Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alþjóðaflugvöllur í Líbíu umkringdur Vopnaður flokkur umkringdi í dag millilandaflugvöll Líbíu í Tripolí. Hópurinn hefur krafist lausnar eins af leiðtogum sínum sem hvarf fyrir tveimur dögum. Aðgerðirnar eru hugsaðar til að vekja athygli á kröfunum. Fyrir vikið hefur öllu flugi verið beint á herflugvöll landsins. 4.6.2012 14:13
Uppreisnarmenn fella 80 stjórnarliða Um 80 stjórnarliðar létust í átökum í Sýrlandi um helgina. Það ku vera mesta mannfall sem stjórnarherinn hefur þolað í einu síðan uppreisnin hófst í mars árið 2011. 4.6.2012 13:24
Vilja ekki muna atburðina á Torgi hins himneska friðar Nú eru 23 ár frá fjöldamorðunum í Kína á Torgi hins himneska friðar. Þá stöðvuðu kínversk stjórnvöld fjölmenn mótmæli með hervaldi. Í dag hafa stjórnvöld í Kína handtekið aðgerðarsinna og aukið alla gæslu til að koma í veg fyrir að minnt verði á atburðina. 4.6.2012 12:57
Fjórir menn dæmdir fyrir að skipuleggja árás á JP Dómstóll í Danmörku dæmdi í morgun fjóra menn seka um að hafa ætlað að gera hryðjuverkaárás á skrifstofur dagblaðsins Jyllands-Posten í Kaupmannahöfn. Mennirnir voru handteknir í árslok 2010. Fram kom í réttarhöldunum að mennirnir ætluðu sér að bana stórum hópi fólks til að hefna fyrir skrípamyndirnar sem blaðið birti af Múhameð spámanni árið 2005. Mennirnir voru allir múslimar sem búsettir voru í Svíþjóð. Refsing yfir þeim hefur ekki verið ákveðin en saksóknarar krefjast sextán ára fangelsis. 4.6.2012 10:35
Forvirkar rannsóknaraðgerðir á Ólympíuleikunum Lögreglan í Bretlandi hefur gefið það út að hún muni beita forvirkum rannsóknaraðgerðum komi upp grunur um fyrirhugaðar óeirðir eða glæpi í tengslum við Ólympíuleikana. 4.6.2012 10:17
Assad líkir stjórnarhernum við skurðlækni Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, líkir aðgerðum stjórnarhersins í landinu við tilraunir skurðlækna til að bjarga mannslífum. Herinn hefur staðið fyrir fjöldamorðum og pyndingum að undanförnu. 4.6.2012 09:42
Biskup Lundúnaborgar segir Breta heltekna af kynlífi Biskup Lundúnaborgar hefur vakið töluvert umtal á Bretlandseyjum eftir að hann sagði í yfirlýsingu að Bretar væri helteknir af kynlífi og að skilnaðarfaraldur herjaði á þjóðina. 4.6.2012 07:44
Leiðtogar ESB beita Rússa þrýstingi vegna Sýrlands Leiðtogar Evrópusambandsins munu reyna að beita Rússa þrýstingi til að breyta afstöðu sinni gagnvart Sýrlandi á leiðtogafundi sem nú stendur yfir í Pétursborg. 4.6.2012 06:54
Fæðingartíðni norskra kvenna lækkar töluvert Fæðingartíðni hjá norskum konum hefur lækkað töluvert undanfarin tvö ár samhliða því að norskar konur verða æ eldri þegar þær fæða sitt fyrsta barn. 4.6.2012 09:43
Helsti fíkiniefnakóngur Kólombíu handtekinn Einn helsti fíkiniefnakóngur Kólombíu, Diego Henao, hefur verið handtekinn í Venesúela og verður brátt framseldur til Kólombíu. 4.6.2012 07:17
Réðust á unga Gyðinga með hömrum og járnstöngum í Lyon Ráðist var á þrjá unga Gyðinga í borginni Lyon í Frakklandi í gærdag og þeir barðir með hömrum og járnstöngum. 4.6.2012 07:13
