Fleiri fréttir

Dæmdur fyrir að ofsækja Tyru Banks

Tæplega fertugur karlmaður frá Georgíufylki í Bandaríkjunum var í dag dæmdur fyrir ofsækja súpermódelið Tyru Banks. Maðurinn, sem heitir Brady Green hafði fullyrt við lögregluna að hann og Tyra ættu í ástarsambandi. Lögreglan taldi skýringar hans ekki trúanlegar enda hafði Tyra sagt að hún væri hrædd við hann. Maðurinn gæti átt fyri höfði sér allt að níutíu daga fangelsi en refsing mannsins verður ekki ákveðin fyrr en 18. júní.

Ingó í IDOL - myndir

„Þetta kemur aldrei almennilega í ljós fyrr en þetta er búið," svarar Ingó söngvari aðspurður um keppendurna sem standa eftir í Idol stjörnuleit en hann var gestur þáttarins síðasta föstudag. „Það er alltaf erfiðara að koma fram í þáttunum en raunveruleikanum. Það kemur allt í ljós með þessa krakka seinna því þau eiga öll möguleika á að gera eitthvað í sínum tónlistarferli - ef þau hafa áhuga," segir Ingó og bætir við: „Þetta er hörkuvinna." Meðfylgjandi má sjá myndir sem teknar voru í Smáralind síðasta föstudag.

Top Gun gyðja er lesbía

Leikkonan Kelly McGillis, 51 árs, hefur staðfest að hún er lesbía. Kelly, sem hlaut heimsfrægð þegar hún lék á móti Tom Cruise í kvikmyndinni Top Gun, hefur undanfarin ár verið á síðum slúðurmiðla þar sem því var oftar en ekki haldið fram að hún væri samkynhneigð. Kelly kom út úr skápnum og játaði kynhneigð sína á vefsíðunni SheWired.com.

Penn sækir um skilnað

Sean Penn hefur óskað eftir skilnaði frá eiginkonu sinni til þrettán ára, Robin Wright Penn. Þetta er í annað sinn á tveimur árum sem parið fer þessa leið en að þessu sinni virðist leikaranum vera full alvara. Hann ku hafa lagt inn beiðni til dómsyfirvalda og er því málið komið í þar til gerðan farveg.

Scarlett með bestu brjóstin

Menn finna sér ýmislegt til dundurs á tímum svína-flensu og efnahagshruns. Sjónvarpsþátturinn Access Hollywood efndi nýlega til könnunar um hvaða Hollywood-stjarna skartaði myndarlegasta barminum.

Innhverf íhugun Lynch til bjargar Íslandi í kreppu

Lynch hefur að eigin sögn stundað innhverfa íhugun frá árinu 1973. Á síðari árum hefur hann einbeitt sér að því að kynna þessa hugleiðslutækni fyrir öllum heiminum, flogið heimshornanna á milli og flutt fagnaðarerindið. Heimildarmynd um ferðir hans er í vinnslu og hann útilokar ekki að Íslandsheimsóknin rati þar inn.

Fótboltakappi gerist rappari

Fótboltakappinn Daníel Hjaltason stígur fram á sjónarsviðið sem rappari í fyrsta sinn á föstudagskvöld þegar haldnir verða tónleikar á Sódómu Reykjavík undir yfirskriftinni „Verkalýðs-Hiphop“.

Nostalgía fyrir Britpoppara

Britpop-aðdáendur geta merkt við 8. júní á dagatölunum sínum og farið að hlakka til. Þá verður gefinn út þriggja diska safndiskur, Common People. The Britpop Story, með flestum af þekktustu hljómsveitum þessa eftirminnilega tímabils.

Hundraðasta myndin í bígerð

Hasarhetjan Jackie Chan er með sína hundruðustu kvikmynd í bígerð. Myndin nefnist Chinese Zodiac og ætlar Chan að leikstýra henni ásamt Stanley Tong, sem leikstýrði honum á sínum tíma í Rumble in the Bronx. Chan, sem er 55 ára, er þessa dagana að ljúka við Hollywood-myndina The Spy Next Door, þar sem Magnús Scheving leikur á móti honum, og einnig hina kínversku Big Soldier. Eftir að framleiðslu þeirra lýkur er röðin komin að Chinese Zodiac, sem verður tekin upp í Kína, Austurríki og í Frakklandi. Chan hefur einnig verið í viðræðum um að leika Hr. Miyagi í endurgerð The Karate Kid frá árinu 1984.

