Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Breyttu nafninu OFC í UFO Kínverski skyndibitastaðurinn OFC, eða Obama Fried Chicken, hefur skipt um nafn eftir að bandaríska skyndibitakeðjan KFC hótaði að lögsækja staðinn fyrir að stela ímynd fyrirtækisins í viðtali við Washington Post á dögunum. 10.10.2011 23:00
Sólarorka að nóttu til Vísindamenn á vegum Spánar og Sameinuðu Arabísku Furstadæmanna hafa reist fyrstu sólarorkustöðina sem starfar allan sólarhringinn. 10.10.2011 17:24
Segjast ekki hafa notað Trójuhest Innanríkisráðuneyti Þýskalands þvertekur fyrir að forriti hafi verið komið fyrir í tölvum Þjóðverja í þeim tilgangi að njósna um þá. Það voru samtök tölvuhakkara sem segjast hafa fengið forritið í hendurnar og komist að því að það væri skrifað af Þýska ríkinu. 10.10.2011 16:44
Sjóslys við strendur Flórída Ein manneskja drukknaði eftir að skúta hvolfdi út fyrir ströndum Flórída í gær. Alls átta manns voru í bátnum og náðu sjö af þeim að halda sér á floti í 20 klukkutíma áður en veiðiskip kom að þeim. 10.10.2011 16:23
Hræddur hundur slær í gegn á netinu Myndband af hundi sem er dauðhræddur við mynd af leikkonunni Juliu Roberts fer eins og eldur í sinu um netheima. 10.10.2011 16:22
Picasso í ruslagámi Listaheimurinn tók andköf í maí á síðasta ári þegar bíræfinn þjófur hnuplaði fimm listaverkum af Musée d'Art Moderne í París. Málverk eftir Picasso og Matisse voru á meðal þeirra sem var stolið. 10.10.2011 16:05
Efnahagsvandi Evrópu til umræðu á G20 fundinum Í bréfi til æðstu stjórnenda Evrópusambandsins sögðu Jose Manuel Barroso og Herman Van Rompuy, forsetar Framkvæmdarstjórnar og Leiðtogaráðs Evrópusambandsins, að efnahagsvandi Evrópu yrði helsta umræðuefni G20 fundarins nú í nóvember. 10.10.2011 15:04
Ráðist á kröfugöngu kvenna í Jemen Talið er að 22 konur hafi slasast í kröfugöngu í Jemen í gær. Þúsundir kvenna komu saman til að fagna því að Tawakkol Karman hafi fengið friðarverðlaun Nóbels á föstudaginn. Hún var ein þriggja kvenna sem fengu verðlaunin fyrir baráttu sína fyrir réttindum kvenna. 10.10.2011 14:03
Vilja hefja samningaferlið að nýju Mark Regev, talsmaður Benjamin Netanyahu, segir að Ísrael sé reiðubúið að hefja samningaferlið við Palestínu að nýju. Hann sagði að báðir aðilar verði að vera skapandi í málamiðlunum, annars sé samkomulag ómögulegt. Regev sagði að lokamarkmið samningaferlisins sé að verða að kröfu Palestínumanna um sjálfstætt ríki ásamt því að uppfylla öryggiskröfur Ísrael. 10.10.2011 13:35
Bætur greiddar eftir bræðsluslys í Fukushima Fyrrum íbúar hamfarasvæðanna í Japan flykkjast nú á skrifstofur Tepco, fyrirtækisins sem annaðist viðhald og rekstur kjarnorkuversins í Fukushima. Krafan er einföld, þau vilja fá bætur fyrir hörmungarnar sem fylgdu í kjölfarið á bræðsluslysinu í kjarnorkuverinu. 10.10.2011 13:11
Bandarískir hagfræðingar hljóta Nóbelsverðlaun Thomas Sargent og Christopher A. Sims hlutu hagfræðiverðlaun Nóbels nú fyrir stuttu. 10.10.2011 11:34
Samsung frestar Nexus Prime Samsung hefur frestað sjósetningu nýjasta snjallsíma síns, Nexus Prime. Var þetta gert af virðingu við Steve Jobs. 10.10.2011 11:10