Yfir 1.200 slökkviliðsmenn berjast við skógarelda í Nýju Mexíkó Yfir 1.200 slökkviliðsmenn berjast nú við mikla skógarelda í ríkinu Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum. 4.6.2012 07:10
Repúblikanar í Flórída reyna aftur að strika fólk af kjörskrá Yfirvöld í Flórída í Bandaríkjunum eru aftur komin í sviðsljósið þar í landi vegna áforma um að strika fólk út af kjörskrá í ríkinu í stórum stíl. 4.6.2012 07:04
Facebook skoðar kaup á Opera Verð hlutabréfa í norska vafraframleiðandanum Opera rauk upp í kjölfar þess að tæknivefsíðan Pocket-Lint greindi frá því að Facebook hefði áhuga á að kaupa fyrirtækið. Fyrirtækið Opera Software var stofnað af hinum íslenskættaða Jóni S. Von Tetzchner árið 1994. Hann gegndi lengst af stöðu forstjóra en lét af störfum hjá fyrirtækinu á síðasta ári. Ríflega 200 milljónir manna nota Opera-vafrann. 4.6.2012 07:00
Gleymdi barni á þaki bílsins Betur fór en á horfðist þegar hin nítján ára gamla Catalina Clouser frá Phoenix í Arizonaríki gleymdi fimm vikna gömlum syni sínum í bílstól uppi á þaki bíls síns áður en hún ók af stað, seint á föstudagskvöld. 4.6.2012 04:00
Farþegaþota flaug á íbúðarhúsnæði - óttast að allir hafi farist Farþegaþota flaug á íbúðarhúsnæði og brotlendi í kjölfarið samkvæmt erlendum fréttamiðlum. 153 voru um borð í vélinni. AP fréttastofan hefur eftir flugmálayfirvöldum í Nígeríu að líklega hefðu allir í flugvélinni farist. 3.6.2012 16:30
Leikkona úr Desperate Housewives látin Leikkonan Kathryn Joosten er látin sjötíu og tveggja ára að aldri en banamein hennar var lungnakrabbamein. Joosten er Íslendingum vel kunn úr hinum sívinsælu þáttum, Desperate Housewives, en þar lék hún fúllynda nágrannann Karen McCluskey. 3.6.2012 15:03
Áfrýja dómnum yfir Mubarak Egypsk yfirvöld hafa staðfest að þau hyggjast áfrýja dómsmáli gegn Hosni Mubarak og öðrum sem réttað var yfir í málinu en dómurinn hefur vakið hörð viðbrögð í Egyptalandi. 3.6.2012 14:56
Einn látinn eftir skotárás í Kanada Einn er látin eftir að karlmaður hóf skothríð í verslunarmiðstöð í Toronto í Kanada í gærkvöldi. Skotmaðurinn er 25 ára gamall karlmaður. Sjö aðrir særðust í árásinni, þar af nokkrir lífshættulega. Meðal annars 13 ára gamall drengur. 3.6.2012 15:00
Assad kennir hryðjuverkamönnum um fjöldamorðin 89 manns létu lífið í Sýrlandi í gær, þar af 57 stjórnarhermenn. Það er mesta mannfall sem stjórnarherinn hefur orðið fyrir á einum degi síðan uppreisnin hófst í mars í fyrra. Flestir létust í bardögum í þorpum og bæjum. 3.6.2012 11:00
Andrómeda nálgast Vetrarbrautina Eftir fjóra milljarða ára verða stórtíðindi í himingeimnum þegar stjörnuþokan Andrómeda rekst á Vetrarbrautina okkar. Tveimur milljörðum ára síðar hafa þessar tvær stjörnuþokur sameinast. 3.6.2012 00:00
Mubarak dæmdur í lífstíðarfangelsi Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Egypskur dómstóll kvað upp dóm í máli hans nú snemma í morgun. 2.6.2012 09:58
