Erlent

Varði átta milljónum í ódæðin

Ódæðismaðurinn Breivik eyddi um 8,3 milljónum íslenskra króna í undirbúning hryðjuverkanna í fyrra. 
NordicPhotos/AFP
Ódæðismaðurinn Breivik eyddi um 8,3 milljónum íslenskra króna í undirbúning hryðjuverkanna í fyrra. NordicPhotos/AFP
NoregurFjöldamorðinginn Anders Behring Breivik eyddi alls um 390 þúsund norskum krónum, sem nemur rúmum 8,3 milljónum íslenskra króna, í skipulag og framkvæmd ódæðanna í fyrrasumar. Þetta kom fram við réttarhöldin í gær.

Um þriðjungur fór í smíði sprengjunnar sem sprakk í miðborg Óslóar, um 1,7 milljónir í tækjakaup, rúm milljón í vopn og skotfæri og um 120 þúsund í einkennisbúninginn sem hann útbjó.

Flest keypti Breivik með kreditkortum, en hann átti þrettán bankareikninga í sjö löndum sem allir voru tómir í fyrravor.- þj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×