Íslendingar í borg englanna

Margt var um manninn í kynningarpartíi fyrir íslenska tónlist sem var haldið í Los Angeles á dögunum. Partíið þótti heppnast einkar vel og mynduðust góð tengsl sem vafalítið eiga eftir að nýtast vel í framtíðinni. Um kokkteilboð var að ræða sem var ætlað að koma íslenskri tónlist að í bandarískum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Gestgjafi var Lanette Phillips, sem var viðstödd ráðstefnuna You Are In Control í Reykjavík síðasta haust.

Högni með nýja plötu

Færeyski tónlistarmaðurinn Högni Lisberg hefur gefið út plötuna Haré! Haré!. Platan hefur fengið mikið lof í færeyskum og dönskum fjölmiðlum og þykir hann hafa fundið sinn tón með þessari þriðju plötu sinni.

Eiga von á tvíburum

Sarah Jessica Parker, stjarna Beðmála í borginni, á von á tvíburum með manni sínum, Matthew Broderick. Leikkonan, sem er 44 ára, gengur þó ekki sjálf með börnin tvö heldur leigumóðir. Parker og Broderick eiga saman sex ára gamlan strák og hafa mikið reynt að fjölga mannkyninu en með litlum árangri.

Kynþokkafullur úlfamaður

Ástralski hjartaknúsarinn Hugh Jackman leikur aðalhlutverkið í hasar-myndinni X-Men Origins: Wolverine sem er nýkomin í bíó.

Gervais í Flanimals

Þrívíddarteiknimyndin Flanimals, sem er byggð á barnabókum grínistans Ricky Gervais, er í undirbúningi. Gervais mun einnig tala fyrir aðalpersónuna. Handritshöfundur verður Matt Selman sem hefur skrifað fyrir The Simpsons-þættina.

Creed snýr aftur

Einhver umdeildasta hljómsveit síðari tíma, Creed, hefur ákveðið að koma saman aftur eftir fimm ára hlé. Creed hefur alltaf átt sér sterkan aðdáendahóp, þar á meðal hér á landi, en óhætt er að fullyrða að jafn stór hópur teljist vart til aðdáenda. Sumir ganga meira að segja svo langt að lýsa yfir hreinu hatri á Creed.

Umdeildur Iggy Pop

Rokkarinn Iggy Pop hefur alltaf verið á milli tannanna á fólki og jafnan vakið deilur. Nú er hann enn og aftur kominn í fréttirnar en að þessu sinni af óvenjulegu tilefni. Iggy birtist fyrr á þessu ári, öllum að óvörum, sem andlit auglýsingaherferðar breska tryggingafyrirtækisins SwiftCover.com.

Ennþá ferskir eftir öll þessi ár

Það er engan bilbug að finna á ensku þremenningunum í Depeche Mode, en á dögunum sendu þeir frá sér sína tólftu hljóðversplötu, Sounds of the Universe. Trausti Júlíusson tékkaði á þessu lífseiga rafpoppbandi.

Nýtt frá Wilco

Sjöunda plata hljómsveitarinnar Wilco er væntanleg í búðir í lok júní. Platan kallast einfaldlega „Wilco (The Album)“ og á henni verða ellefu lög, þar á meðal „Wilco (The Song)“. Söngkonan Feist syngur í einu lagi plötunnar.

Leggjalöng Le Bon - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá 19 ára Amber Le Bon í stuttum Moschino satín kjól. Amber, sem er dóttir Simon Le Bon, 49 ára, söngvara Duran Duran og ofurfyrirsætunnar Yasmin Le Bon, 43 ára, á ekki langt að sækja langa leggina. Ef myndirnar af mæðgunum sem teknar voru Chanel tískusýningu árið 1991 og síðasta mánudag má greinilega sjá hvað hún líkist móður sinni.

