Kynþokkafullur úlfamaður 30. apríl 2009 04:45 Ástralinn Hugh Jackman á frumsýningu X-Men Origins: Wolverine í Bandaríkjunum fyrir skömmu.nordicphotos/getty
Ástralski hjartaknúsarinn Hugh Jackman leikur aðalhlutverkið í hasar-myndinni X-Men Origins: Wolverine sem er nýkomin í bíó. Hugh Jackman fæddist í Sydney 12. október 1968 og er yngstur í hópi fimm systkina. Þegar skólagangan hófst tók hann virkan þátt í skólaleikritum og fljótlega komu leiklistarhæfileikarnir í ljós. Jackman hóf leikferil sinn árið 1994 með hlutverkum í sjónvarpi og fimm árum síðar fékk hann að spreyta sig á hvíta tjaldinu í myndinni Paperback Hero. Fljótlega var ljóst að hann ætti eftir að ná langt í bransanum og aðeins ári síðar fékk hann sitt fyrsta tækifæri í Hollwood, sem Wolverine í fyrstu X-Men-myndinni. Jackman sló í gegn sem stökkbreyttur og skapstyggur slagsmálahundur með úlfaklærnar að vopni og hefur allar götur síðan getað valið úr hlutverkum í draumaborginni. Auk þess að leika í þremur X-Men-myndum til viðbótar hefur Jackman leikið í myndum á borð við Swordfish, Kate & Leopold, The Prestige og Australia, auk þess sem hann hefur leikið töluvert á sviði, meðal annars í söngleikjunum The Boy From Oz og Oklahoma!. Hann hefur þrívegis verið kynnir á Tony-leikhúsverðlaununum og stutt er síðan hann kynnti sjálf Óskarsverðlaunin í fyrsta sinn. Jackman hefur alla tíð verið talinn sérlega kynþokkafullur og til marks um það var hann á síðasta ári kjörinn kynþokkafyllsti maður veraldar af bandaríska tímaritinu People. Hann lætur slíkt tal þó ekki stíga sér til höfuðs því hann hefur verið kvæntur í þrettán ár og eiga þau hjónin tvö ættleidd börn. Eins og von er þykir Jackman orðið afar vænt um Wolverine, enda hafa þeir nú fylgst að í næstum áratug. Í nýju myndinni heldur hann áfram að þróa persónuna og kafa ofan í hugarfylgsni hennar. „Í þessari mynd fylgjumst við með ferðalagi Logan og innri baráttu hans á meðan hann gerir upp fortíð sína,“ sagði Jackman. „Wolverine hefur sérstaka eiginleika og sá helsti er sá að hann er hörkutól.“
Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira