. Fótbolti 20. maí 2026 22:37
Nýr ebólufaraldur í Austur-Kongó Nýr ebólufaraldur hefur greinst í Austur-Kongó. Að minnsta kosti 65 eru látnir en að minnsta kosti 246 eru smitaðir. Veikin hefur greinst í dreifingu í Ituri-héraði í Austur-Kongó og þá aðallega í tveimur bæjum við stórar gullnámur. Erlent 15. maí 2026 15:52
Lifandi styttan í stúkunni grét í leikslok Ævintýri Kongó á Afríkumótinu í fótbolta lauk í gærkvöldi og þar með lauk aðkomu nú hins heimsfræga Michel Kuka Mboladinga að mótinu. Sport 7. janúar 2026 14:13
Stuðningsmaður stendur heilu leikina eins og stytta Stuðningsmaður Austur-Kongó hefur slegið í gegn á Afríkumótinu í fótbolta fyrir ótrúlega þrautseigju. Maðurinn stendur eins og stytta í heilan fótboltaleik, til heiðurs Patrice Lumumba, sjálfstæðishetju þjóðarinnar. Fótbolti 31. desember 2025 11:04
Nígeríumenn halda HM-draumnum á lífi með kvörtun til FIFA Nígeríumenn vonast til að endurvekja vonir sínar um að komast á HM karla í fótbolta 2026 með kvörtun til FIFA vegna ólöglegra leikmanna Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó í umspilsleik þeirra í síðasta mánuði. Fótbolti 17. desember 2025 12:01
„Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur ítrekað haldið því fram að hann eigi friðarverðlaun Nóbels skilið, enda hafi hann bundið enda á eða komið í veg fyrir sex stríð. Stundum sjö. Hvaða stríð það eru sem hann er að tala um er þó ekki öllum ljóst. Erlent 20. ágúst 2025 13:01
Yfir 50 látist af völdum óþekktra veikinda í Austur-Kongó Fleiri en 50 hafa látist af völdum óþekktra veikinda í norðvesturhluta Austur-Kongó. Veikindanna varð fyrst vart hjá þremur börnum sem höfðu borðað dauða leðurblöku. Erlent 26. febrúar 2025 07:54
Vara við fordæmalausu kynferðisofbeldi gegn börnum Hermenn Austur-Kongó og aðrar sveitir sem styðja herinn hafa hörfað frá flugvelli skammt frá borginni Bukavu í austurhluta Austur-Kongó. Uppreisnarmenn M23 hafa tekið flugvöllinn og útlit er fyrir að þeir stefni á árásir á Bukavo, sem yrði önnur stóra borgin á svæðinu til að falla í hendur þeirra. Erlent 14. febrúar 2025 15:28
Óttast að átök verði að stóru stríði Uppreisnarmenn M23 hafa hótað því að gera árás á borgina Bukavu, höfuðborg Suður-Kivu héraðs í Austur-Kongó. Óttast er að átökin milli hersins og uppreisnarmannanna, sem njóta stuðnings Rúanda, muni leiða til umfangsmikils stríðs. Erlent 11. febrúar 2025 17:09
Götubörn útsett fyrir kynferðisofbeldi: „Það er engin miskunn“ Ástandið í Goma í Austur-Kongó er verulega slæmt eftir að borgin féll á dögunum í hendur uppreisnarmanna en þar hafa tugir þúsunda barna búið á götum borgarinnar. Kynferðisofbeldi er algengt en konur og kannski sérstaklega börn eru gífurlega berskjölduð fyrir því. Erlent 7. febrúar 2025 14:44
Hundruðum kvenfanga nauðgað og þær brenndar lifandi Hundruðum kvenfanga var nauðgað og þær brenndar lifandi í borginni Goma í Austur-Kongó, eftir að hún féll í hendur uppreisnarmanna M23 og hers Rúanda í síðustu viku. Þegar fangelsi borgarinnar féll sluppu þaðan þúsundir manna en ráðist var á þann væng fangelsisins þar sem konunum var haldið. Erlent 5. febrúar 2025 16:52
Fjöldi rúmenskra málaliða gafst upp í Rúanda Uppreisnarmenn sem lögðu á dögunum undir sig eina stærstu borg Austur-Kongó sækja nú fram að annarri borg. Meðlimir M23, sem njóta stuðnings frá yfirvöldum í Rúanda, eru nú á leið til suðurs frá borginni Goma í átt að Bukavu, sem er höfuðborg Suður-Kivu héraðs. Erlent 29. janúar 2025 18:24
Ein stærsta borg Austur-Kongó í höndum uppreisnarmanna Þúsundir íbúa einnar stærstu borgar Austur-Kongó og nærliggjandi byggða hafa flúið heimili sín eftir að uppreisnarmenn, studdir af yfirvöldum í Rúanda, tóku hana. Leiðtogar uppreisnarhópsins M23 segja Goma hafa fallið í nótt en það er höfuðborg héraðs sem kallast Norður-Kivu. Erlent 27. janúar 2025 18:04
Þrír Kínverjar gripnir í Kongó með tólf gullstangir og gríðarlegar fjárhæðir Þrír kínverskir ríkisborgar voru handteknir með tólf gullstangir og 800 þúsund Bandaríkjadali (um 113 milljónir íslenskra króna) í seðlum í Austur-Kongó. Erlent 5. janúar 2025 22:01
Rúmlega hundrað köfnuðu eða krömdust við flóttatilraun Yfirvöld í Austur-Kongó segja að minnst 129 fangar hafi látið lífið við að reyna að strjúka úr fangelsi í Kinshasa, höfuðborg landsins, á aðfaranótt sunnudags. Minnst 59 eru sagðir slasaðir og segjast yfirvöld hafa náð tökum á ástandinu. Erlent 3. september 2024 11:22
Apabóla greinist í Svíþjóð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lýst yfir neyðarástandi vegna útbreiðslu apabólu. Sjúkdómurinn hefur breiðst hratt út í Afriku og fyrsta tilfellið þar fyrir utan greindist í dag í Svíþjóð. Erlent 15. ágúst 2024 20:05
Gleymdu börnin Mikið öngþveiti er í litlu sveitaþorpi í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þegar ég keyri í gegnum þorpið. Bílstjórinn minn hægir á bílnum og leggur við hlustir. ,,Hann stal barni!“ hrópar maður og bendir á mótorhjól sem þýtur úr þorpinu. Mér er sagt að þetta sé því miður daglegt vandamál á þessu svæði. Skoðun 17. apríl 2024 14:01
Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“ Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega. Erlent 21. febrúar 2024 13:33