Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Klámmyndaleikari eftirlýstur vegna morðmáls Klámmyndaleikari og meintur morðingi er nú eftirlýstur af Alríkislögreglunni Interpol. Luka Rocco Magnotta, 29 ára klámmyndaleikari, er grunaður um að hafa myrt mann og sent líkamsparta hans með pósti á skrifstofur stjórnmálaflokks í Kanada. 31.5.2012 23:52
Mark Zuckerberg lék í kínverskum glæpaþætti Mark Zuckerberg er margt til listanna lagt. Ekki nóg með að hafa stofnað vinsælasta samskiptamiðil veraldar og stýrt honum í gegnum hlutfjárútboð á dögunum þá er hann einnig ágætis leikari. 31.5.2012 22:30
Segja nákvæmlega fyrir um árekstur vetrarbrauta Geimvísindamenn hafa reiknað út nákvæmlega hvenæra vetrarbrautin okkar mun rekast á næstu vetrarbraut, Andromedu, með hjálp Hubble geimsjónaukans. Þyngdarafl dregur vetrarbrautirnar tvær saman og áreksturinn mun hefjast eftir eina fjóra milljarða ára. Tveimur milljörðum ára síðar verða þær orðnar ein heild. 31.5.2012 22:14
Þóttist vera látinn til að blekkja morðingja Sýrlenskur piltur greip til örþrifaráða þegar vígamenn myrtu fjölskyldu hans í bænum Houla í síðustu viku. Hann makaði blóði bróður síns á föt sín til að blekkja morðingjana. 31.5.2012 21:30
Drekinn er lentur Starfsmenn bandaríska fyrirtækisins SpaceX fögnuðu ákaft þegar Dragon-birgðahylkið lenti í Kyrrahafinu við strendur Kaliforníu fyrir stuttu. 31.5.2012 16:52
Breivik sagður hafa tekið inn lyfjakokteil Talið er að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafi tekið inn blöndu af örvandi lyfjum stuttu áður en hann framdi ódæðisverk sín í júlí á síðasta ári. 31.5.2012 14:50
Dragon stefnir í átt að jörðu - Bein útsending Dragon-birgðahylki bandaríska fyrirtækisins SpaceX þýtur nú átt til jarðar eftir að hafa dvalið í um viku við Alþjóðlegu geimstöðina, ISS. 31.5.2012 14:12
Clinton gagnrýnir afstöðu Rússa og Kínverja Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi yfirvöld í Rússlandi og Kína harðlega í dag en hún telur að stefna landanna í málefnum Sýrlands auka verulega möguleikann á því að allsherjar borgarastyrjöld brjótist út í landinu. 31.5.2012 13:23
Foreldrar sex barna sem brunnu inni ákærð fyrir morð Foreldrar sex barna sem létust í húsbruna í Derby á Englandi á dögunum verða í dag ákærðir fyrir morð. Að lokinni rannsókn á málinu ákvað lögreglan að nægileg sönnunargögn lægju til grundvallar því að ákæra í málinu. 31.5.2012 08:41
Kanadískur klámmyndaleikari eftirlýstur fyrir hrottalegt morð Lögreglan í Kanada leitar nú manns sem talinn er hafa sent tvo pakka til höfuðstöðva íhaldsflokksins þar í landi sem eru í borginni Ottawa en í pökkunum voru hlutar af mannslíki. 31.5.2012 12:10
Setja al-Assad afarkosti Stærsti uppreisnarhópurinn í Sýrlandi hefur sett forseta landsins afarkosti. Hópurinn sem kallar sig Hinn frjálsa her Sýrlands, hefur gefið Bashar al-Assad forseta tvo sólarhringa til þess að framfylgja vopnahléi því sem fylkingarnar sættus á fyrir tilstilli Kofi Annans erindreka Sameinuðu þjóðanna á dögunum. 31.5.2012 08:45
Hús Winehouse á sölu Hús söngkonunnar Amy Winehouse er nú komið á sölu en þar eyddi hún síðustu árum ævi sinnar og þar lét hún einnig lífið fyrir rétt tæpu ári síðan. Fjölskylda hennar hefur nú ákveðið að selja eignina sem er í Camden í London og er verðmiðinn 2,7 milljónir punda, eða um 550 milljónir íslenskra króna. 31.5.2012 08:19
Bono afhendir Suu Kyi heiðursverðlaun Rokkarinn Bono úr hljómsveitinni U2 mun afhenda Aung San Suu Kyi æðstu heiðursverðlaun Amnesti International. Afhendingin mun fara fram í Dublin á Írlandi þann 18. júní næstkomandi, daginn eftir að Suu Kyi tekur við friðarverðlaunum Nobels. 30.5.2012 22:11