Ella Dís fær loksins hjálp frá ríkinu

Vísir hafði samband við mömmu Ellu Dísar, Rögnu Erlendsdóttur, og nýtt stuðningsforeldri Ellu Dísar, Sylvíu Rún Idolkeppanda sem féll úr keppninni síðasta föstudag. „Við erum loksins búin að fá í gegn hjálp frá ríkinu að fá borgað fyrir starfsmann. Þetta var algjör hausverkur eins og allt sem kemur að ríkishjálp,“ segir Ragna þakklát fyrir styrkinn. „Þetta er bara æðislegt. Sylvía Rún kemur um hádegið og er að hjálpa mér að hafa ofan af fyrir Ellu Dís. Hún syngur og les fyrir hana og sér til þess að munnurinn og kokið fylllist ekki af slími því Ella Dís getur ekki andað. Hún notast enn við öndurnaraðstöðu," segir Ragnar. Sylvía hjálpar mikið „Svo þarf að hreyfa hana og þetta er bara almenn umönnun því Ella Dís getur ekki hreyft sig. Sylvía hjálpar mér við að hafa ofan af fyrir henni gefa henni næringu og skipta á henni. Það sem þarf að gera á hverjum degi,“ segir Ragna sem eignaðist aðra stúlku 18. febrúar síðastliðinn. „Ég eignaðist litla stelpu 18. febrúar. Hún heitir Mia. Það gengur mjög vel. Brjálað að gera. Þess vegna þurfti ég að leita að aðstoðarmanneskju. „Sylvía er alveg rosalega dugleg. Það var líka æðislegt að þekkja hana fyrir en við erum báðar frá Grundarfirði." Sá auglýst eftir hjálp fyrir Ellu Dís „Ég sá auglýsingu á job.is og hafði samband við Rögnu. Það gengur mjög vel og Ella Dís hefur það bara ágætt,“ svara Sylvía aðspurð hvernig það kom til að hún gerðist stuðningsforeldri Ellu Dísar. „Ég er félagsskapur fyrir Ellu. Ég syng fyrir hana og aðstoða hana að fara upp í rúm og þess háttar. Annars er ég stuðningsfulltrúi með annan strák eina helgi í mánuði. Hann er ekki mikið veikur eins og Ella Dís,“ segir Sylvía sem er barnlaus. Idolið „Það er skrýtið að vera dottin út og líka af því að ég hef fengið gott fídbakk eins og: „Þú átti ekki eftir að detta út!" - þessi fílingur. En ég ætla ekki að hætta að syngja. Ekki séns," segir Sylvía áður en kvatt er.

Aldrei fleiri sköllóttir á þingi

Enginn sköllóttur datt út af þingi í kjölfar kosninga en bættist hins vegar góður liðsauki: Þráinn Bertelsson (O), Þór Saari (O) og Tryggvi Þór Herbertsson (D). Fyrir voru þeir Kristján Möller (S), Jón Bjarnason (Vg), Atli Gíslason (Vg) og Steingrímur J. Sigfússon (Vg). Þessi staðreynd leggst ákaflega vel í förðunarfræðing fræga fólksins, Karl Berndsen, sem sjálfur er sköllóttur og er með sérstakan tískuþátt á Skjáeinum. Fréttablaðið bað hann um að rýna með sér í táknmál tískunnar og Karl segir þetta fyrst og fremst tákn um karlmennsku.

Grey"s-stjarna í íslensku boði

Eric Dane, sem leikur Dr. Mark Sloan í læknaþáttunum Grey"s Anatomy, var á meðal 250 gesta í kynningarpartíi fyrir íslenska tónlist sem var haldið í Los Angeles um síðustu helgi. Um kokkteilboð var að ræða sem fór fram á heimili Lanette Phillips, eins virtasta framleiðanda tónlistarmyndbanda í heiminum, sem sótti tónlistarráðstefnuna You Are In Control í Reykjavík í fyrra.

Óður Stuðmanna um Rúna Júl

Stuðmenn hafa verið í hljóðveri til að taka upp óð um sjálfan Rúnar Júlíusson eftir Valgeir Guðjónsson. Um leið kynna þeir til sögunnar nýja framlínu sem er samanlagt 36 ára miðað við 110 ára aldur áður.