Varar við óhóflegri bjartsýni í Búrma „Þessa dagana verð ég vör við það sem ég kalla glæfralega bjartsýni,“ sagði Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, í fyrstu ræðu sinni á alþjóðavettvangi sem hún hélt í Taílandi í gær. „Ég tel að smá skammtur af heilbrigðri tortryggni væri ekki úr vegi,“ bætti hún við. Hún hefur setið í stofufangelsi í Búrma megnið af síðustu tuttugu árum en var látin laus á síðasta ári eftir að mannaskipti urðu í æðstu stöðum herforingjastjórnar landsins. 2.6.2012 06:00
Pútín segir pólitíska lausn vel mögulega í Sýrlandi „Það eru ýmsir hagsmunir í húfi í átökunum og maður þarf að finna þau svæði þar sem þessir hagsmunir fara saman, og fá síðan alla aðila til að setjast að sama borði,“ sagði Vladimír Pútín Rússlandsforseti um ástandið í Sýrlandi, sem farið hefur hríðversnandi undanfarna daga og vikur. „Það þarf ákveðna fagmennsku til og þolinmæði,“ bætti Pútin við og lofaði að beita sér fyrir því að jákvæð niðurstaða fáist. 2.6.2012 05:45
Með fordóma gegn gyðingum Áttundi hver Norðmaður er með fordóma gegn gyðingum, samkvæmt niðurstöðum könnunar á vegum Senter for Studier av Holocaust og livssynsminoriteter. Á vef Kristilega Dagblaðsins í Danmörku segir að könnunin leiði jafnframt í ljós að fjórði hver Norðmaður telji að gyðingar líti svo á að þeir séu betri en aðrir. Nær 40 prósent bera meðferð Ísraela á Palestínumönnum saman við meðferð nasista á gyðingum. Talsmenn gyðinga segja niðurstöðurnar bera vott um vanþekkingu á gyðingdómi.-ibs 2.6.2012 04:45
Tíu taka við 90 prósentum Tíu af Evrópusambandsríkjunum 27 taka á móti 90 prósentum allra hælisleitenda í Evrópu. Cecilia Malmström, innanríkismálastjóri ESB, hvetur hin ríkin 17 til þess að axla meiri ábyrgð. Malmström vill umræður um hvernig ESB eigi að takast á við innflutning frá löndum þar sem efnahagsvandi ríkir. 2.6.2012 04:45
Vilja láta lýsa framboð ógilt Þúsundir manna komu saman í borgum Egyptalands í gær til að krefjast þess að forsetaframboð Ahmeds Shafiks, síðasta forsætisráðherra Mubarak-stjórnarinnar, verði ógilt. Shafik er annar tveggja frambjóðenda sem tilkynnt hefur verið að verði í kjöri í seinni umferð forsetakosninganna síðar í mánuðinum. Hinn er Mohammed Morsi, forsetaefni Bræðralags múslíma. Mótmælendurnir segja framboð Shafiks brjóta í bága við reglur um að enginn þeirra sem voru í stjórn Hosni Mubaraks megi bjóða sig fram til forseta.- gb 2.6.2012 04:30
Fleiri þurfi vottorð til að vinna með börnum Yfirvöld í Danmörku ráðgera að auka eftirlit með fólki sem vinnur með börnum með því að fjölga þeim störfum sem krefjast svokallaðs barnavottorðs. Þeim svipar til sakavottorða og kanna bakgrunn starfsfólks á dagheimilum, bílstjórum sem aka börnum og svo framvegis. 2.6.2012 03:45
Finnska lögreglan fær aðstoð Afbrotum sem rekja má til Rúmena hefur fjölgað verulega í Finnlandi eftir að Rúmenía varð aðili að Evrópusambandinu árið 2007. Rúmensku afbrotamennirnir í Finnlandi eru í mörgum tilfellum grunaðir um vasaþjófnað, stuld úr verslunum og svindl við greiðslu vegna viðskipta. 2.6.2012 02:45
Varði átta milljónum í ódæðin NoregurFjöldamorðinginn Anders Behring Breivik eyddi alls um 390 þúsund norskum krónum, sem nemur rúmum 8,3 milljónum íslenskra króna, í skipulag og framkvæmd ódæðanna í fyrrasumar. Þetta kom fram við réttarhöldin í gær. 2.6.2012 02:30