Forsetafrú gefur út bók um grænmeti og garðyrkju Michelle Obama, forsetafrú í Bandaríkjunum, gaf í gær út bók um garðyrkju. Bókin heitir á frummálinu American Grown: The Story of the White House Kitchen Garden and Gardens Across America. 30.5.2012 21:17
Assange fær tækifæri til að hnekkja framsalsúrskurði Deilan um framsal Julian Assange, stofnanda Wikileaks, virðist stefna í aðra umferð fyrir Hæstarétti Bretlands eftir að lögmenn hans fengu fjórtán daga frest til að leggja fram nýjar röksemdir í málinu. 30.5.2012 20:29
Eitrað fyrir skólastúlkum í Afganistan Hundrað og sextíu skólastúlkur í norðurhluta Afganistan voru fluttar á sjúkrahús í gær eftir að eitrað var fyrir þeim. Skólastofur þeirra höfðu verið úðaðar með eitruðu efni, að sögn lögreglunnar í borginni Taluqan. 30.5.2012 13:42
Taylor dæmdur í 50 ára fangelsi Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, var í morgun dæmdur í 50 ára fangelsi fyrir aðild sína að stríðsglæpum sem framdir voru í borgarastríðinu í Sierra Leone. Taylor var sakfelldur fyrir að aðstoða uppreisnarmenn í nágrannalandinu en þeir frömdu margvísleg voðaverk í borgarastríðinu sem stóð frá árinu 1997 og fram til 2003. 30.5.2012 10:53
Rússar segja íhlutun í Sýrlandi ekki koma til greina Rússar lýstu því yfir í morgun að hernaðaríhlutun alþjóðasamfélagsins í Sýrlandi komi ekki til greina og munu þeir því að öllum líkindum beita neitunarvaldi sínu í öryggisráði Sameinuðu þjóðann verði slík tillaga lögð fyrir. Áður hafði Francois Hollande forseti Frakklands sagt að slík íhlutun hljóti að koma til greina. 30.5.2012 09:46
Mega framselja Assange Hæstiréttur Bretlands úrskurðaði í morgun að framselja megi Julian Assange, stofnanda WikiLeaks vefsíðunnar til Svíþjóðar þar sem hann hefur verið sakaður um nauðgun. Lögfræðingar Assange höfðu haldið því fram að framsalskrafan væri ógild og að hana bæri ekki að taka til greina. Þessu var hæstiréttur ekki sammála og því lítur nú út fyrir að Assange verði framseldur. Þó gæti verið að hann reyni að fá Mannréttindadómstól Evrópu til að taka málið fyrir. 30.5.2012 09:18
Fær loks afhent Nóbelsverðlaun Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, er lögð af stað í heimsreisu. Hún hefur verið í stofufangelsi meira og minna í tvo áratugi. Í næsta mánuði fer hún meðal annars til Noregs þar sem hún tekur loks formlega á móti friðar-verðlaunum Nóbels sem henni voru veitt árið 1991. 30.5.2012 02:30
Obama veitti Bob Dylan Frelsisverðlaunin Barack Obama veitti 13 einstaklingum Frelsisverðlaunin (e. Medal of Freedom) í Hvíta Húsinu um helgina. Meðal þeirra var tónlistarmaðurinn Bob Dylan. Frelsisverðlaunin þykja meðal virðingarverðustu verðlauna sem almennir borgarar geta hlotið í Bandaríkjunum. Dæmi um eldri verðlaunahafa eru Móðir Teresa, Margaret Thatcher, Stephen Hawking og Walt Disney. 29.5.2012 22:11
Nýjar fartölvur frá Google Google hefur boðað nýja gerð af tölvum sem keyra á Chrome stýrikerfinu. Þær verða búnar öflugum örgjörva, en fyrri gerðin þótti of kraftlítil. Chrome stýrikerfið keyrir öll forrit sín af vefsvæði fyrirtækisins og vistar öll gögn notenda á internetinu. Google hefur lagt áherslu á að tölvurnar þurfi lítið viðhald, enda sé stýrikerfið keyrt af netinu og því sjái fyrirtækið um allt viðhald auk þess sem vírusvörn sé innbyggð í kerfið. 29.5.2012 23:53
Fyrsta utanlandsför Suu Kyi í tvo áratugi Þjóðarhetjan og friðarsinninn Aung San Suu Kyi hélt í fyrstu ferð sína út fyrir landamæri Búrma síðustu tvo áratugi og er nú stödd í Tælandi. Hún fékk vegabréf í byrjun maí. Suu Kyi mun eyða nokkrum dögum í Tælandi þar sem hún hyggst meðal annars heimsækja flóttamannabúðir og halda erindi á ráðstefnu næsta föstudag. Eftir það mun hún halda aftur til Búrma, stoppa þar stutt við og fljúga svo til Evrópu um miðjan júní. 29.5.2012 21:43