Gerði grín að veikindunum

Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Jay Leno hefur snúið aftur í þátt sinn, Tonight Show, eftir nokkurra daga kvef. Að sjálfsögðu gerði hann grín að veikindunum eins og hans er von og vísa.

Syngur Jackson-lag

Alan Jones, sem keppti í X-Factor hér um árið, er að undirbúa sína fyrstu plötu sem er væntanleg fyrir jól. Hann hefur að undanförnu tekið upp lög með bræðrunum Berki og Daða sem áður voru í Jagúar og samstarf með lagahöfundinum Örlygi Smára er einnig að hefjast. Saman ætla þeir að taka upp eigin útgáfu af Michael Jackson-lagi sem kemur út í júní.

Svínaflensa tefur frumsýningu X-Men

Frumsýningu hasarmyndarinnar X-Men Origins: Wolverine hefur verið frestað í Mexíkó vegna svínaflensunnar. Flest kvikmyndahús í landinu eru lokuð vegna flensunnar og óvíst er hvenær þau verða opnuð á nýjan leik.

Spila á heimagerð hljóðfæri

„Þetta er án efa eitt athyglisverðasta band á Norðurlöndunum í dag,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir hjá Norræna húsinu um færeysku hljómsveitina Orku sem er nýkomin til landsins.

Nýtt lag og tónleikar

Rokksveitin Dead Sea Apple hefur sent frá sér lagið I Want You Back. Ekki er um að ræða endurgerð á hinu fornfræga lagi Jackson Five heldur glænýtt lag sem var hljóðritað í tilefni þess að fimmtán ár eru liðin síðan sveitin gaf út sitt fyrsta lag á safnplötunni Ýkt böst.

Hundraðasti Lost-þátturinn

Hundraðasti sjónvarpsþátturinn í hinni dularfullu Lost-seríu verður sýndur í Bandaríkjunum í kvöld. Framleiðandinn Damon Lindelof, einn af höfundum Lost, segist ennþá vera undrandi yfir langlífi þáttanna. Hann átti sannarlega ekki von á þessum vinsældum þegar hann kynnti hugmyndina fyrir stjórnendum ABC-sjónvarpsstöðvarinnar fyrir fjórum árum.

Upplífgandi í kreppunni

Sextett Ólafs Gauks með Svanhildi Jakobsdóttur og Kristjáni Kristjánssyni, KK, heldur tónleika í Fríkirkjunni á fimmtudagskvöld klukkan 21. Síðustu tónleikar þeirra voru einmitt í Fríkirkjunni á Vetrarhátíð í Reykjavík í febrúar þar sem 700 manns skemmtu sér konunglega.

Idolstjarna í detox hjá Jónínu Ben

Idolstjarna Norðmanna, Åste Hunnes Sem, er væntanleg ásamt 15 manna liði í detoxmeðferð í nýrri detoxmistöð Jónínu Benediktsdóttur á Reykjanesi 13. júlí næstkomandi. Hópurinn fer í fulla detoxmeðferð og Norska sjónvarpið tekur upp þátt sem sýndur verður í norska sjónvarpinu í haust um detox meðferð Jónínu. Fjallað verður um árangur Idolstjörnunnar og af hverju Ísland er heppilegur staður fyrir slíka meðferð. „Þetta kom til að það voru norskir blaðamenn að taka viðtal við mig út af bannkahruninu. Blaðamaðurinn er vinur þekkts sjónvarpsmanns í Noregi sem er með vinsælan skemmtiþátt þar í landi og hnn var svo hrifinn af hugmyndinni og bauðst til að hjálpa mér að koma þessu á framfæri í Noregi," svarar Jónína aðspurð hvernig það kom til að norska Idolstjarnan er vætnaleg. „Við ætlum að fara með sjónvarpsfólkinu upp á Mývatn og sýna þeim hvað við höfum upp á að bjóða yfir vetrartímann," segir Jónina. „Það er búið að vera fullt í allar detox meðferðirnar í vetur. Um 50 manns í hverri meðferð. Við erum farin að fá útlendinga," svarar Jónina aðspurð hvernig detoxstarfsemin gengur. „Við opnum á Reykjanesi 23. mmaí heilsárshótel með 50 deluxe- herbergjum."

Túrtappi Britney - myndband

Á meðfylgjandi myndbandi má sjá Britney Spears dansa á Circus-tónleikum í Anaheim fyrir viku. Dansarann Chase Benz, 21 árs, situr á mótórhjólinu í myndbandinu en slúðurpressan heldur því fram að samband hans við Britney er mjög náið. Það sem vekur sérstaka athygli er túrtappi sem sést greinilega milli læra Britney þegar hún dansar. Sjá túrtappa Britney hér.

Kærastinn með til Moskvu

„Þetta stóð tæpt. Spurning hvort maður kæmist út af prófunum. En ég næ því alveg,“ segir Ólafur Ólafsson – kærasti Eurovision-stjörnunnar Jóhönnu Guðrúnar sem nú undirbýr sig sem sem mest hún má undir Eurovision-keppnina sem fram fer í Moskvu 12. maí.

Anna frumsýnd í Cannes

Stuttmyndin Anna eftir Rúnar Rúnarsson hefur verið valin á Cannes-hátíðina í maí. Þetta er í annað sinn sem Rúnar hlýtur þennan heiður. „Þetta er algjör snilld. Maður safnar í sarpinn og þetta auðveldar manni að fá peninga til að gera það sem maður vill gera,“ segir Rúnar.

Heiðurslaun Þráins vefjast fyrir Borgurum

„Ágæti Mummi (sem ég reyndar var svo óheppinn að sjá aldrei í kosningabaráttunni), Heiða og þið öll. Við skulum sameiginlega hafa eitt á hreinu. Hvort sem ég kemst á þing (vegna útstrikana) eða ekki mun ég ALDREI AFSALA mér heiðurslaunum Alþingis, alveg sama hversu mikil fáfræði ríkir um tilkomu þeirra og eðli (þau eiga ekkert skylt við kúlulán eða prófkjörsstyrki og eru ekki óheiðar-lega fengin),“ skrifar Þráinn Bertelsson á póstlista Borgarahreyfingarinnar (xO).

Beyonce í efsta sætinu

Spennumyndin Obsessed með söngkonunni Beyonce Knowles hlaut mestu aðsóknina vestanhafs um síðustu helgi. Í henni leika þau Knowles og Idris Elba hjón sem lenda í miklum vandræðum þegar geðsjúk kona ofsækir eigin­manninn. Söguþræðinum svipar nokkuð til Fatal Attraction frá níunda áratugnum þegar Glenn Close ofsótti Michael Douglas á eftirminnilegan hátt.

Kvikmyndaþorp úti á Granda

Sannkölluð kvikmyndamiðstöð hefur orðið til í Héðinshúsinu úti á Granda. Fyrir er kvikmyndafyrirtækið Republika og nú stefnir allt í að þrír aðilar í sama geira flytjist þarna inn. Fyrst ber að nefna framleiðslu- og þjónustufyrirtækið True North, eftirvinnslufyrirtækið Postmenn og svo framleiðslufyrirtæki Baltasars Kormáks og Lilju Pálmadóttur, Blue Eyes.

Kristinn með japanska ríkissjónvarpinu

„Þetta gekk alveg ljómandi vel og var bara býsna ánægjulegt,“ segir fréttahaukurinn Kristinn Hrafnsson. Hann var japanska ríkissjónvarpinu innan handar á nýliðinni kosninganótt en fjöldi erlendra blaða- og fréttamanna voru staddir hér á landi til að fylgjast með þessum sögulegu kosningum. Kristinn taldi að rúmlega tíu Íslendingar hefðu verið í svipuðu hlutverki og hann: að aðstoða erlenda blaðamenn og tökulið.