Fellibylurinn Jova nálgast strendur Mexíkó Fellibylurinn Jova nálgast strendur Mexíkó óðfluga. Samkvæmt veðurathugunum á vegum vísindamanna í Bandaríkjunum er Jova nú þriðja stigs fellibylur og er því fær um að valda stórfelldum skaða. 10.10.2011 10:50
Örlög Liam Fox ákveðin í dag Búist er við að niðurstaða liggi fyrir í dag í máli Liam Fox, einum af æðstu mönnum varnarmálaráðuneytis Bretlands. Hann er sakaður um að hafa gefið fyrrum skólafélaga sínum og vini aðgang að gögnum ráðuneytisins. 10.10.2011 10:32
Fleiri handtökur í kjölfar óeirða á Bretlandi Yfirvöld í Bretlandi eru enn að rannsaka mál tengd óeirðunum þar í sumar. Lögreglumenn fara í gegnum gríðarlegt gagn myndbandsupptakna í þeirri von að handsama þá sem brutu af sér. 10.10.2011 10:07
Telur byltingu væntanlega í Bandaríkjunum Herforingi í Íran segir mótmælin gegn Wall Street í Bandaríkjunum eiga margt sameiginlegt með mótmælum síðustu mánaða í Arabaheiminum. 10.10.2011 09:46
Uppreisnarmenn með undirtökin í Sirte Nú virðist aðeins vera tímaspursmál hvenær bærinn Sirte í Líbíu fellur í hendur uppreisnarmanna sem nú fara með völdin í Líbíu. Sirte er fæðingarbær Múammars Gaddafís fyrrverandi einræðisherra landsins og þangað höfðu hörðustu stuðningsmenn hans hörfað þegar leiðtoginn missti tökin í landinu. 10.10.2011 08:24
Óttast mengunarslys á Nýja Sjálandi Olía úr flutningaskipinu Rena hefur nú náð landi á austuströnd Nýja Sjálands en skipið strandaði fyrir fimm dögum undan ströndinni. Yfirvöld hafa beðið fólk um að halda sig fjarri ströndinni en tilraunum til að dæla þeirri olíu sem eftir er á tönkum skipsins hefur verið hætt sökum versnandi veðurs. 10.10.2011 08:22
Tusk sigraði í Póllandi Forsætisráðherra Póllands Donald Tusk og flokkur hans fóru með sigur af hólmi í þingkosningunum sem fram fóru í landinu í gær. Samkvæmt fyrstu tölum fékk flokkur Tusks rúmum tíu prósentum meira en flokkur Jaroslaws Kaczynskis, sem leiðir stærsta stjórnarandstöðuflokkinn. 10.10.2011 08:19
Tugir féllu í átökum í Kaíró Mikil átök brutust út í Kairó höfuðborg Egyptalands og felldu öryggissveitir ríkisstjórnarinnar 24 mótmælendur, sem flestir tilheyra Koptísku kirkjunni, hinni fornu þjóðkirkju Egypta. 10.10.2011 08:18
Fríða kom upp um „dýrið“ "Það er ótrúlegt að það hafi þurft fegurðardrottningu frá Íslandi til þess að hafa uppi á einum hættulegasta glæpamanni Bandaríkjanna," segir rannsóknarblaðamaður Boston Globe um mál Whitey Bulger sem var handtekinn eftir ábendingu frá Önnu Björnsdóttur. 9.10.2011 19:30
Listamenn „Yfirtaka Wall Street" Síðustu 22 daga hefur fólk í Bandaríkjunum mótmælt vegna efnahagsástands landsins undir yfirskriftinni „Yfirtökum Wall Street". Hingað til hefur lögregla þó meinað þeim aðgang að götunni sjálfri. Í gær barst hreyfingunni liðsauki úr óvæntri átt, því listamenn settu upp sýningu innblásna af mótmælunum í húsi við götuna. Hún var nánar tiltekið sett upp í húsi sem byggt var árið 1914 sem höfuðstöðvar fjárfestisins J. P. Morgan. 9.10.2011 18:32
