Fótboltakappi gerist rappari 30. apríl 2009 07:00 Fótboltakappinn stígur fram á sjónarsviðið sem rappari á Sódómu Reykjavík á föstudagskvöld. fréttablaðið/anton
Fótboltakappinn Daníel Hjaltason stígur fram á sjónarsviðið sem rappari í fyrsta sinn á föstudagskvöld þegar haldnir verða tónleikar á Sódómu Reykjavík undir yfirskriftinni „Verkalýðs-Hiphop“. Daníel, sem er samningsbundinn Val, kallar sig Jigz þegar kemur að rappinu og er hvergi banginn. „Ég byrjaði að semja rapptexta árið 1992 þegar ég var fjórtán ára. Þá voru Kris Kross mjög heitir,“ segir hann og kímir. Síðan þá hefur rappið verið hans aðaláhugamál ásamt boltanum og hefur hann einmitt sameinað þetta tvennt með því að semja lög um liðsfélaga sína. „Þegar maður fær leið á fótbolta er hægt að fá útrás í þessu og öfugt,“ segir Daníel og telur áhugamálin tvö passa einkar vel saman. Nýlega tók hann upp sína fyrstu plötu, Lo-Fi Lover, og setti hana á heimasíðu sína án endurgjalds. „Ég hef alltaf verið að taka upp en er tiltölulega nýlega kominn með aðstöðu heim til mín. Ég hef yfirleitt verið að nota græjurnar hjá pabba,“ segir hann og á þar við Hjalta Gunnlaugsson, sem heldur einmitt tónleika í Fíladelfíu 20. maí næstkomandi. Eins og faðir hans er Daníel ekki óvanur því að syngja opinberlega því fyrir nokkru síðan söng hann með Gospelkór Reykjavíkur á Kristnihátíð við góðar undirtektir. Spurður hvort hann ætli að einbeita sér að rappinu í framtíðinni segir hann: „Ég er í rauninni að taka upp til að hafa gaman af þessu. Mig langar að spila hér og þar og sjá hvað gerist.“ Auk Jigz koma fram á tónleikunum á Sódómu flytjendur á borð við Forgotten Lores og BlazRoca og því ljóst að hann verður í öruggum höndum þetta jómfrúarkvöld sitt í rappinu. - fb
Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Fleiri fréttir Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Sjá meira