Kreppan stöðvaði Bít-hátíð

„Í þessu myrkurástandi sem hefur verið þá hefur ekki verið stuð í að plana svona mál,“ segir rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson um Bíthátíð sem átti að halda á Eiðum í júní. „Kreppan rúllaði henni. Þetta var komið á góðan rekspöl en svo var bara ákveðið að fresta henni um ár.“

Opnar skóbúð í kreppunni

„Ég var með verslunina Mangó í Keflavík í átta ár sem ég seldi í fyrra og hef verið með þessa bólu í höfðinu að opna skóverslun á netinu með skó á góðu verði," segir Rakel Ársælsdóttir sem opnaði nýverið skóverslunina Desire Boutique á netinu. „Ég fór af stað með þetta í byrjun apríl og það er búið að ganga rosalega vel síðan ég opnaði. Það er greinilega þörf á þessu," segir Rakel. Leyfa íslenskar konur sér að kaup nýja skó í þessu árferði? „Já það má nú alveg segja það. Við viljum ekki hætta að vera sætar og fínar. Mér fannst skór á Íslandi alveg ofboðslega dýrir. Þú fékkst ekki fallega skó undir 20 þúsund." „Það var tækifæri að koma með þetta í kreppunni. Fólk reynir að spara og versla ódýrara," segir Rakel. Skoða skóverslun Rakelar hér: http://www.desire.is

Gillz lét ekki sjá sig

Íslenska mótaröðin í póker hófst um helgina þar sem fjórir einstaklingar unnu pakka á mótaröðina sem haldin verður í haust að verðmæti 30 þúsund krónur. Vísir hafði samband við Hauk Má Böðvarsson sem sigraði keppnina og spurði hvort um harða keppni hafi verið að ræða: „Nei þetta var frekar létt. Ég rúllaði yfir þetta," svarar Haukur. Tók Gillz áskorun ykkar um að mæta? „Nei nei hann mætti ekki. Hann var nýbúinn að drulla eitthvað yfir þetta en hann kom ekki." Æfir þú þig mikið í póker? „Já ég spila mikið. Nei ég er ekki mikið á netinu. Ég spila mest læf." Er hægt að græða á því að spila póker á netinu? „Já já já félagi minn var að taka 60 þúsund dollara í gær. Það eru ágætis peningar í þessu á netinu," segir Haukur áður en kvatt er. Haukur, Arnar Ægisson, Birgir Magnússon og Sigurður Elvar Sigurðsson skiptu verðlaunafénu, 400 þúsund krónum, á milli sín. Ekki náðist í Egil/Gillz við vinnslu fréttarinnar.

Kínverjar mála Íslendinga

Íslensk vefsíða, www.portret.is býður Íslendingum upp á að senda ljósmyndir til Kína og fá til baka máluð olíumálverk eftir kínverska myndlistarmenn.

Hver mínúta skipulögð hjá Eurovision-hópnum

„Ég vinn bara svona, ætli það sé ekki ástæðan fyrir því að ég er enn í þessu djobbi," segir Jónatan Garðarsson, liðstjóri íslenska Eurovision-hópsins. Hópurinn fékk á föstudag yfirlit frá Jónatani hvernig dagskrá hópsins er háttað í Mosvku. Óhætt er hægt að fullyrða að hver einasta mínúta, hvert skref, sé skipulagt. Eiginlega er hvergi autt gat í tímaætluninni sem nær frá klukkan fjögur að morgni sunnudagsins 3.maí til klukkan fjögur síðdegis sunnudagsins 17.maí. Meðal þess sem Jónatan var búinn að setja niður á blað voru matmálstímar og háttatíminn. „Þegar svona mikið gengur á þarf oft að minna fólk á þessa annars sjálfsögðu hluti."

Ungur leikstjóri til Cannes

„Já, ég er bæði spenntur og kvíðinn," segir leikstjórinn Arnar Már Brynjarsson en hann er á leiðinni til Cannes þann 14.maí ásamt félögum sínum, þeim Hlyni Björnssyni og Gunnari Anton Guðmundssyni. Þeir ásamt fjórða manninum, Hirti A. Guðmundssyni, gerðu stuttmyndina HUX sem vann Stuttmyndadaga Reykjavíkur í fyrra. HUX tekur þátt í svokölluðu Short Film Corner sem haldin er í tengslum við hina eiginlegu kvikmyndahátíð en myndin segir frá tvítugum dreng sem reynir að bjarga móðir sinni undan klóm krabbameins.

Sjá næstu 50 fréttir