Er háskólamenntun tímans virði? Er háskólamenntun ennþá tímans og peninganna virði? Þessari spurningu er varpað fram í breska blaðinu The Guardian í dag. Sífellt fleiri ungmenni í Evrópu eiga í erfiðleikum með að finna sér vinnu þrátt fyrir að hafa gengið í gegnum margra ára háskólanám. Mörgum finnst gildi háskólamenntunar hafa fallið. 1.6.2012 20:01
Pillay fordæmir fjöldamorð í Sýrlandi Navi Pillay, mannréttindafulltrúi Sameinuðu Þjóðanna, sagði í dag að fjöldamorðin í bænum Houla í Sýrlandi á laugardaginn síðastliðinn gætu talist sem glæpur gegn mannkyni. 1.6.2012 14:49
Vill banna gosdrykki í yfirstærð Borgarstjórinn í New York vill banna gosdrykki í stórum ílátum til þess að sporna gegn offituvandamálinu í borginni. Gangi hugmyndir Michaels Bloomberg eftir yrði hámarksstærð á gosdrykkjaílátum hálfur lítri en þetta yrði í fyrsta sinn sem slíkum aðferðum yrði beitt í Bandaríkjunum. 1.6.2012 14:21
Bræðiskast þingmanns vekur athygli Mikið hefur verið rætt um skammarræðu bandaríska repúblikanans Mike Bost síðustu daga. Bost, sem er fulltrúi í löggjafarþingi Illinois, úthúðaði forseta þingsins fyrir að gefa minnihlutaþingmönnum aðeins 15 mínútur til að kynna sér frumvarp um eftirlaun kennara í ríkinu. 1.6.2012 13:36
Mannréttindaráð fundar í kjölfar fjöldamorða Enn berast fregnir af fjöldamorðum í Sýrlandi. Andspyrnumenn þar í landi hafa birt myndband sem sýnir lík þrettán verkamanna en talið er að vígasveit hafi skotið þá til bana í útjaðri Qusair þorpsins í vesturhluta Sýrlands. Er þetta þriðja fjöldamorðið á einni viku í landinu. 1.6.2012 11:34
Danir reikna með metuppskeru af jarðarberjum Danir reikna með metuppskeru af jarðarberjum í sumar en það skýrist einkum af hagstæðum ræktunarskilyrðum snemma í vor þar sem engin næturfrost trufluðu ræktunina. 1.6.2012 10:43
Neyðarlögum loks aflétt í Egyptalandi Neyðarlögum sem staðið hafa óslitið í 31 ár hefur loks verið aflétt í Egyptalandi. 1.6.2012 07:02
John Edwards sýknaður Dómstóll í Bandaríkjunum hefur sýknað öldungadeildarþingmanninn John Edwards af ákæru um að hafa misnotað fé úr kosningasjóði sínum árið 2008 þegar hann var varaforsetaefni Demókrataflokksins í forsetakosningunum það ár. 1.6.2012 06:59
Stóraukin öryggisvarsla í kringum fund Bilderberg hópsins Öryggisvarsla í kringum hinn árlega fund Bilderberg hópsins sem hefst í dag hefur verið stóraukin frá því sem áður var. 1.6.2012 06:48
Reuters: Írar samþykktu sáttmálann með 60% atkvæða Reuters hefur eftir heimildum innan stjórnar Írlands að Írar hafi samþykkt fjárlagasáttmála Evrópusambandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu í gærdag með 60% atkvæða en 40% vildu hafna sáttmálanum. 1.6.2012 06:42
Segja Rússa stuðla að borgarastríði „Þeir eru að segja mér að þeir vilji ekki sjá borgarastríð. Ég hef verið að segja þeim að stefna þeirra muni hjálpa til við að stuðla að borgarastríði,“ sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um afstöðu Rússa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. 1.6.2012 02:00