Óeirðir í Egyptalandi Hundruðir kristinna manna mótmæla nú á götum Kairó í Egyptalandi vegna niðurrifs kirkju í sveitaþorpi. Samkvæmt ríkissjónvarpi Egyptalands er hefur einn maður látist í óeirðum nú þegar. Mótmælin eru leidd af nokkrum biskupum úr koptísku kirkjunni (e. Coptic Orthodox Church) en það er opinbert nafn stærstu kirkju kristinna manna í Egyptalandi og Mið-Austurlöndum. Mótmælin áttu að fara friðsamlega fram, en fóru fljótt úr böndunum þegar fólk á svölum hóf að grýta mótmælendurna með steinum. Nú ríkir fullkomin ringulreið á götum borgarinnar. Mótmælendurnir krefjast þess að kirkjan verði endurbyggð og ríkisstjórinn sem fyrirskipaði niðurrif hennar segi af sér. 9.10.2011 17:47
Viðvörun til stuðningsmanna andstöðunnar Stjórnvöld í Sýrlandi vöruðu í dag við því að þau muni snúast harkalega gegn hverju því landi sem styður formlega tilvist nýstofnaðs Þjóðarráðs Sýrlands. Þjóðarráðið nýstofnaða samanstendur af andstæðingum Bashar al-Assad. Vestræn ríki eins og Bandaríkin og Frakkland hafa fagnað myndun þess, en þau hafa ekki boðið því formlega viðurkenningu. 9.10.2011 16:59
Alþjóðlegir sérfræðingar í Fukushima Sérfræðingar frá Alþjóðlegu kjarnorkustofnunin (INEA) eru staddir í Fukushima-borg til að fylgjast með tilraunum yfirvalda til að hreinsa svæðið. Hópurinn sem samanstendur af tólf mönnum mun gefa yfirvöldum í Japan stutta skýrslu um heimsókn sína í lok næstu viku. Hann mun svo setja saman ítarlegt yfirlit um málið sem verður opinberað í næsta mánuði. 9.10.2011 16:06
Fellibylur við strendur Mexíkó Fellibylur sem nefnist Jova stefnir nú upp að ströndum Mexíkó. Fellibylurinn er nú í styrktarflokki eitt og mældist vindhraði hans í morgun um 140 km/klst. Gert er ráð fyrir því að fellibylurinn styrkist enn frekar á næstu dögum og búast menn við því að hann gangi á land í Mexíkó á þriðjudaginn eða seint á mánudag. 9.10.2011 15:30
Eldgosaviðvörun á Kanaríeyjum Stjórnvöld á Kanaríeyjum gáfu í dag út eldgosaviðvörun til að bregðast við langvarandi smáskjálftahrinu sem staðið hefur síðustu þrjá mánuði. Yfirvöld á Kanaríeyjunni El Hierro gáfu í dag út 2. stigs eldgosaviðvörun í kjölfar jarðskjálfta sem náði 4,3 á richter sem skók eyjuna í gær. Smáskjálftavirkni hefur verið mikil á svæðinu að undanförnu. 9.10.2011 13:57
Komnir á lokasprettinn í Líbíu Þjóðarráð Líbíu segir „komið að lokakafla bardagans" og uppreisnarmenn séu á síðasta sprettinum við að leggja Sirte undir sig. Uppreisnarmenn náðu tökum á Háskóla bæjarins í nótt, og stjórna nú stórum parti svæðisins. „Enn er nokkuð eftir af bardaganum, en það má segja að við séum á lokasprettinum," sagði Al Zubair Al Kadi, foringi í her Þjóðarráðsins. 9.10.2011 13:34
Chávez styður bandaríska mótmælendur Hugo Chávez, forseti Venesúela, lýsti yfir samstöðu með bandarískum mótmælendum sem síðustu daga hafa mótmælt breikkandi bili milli ríkra og fátækra í Bandaríkjunum. „Fátækt eykst og eymdin verður stöðugt meiri," sagði Chávez um ástandið í Bandaríkjunum og bætti við að samúð sín lægi öll hjá mótmælendum sem lent hefðu í fangelsi vegna mótmælanna undanfarið. 9.10.2011 13:20