Túnfiskur geislavirkur eftir slysið í Fukushima Geislun frá kjarnorkuverinu í Fukushima fannst nýlega í túnfiski við strendur Kaliforníu. Þetta kom fram í rannsókn sem birt var í gær í blaði the Proceedings of the National Academy of Sciences. Þó magn geislavirkra efna í fiskinum sé undir þeim mörkum sem almennt eru talin hættuleg er það þó tíu sinnum hærra en venjulegt er á þessum slóðum. 29.5.2012 19:38
Bernskuvinirnir vitnuðu gegn Breivik Bernskuvinir Anders Behring Breivik og þrír vinir hans síðan á unglingsárunum vitnuðu í dag gegn fjöldamorðingjanum í Osló. Geir Lippestad, verjandi Breiviks, segir að það hafi verið mjög erfitt fyrir hann að hlusta á vitnisburðinn. 29.5.2012 17:53
Fórnarlömbin í Houla voru flest tekin af lífi Flestir hinna 108 sem fórust í Houla héraði í Sýrlandi á föstudaginn voru teknir af lífi. Þetta fullyrða eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna sem hafa skoðað líkin. Vitni að morðunum fullyrða að vígamenn á vegum ríkisstjórnar Sýrlands hafi staðið að fjöldamorðunum. Þessi yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna kemur á sama tíma og Kofi Annan erindreki samtakanna í landinu ræðir við Bashar al-Assad Sýrlandsforseta. Að sögn talsmanns SÞ lítur út fyrir að færri en tuttugu af fórnarlömbunum hafi fallið í loftárásum eða af völdum skriðdrekaskothríðar. Hinir verið teknir af lífi í tveimur aðskildum árásum á þorp á svæðinu. Fjöldi barna eru á meðal hinna látnu. 29.5.2012 12:10
Viltu hvíla í grafhýsi Presleys? Nú 35 árum eftir að Elvis Presley lést er hann ennþá að mala gull. Samkvæmt nýjustu fréttum getur heppinn aðdáandi hans, eða vellauðugur maður, keypt legstað í grafhýsi hans í Memphis í Tennesse fylki. 29.5.2012 12:06
Átta fórust í skjálftanum í morgun Nú er ljóst að átta fórust hið minnsta í jarðskjálftanum sem reið yfir norðausturhluta Ítalíu í morgun. Aðeins tíu dagar eru liðnir frá því sex fórust í skjálfta á sama svæði. Skjálftinn í morgun mældist 5.8 stig og samkvæmt Sky fréttastofunni eru margir sárir eftir skjálftann í morgun. Þá varð hann til þess að nokkrar byggingar sem löskuðust í fyrri skjálftanum féllu nú til grunna. Skólar og verslanir voru rýmdar á svæðinu strax í morgun. 29.5.2012 09:11
Ráðist á kosningamiðstöð forsetaframbjóðanda Ráðist var á kosningamiðstöð Ahmed Shafiq í nótt en hann er annar þeirra frambjóðenda í Egyptalandi sem keppa í seinni umferð forsetakosninganna sem þar fara fram. Shafiq var forsætisráðherra í valdatíð Mubaraks forseta sem steypt var af stóli í fyrra og hann mun mæta leiðtoga Bræðralags múslíma í kosningunum. 29.5.2012 08:55
Annan ræðir við al-Assad Kofi Annan, erindreki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi hittir í dag forseta landsins Bashar al-Assad í höfuðborginni Damaskus. 29.5.2012 08:54
Ætluðu að fremja hryðjuverk í Danmörku Tveir menn grunaðir um að leggja á ráðin um hryðjuverk í Danmörku voru handteknir í nótt að því er danska leyniþjónustan segir. Mennirnir, sem eru bræður, eru grunaðir um að tengjast herskáum íslamistum í Sómalíu. 29.5.2012 07:06
Rússar taka undir ásakanir Báðir aðilar hafa greinilega átt hlut að dauða saklausra manna, þar á meðal nokkurra tuga kvenna og barna, segir Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, um fjöldamorðin í Houla í Sýrlandi á föstudag. 29.5.2012 05:00
Bankar fái ekki að bólgna út Nefnd háttsettra embættismanna og sérfræðinga í Danmörku á að koma í veg fyrir að bankastjórar láti fjármálastofnanir sínar bólgna út og veiti áhættusöm veðlán. Með þessu á meðal annars að koma í veg fyrir nýja eignabólu. 29.5.2012 03:15