Tveir létu lífið í sprengingu Að minnsta kosti tveir létu lífið þegar sprenging varð í vöruhúsi í þorpinu Andst á Jótlandi í Danmörku í gær. Húsið varð fljótt alelda og gekk illa að slökkva eldinn en ekki liggur fyrir hversu margir voru í húsinu þegar sprengingin varð. Mikið magn af flugeldum var geymt í húsinu og var því ákveðið að rýma nálæg íbúðarhús af ótta við fleiri sprengingar. Ekki liggur fyrir hvað olli sprengingunni. 9.10.2011 13:00
Tusk spáð sigri í Póllandi Borgaravettvangi, flokki Donalds Tusk forsætisráðherra Póllands, er spáð sigri í þingkosningum í Póllandi í dag. Gangi það eftir verður það í fyrsta skipti sem ríkisstjórn heldur velli í þingkosningum þar í landi frá lokum kalda stríðsins. Stærsta stjórnarandstöðuflokknum, laga og réttlætisflokki Jaroslaw Kanczynski, er einnig spáð góðu gengi en fylgi flokksins hefur farið vaxandi á undanförnum vikum. Kjörstaðir voru opnaði í morgun en um þrjátíu milljónir eru á kjörskrá. 9.10.2011 11:26
Olíuleki við náttúruperlu Gríðarstórt flutningaskip strandaði á skeri úti fyrir einni fegurstu baðströnd Nýja-Sjálands. Þegar er talið að um 30 tonn af olíu hafi lekið í sjóinn og myndað um 5 kílómetra langa rák. Ef skipið brotnar eru um 1.700 tonn af olíu innanborðs sem geta flætt yfir eina fegurstu náttúruperlu Nýja-Sjálands. 9.10.2011 11:11
Íslensk fegurðardrottning stöðvaði glæpamann Bandaríska blaðið Boston Globe fjallar ítarlega um handtökuna á James "Whitey" Bulger sem var á topp tíu lista FBI yfir eftirlýsta glæpamenn í dag. 9.10.2011 12:00
Jobs skilur eftir sig nýjar hugmyndir Hinn nýlátni forstjóri Apple, Steve Jobs virðist hafa skilið eftir sig uppkast að nýjum vörum sem munu endast fyrirtækinu næstu fjögur árin. Frá þessu er greint á vefmiðli The Daily Mail. Þrátt fyrir að hafa tekist á við alvarleg veikindi undanfarið vann Steve Jobs síðastliðið ár að vörum sem hann áleit að myndu tryggja framtíð fyrirtækisins. Meðal þeirra eru uppfærðar týpur af ipod, ipad, iphone og macbook. Þá má einnig nefna að hann hefur unnið mikið að svonefndu iCloud verkefni, sem mun gera Apple notendum kleift að vista gögn sín á fjarlægum diskum utan tölvunnar. 8.10.2011 20:46
Bob Dylan sakaður um hugverkastuld Málverk poppsöngvarans Bob Dylan þykja óþægilega lík þekktum ljósmyndum eftir ljósmyndara á borð við Henri Carier-Bresson. Myndir Dylans eru kallaðar Asíska röðin (e. The Asian Series). Þær eiga að sögn að byggja á persónulegri reynslu Dylans af ferðum um Japan, Kína, Víetnam og Kóreu. Mörgum þykir erfitt að trúa þeirri fullyrðingu eftir að hafa séð líkindi myndanna við eldri ljósmyndir. 8.10.2011 20:08
Kannabis verði ólöglegt í Hollandi Hollenska ríkisstjórnin hyggst hér eftir flokka „sterkt" kannabisefni með fíkniefnum á borð við kókaín og alsælu. Þannig stefnir hún að því að gera sölu kannabisefna með yfir 15% THC ólöglega. 8.10.2011 18:32
Uppreisnarmenn ná hverfum í Sirte á sitt vald Sveitir uppreisnarmanna í Líbíu hafa í dag náð tökum af ákveðnum hluta Sirte, meðal annars miðbæjarhverfinu. Þeir mæta þó enn öflugri mótspyrnu stuðningsmanna Gaddafi. 8.10.2011 17:21