Mótmæla tónleikum poppdrottningar: Farðu til helvítis Lady Gaga Tónlistarkonan Lady Gaga tilkynnti í gær að hún þyrfti að aflýsa fyrirhuguðum tónleikum í Jakarta í Indónesíu vegna hótana þar í landi. Poppdrottningin er vægast sagt umdeild í landinu og voru meðal annars haldin fjölmenn mótmæli vegna komu hennar til landsins. Á skiltunum stóð meðal annars „Segið nei við Lady Satan Gaga“ og „Móðir, skrímsli, farðu til helvítis“. 28.5.2012 15:51
Segir götublöðin valdamestu fjölmiðla Bretlands Fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, Tony Blair, segir að valdamestu blöð Bretlands séu götublöðin Daily Mail og The Sun. Þetta sagði hann meðal annars í yfirheyrslum af Leveson nefndinni sem rannsakar nú tengsl fjölmiðla við stjórnmálamenn og lögreglu. Rannsóknin snýr að meintri spillingu breskra fjölmiðla, þá helst þeirra sem voru í eigu Roberts Murdochs. Um er að ræða beint framhald á yfirheyrslum vegna ólögmætra hlerana fjölmiðlanna. 28.5.2012 15:12
Tæplega 50 börn myrt í fjöldamorðunum í Sýrlandi Kofi Annan er kominn til Sýrlands þar sem hann vonast til þess að koma á friðarviðræðum á milli sýrlenskra stjórnvalda og uppreisnarmanna. 28.5.2012 14:29
Hrollvekjandi glæpaiðnaður: Gefðu nýra og keyptu iPad Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) áætlar að tíu þúsund nýru séu seld á svörtum markaði árlega. Það þýðir að nýra er fjarlægt með ólöglegum hætti úr einstaklingi á klukkutíma fresti. Oft eru nýrun fjarlægð úr líkama fólks gegn þeirra vilja. 28.5.2012 11:42
Fordæma fjöldamorð en deila um aðgerðir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdu í gærkvöldi fjöldamorð ríkisstjórnarinnar í Sýrlandi í borginni Houla. Talið er að hundrað óbreyttir borgarar hafi verið myrtir af hermönnum stjórnarinnar í borginni á föstudaginn. 28.5.2012 10:12
Kveiktu í sér í Tíbet Tveir menn kveiktu í sér í höfuðborg Tíbet í gær, til að mótmæla hörku kínverskra yfirvalda í garð Tíbeta. Bloomberg greinir frá því að lögreglumenn hafi slökkt í mönnunum innan tveggja mínútna og flutt þá báða á sjúkrahús, þar sem annar þeirra lést af brunasárum. 28.5.2012 10:07
Borgen vann BAFTA verðlaunin Danski sjónvarpsþátturinn Borgen, sem er mörgum Íslendingum kunnur, vann hin virtu Bafta verðlaun í dag í flokknum besti sjónvarpsþátturinn. Verðlaunin voru veitt í Royal Festival Hall í Themsen í Lundúnum í dag. Þátturinn fékk einnig verðlaun í flokknum besti handritshöfundur, eftir því sem danska ríkisútvarpið greinir frá. Aðrir þættir sem voru tilnefndir í flokknum besti sjónvarpsþátturinn var Forbrydelsen 2, The Slap og Modern Family sem er sýndur á Stöð 2. 27.5.2012 19:24
Neyðarfundur í Öryggisráðinu Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna mun funda seinna í dag um stöðu mála í Sýrlandi. Atburðir í borginni Houla í Homs-héraði síðustu daga eru megin ástæða fundarins. Að minnsta kosti 90 létust í árásum stjórnarhersins á borgina í gær að sögn andspyrnuhópa í landinu. 27.5.2012 17:17
Fyrrum nasisti lést í Bæjaralandi Fyrrverandi nasistinn Klaas Carel Faber lést í Bæjaralandi í Þýskalandi í dag, níræður að aldri. Faber, sem var af hollensku bergi brotinn, hafði búið í Þýskalandi síðan hann slapp úr fangelsi í Hollandi. 27.5.2012 16:17
Eldsvoði í París Slökkviliðsmenn berjast nú við eldsvoða í í sjö hæða byggingu í hjarta Parísar. Talið er að um 40 manns hafi verið í byggingunni þegar eldurinn braust út. 27.5.2012 15:48
Drusluganga í Brasilíu Þúsundir léttklæddra kvenna mótmæltu kynbundnu ofbeldi í Brasilíu í gær en druslugöngur fóru fram víðsvegar um landið. 27.5.2012 13:35
Handtökur eftir skotárás í Manchester Fjórir hafa verið handteknir í tengslum við skotárás sem gerð var á krá í Manchester á föstudag þar sem karlmaður lést og þrír særðust. 27.5.2012 11:00