Höfðu Nóbelsverðlaunin áhrif á Saleh? Kunnugir menn telja þá staðreynd að friðarverðlaun Nóbels féllu í skaut aðgerðarkonunnar Tawakkul Karman frá Jemen vera eina orsök þess að forseti landsins lofaði í dag að segja af sér. 8.10.2011 16:42
Hvetur til ritfrelsis í Búrma Yfirmaður ríkisstofnunar sem sér um ritskoðun fréttamiðla í Búrma hvetur nú til þess að ritskoðun þar verði afnumin. Miðlar í Búrma hafa hingað til verið meðal þeirra sem mest eru ritskoðaðir í öllum heiminum. 8.10.2011 15:27
Forseti Jemen hyggst segja af sér Forseti Jemen, Ali Abdullah Saleh, hefur tilkynnt að hann muni láta af völdum á næstu dögum. Afsögn sína tilkynnti hann á ríkissjónvarpsstöð Jemen fyrr í dag. Tawakul Karman, baráttukona sem hlaut friðarverðlaun Nóbels fyrr í vikunni, tekur þessum yfirlýsingum með miklum fyrirvörum. "Satt að segja trúum við honum ekki," sagði hún í viðtali við fréttamiðilinn Al Jazeera og hét því að láta ekki af friðsamlegum mótmælum þar til forsetinn gefur völdin eftir. 8.10.2011 14:33
Rússar snúast gegn stjórn Sýrlands Forseti Rússlands, Dimitry Medvedev, hefur mælst til þess að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, komi að umbótum í landinu hið fyrsta eða segi af sér. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar setja opinberlega fram gagnrýni á stjórn Sýrlands síðan uppreisnin þar í landi hófst fyrir sex mánuðum. 8.10.2011 10:57
Sprengingar í dönsku vöruhúsi Danskir reykkafarar kljást nú við eldsvoða eftir að miklar sprengingar urðu í vöruhúsi í þorpi í Danmörku. Orsök sprenginganna er enn á huldu, en talsmaður lögreglu telur að vöruhúsið hafi verið fullt af flugeldum. 8.10.2011 14:10
Rick Perry glatar helmingi fylgis síns Eftir að hafa skotist upp á stjörnuhimininn í baráttunni um útnefningu Repúblikanaflokksins til forsetaembættis Bandaríkjanna virðist Rick Perry, ríkisstjóri Texas, nú vera að upplifa stjörnuhrap. Hann hefur glatað um helmingi fylgis síns síðasta mánuðinn samkvæmt nýrri könnun Washington Post og ABC News. Mitt Romney, fyrrverandi ríkisstjóri Massachusetts, hefur hins vegar aftur bætt við fylgi sitt og hefur tekið forystu í kapphlaupinu. Hástökkvarinn í könnuninni er aftur á móti hinn þeldökki kaupsýslumaður Herman Cain, sem nú mælist með næstmest fylgi frambjóðenda flokksins. Könnunin bendir í öllu falli til þess að Barack Obama, sitjandi forseti, eigi verulega á brattann að sækja í forsetakosningunum á næsta ári, en 55 prósent kjósenda segjast telja að Repúblikanar nái hvíta húsinu, en 37 prósent telja að Obama haldi því. 8.10.2011 13:00
Mótmæli á Ítalíu Námsmenn á Ítalíu mótmæltu í gær niðurskurði ítalskra stjórnvalda á menntakerfinu. Skólar landsins voru lokaðir og hundruðir þúsunda námsmanna flykktust út á götur landsins með kyndla og skilti og hrópuðu gífuryrði um stjórnmálamenn landsins. 8.10.2011 12:18
Árekstur í Kína 35 manns týndu lífinu í rútuslysi á hraðbraut í Kína í gær. 18 manns til viðbótar meiddust. 8.10.2011 11:51
Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Erlent