Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Borgarstjórinn gagnrýnir mótmælendur í New York Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, sagði í kvöld að mótmælendur í New York vilji örkumla efnahag borgarinnar. Hann sagði aðgerðasinna vilja taka störf þeirra sem vinna á Wall Street. Ummæli Bloombergs eru þau hörðustu í garð mótmælanna sem fallið hafa hingað til. 7.10.2011 23:45
Hart barist í Sirte Orrustan um Sirte hefur nú staðið í nokkra daga. Hermenn byltingarhersins í Lýbíu hafa nú sótt að miðju borgarinnar sem er eitt af síðustu vígjum stuðningsmanna Gaddafi, fyrrum leiðtoga landsins. 7.10.2011 23:30
Eftirsóttur hryðuverkamaður var uppáhald CIA Jalaluddin Haqqani er nú efstur á lista Bandaríkjamanna yfir eftirlýsta hryðuverkamenn. Komið hefur í ljós að Haqqani var á sínum tíma styrktur af Bandaríkjunum. 7.10.2011 22:00
Ræða Jobs vekur hrifningu Síðan fréttir bárust af fráfalli Steve Jobs síðasta miðvikudag hefur gríðarlegur fjöldi horft á ræðu sem fyrrum forstjórinn hélt í Stanford háskólanum. 7.10.2011 21:45
Amanda Knox sakar Ítalskan fangavörð um áreitni Amanda Knox sagði í dag að hún hefði þurft að þola kynferðislega áreitni á meðan dvöl hennar í ítölsku fangesli stóð. Hún segir að háttsettur stjórnandi fangelsisins hafi áreitt hana. 7.10.2011 21:15
Ósonlag á Venus Vísindamenn telja að ósonlag sé að finna á Venus. Áður var talið að Jörðin og Mars væru einu plánetur sólkerfisins sem hefðu ósónlag. 7.10.2011 21:05
Vilja forðast frekari lekamál Yfirvöld Bandaríkjanna kynntu í dag aðgerðaráætlun sem á að koma í veg fyrir viðvarandi leka í opinberum stofnunum. Er þetta gert til að forðast annað Wikileaks mál þar sem hernaðargögn og diplómatísk skeyti voru gerð opinber. 7.10.2011 20:24
Fjöldi líka fundust í Mexíkó Þrjátíu og tvö lík fundust í gær í Mexíkósku borginni Veracruz þar sem eiturlyfjaklíkur hafa barist á banaspjót. 7.10.2011 12:20
Föst á milli rúms og veggjar í fjóra daga Áttræð kona í Kalíforníu var hætt komin á dögunum þegar hún datt úr rúmi sínu og skorðaðist á milli rúms og veggjar. Hún gat sig hvergi hreyft og varð auk þess fyrir áverkum á höfði við fallið. Konan býr ein og liðu heilir fjórir dagar frá því hún festist og uns henni var bjargað af starfsmanni félagsþjónustunnar í bænum sem kom að gá að henni. Hún er nú á batavegi á sjúkrahúsi. 7.10.2011 12:17
Hélt að Júpíter væri neyðarblys Allt tiltækt björgunarlið var sent af stað í breska strandbænum Tynemouth í vikunni þegar áhyggjufullur íbúi sagðist hafa séð neyðarblys log á himninum undan strönd bæjarins. 7.10.2011 12:15
Sirleaf deilir friðarverðlaunum Nóbels með tveimur öðrum konum Ellen Johnson Sirleaf forseti Líberíu er handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár en verðlaununum deilir hún með tveimur öðrum konum sem barist hafa fyrir friði. Þær eru Leymah Gbowee sem leiddi baráttuna fyrir friði í Líberíu þegar borgarastyrjöldin í landinu stóð sem hæst og Tawakul Karman, stjórnmálamaður frá Jemen sem lengi hefur barist fyrir auknum mannréttindum þar í landi. 7.10.2011 09:03
Tíu ár liðin frá innrásinni í Afganistan Tíu ár eru nú liðin frá því Bandaríkjamenn réðust inn í Afganistan og sér ekki fyrir endan á átökunum í landinu. 7.10.2011 08:43
Hver fær friðarverðlaunin? Tilkynnt verður í dag klukkan níu í Osló hver hlýtur Friðarverðlaun Nóbels þetta árið. Eins og venjulega reyna menn að giska á hver hljóti hnossið og eru margir á því að kona verði fyrir valinu í þetta skiptið. Þorbjörn Jagland formaður nefndarinnar sagði við norska ríkissjónvarpið í gær að hann telji að vinningshafanum í ár verði vel tekið um allan heim. 7.10.2011 07:00
Wikipedia mótmælir frumvarpi Berlusconi Frjálsa alfræðiritið Wikipedia hefur lokað ítölsku síðunni sinni. Var þetta gert í mótmælaskyni gegn áætluðum lögum sem myndu neyða útgáfur til að birta breytingar á greinum innan 48 klukkutíma frá birtingu. 6.10.2011 23:54
Fornleifauppgröftur Pútíns sviðsettur Fyrir stuttu var greint frá því að Vladimir Pútín hafi uppgötvað skipsflak á botni Svartahafs. Í skipinu fannst mikið af menjum. Tökuvélar voru á staðnum og mynduðu forsetann kafa eftir gripunum. Í myndbandinu sást til Pútíns draga ævaforn ker og krukkur af hafsbotni. 6.10.2011 23:22
Filippseyingur umbreytist í Súperman Flestum langar á einhverjum tímapunkti að vera Súperman. Sumir, hins vegar, ganga skrefinu lengra. Herbert Chavez, 35 ára gamall Filippseyingur, tók það skref. 6.10.2011 22:54
Dráp bin Laden dregur dilk á eftir sér Niðurstaða nefndar sem skipuð var af yfirvöldum í Pakistan mælir með því að Dr Shakeel Afridi verði saksóttur fyrir landráð. Læknirinn er sakaður um að hafa aðstoðað leyniþjónustu Bandaríkjanna við að hafa hendur í hári Osama bin-Laden. 6.10.2011 22:32
Obama og Pelosi fagna mótmælum Nancy Pelosi, fyrrverandi forseti fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, fagnaði í dag krafti og áræðni mótmælenda í Bandaríkjunum. Hún sagði mótmælin vera sjálfsprottin, einbeitt og að þau muni bera árangur. 6.10.2011 22:09
Enn barist í Sirte Hermenn byltingarhersins í Lýbíu hafa sótt að borginni Sirte síðustu daga. Leyniskyttur Muammars Gaddafi hafa hins vegar haldið þeim í skefjum. Gaddafi varaði leiðtoga þróunarríkja við því að styðja byltingarstjórnina í Lýbíu - þeir myndu að öllum líkindum uppskera sömu örlög og hann á endanum. 6.10.2011 21:11
Forsetafrú í sprellikarlahoppi Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, ætlar að setja heimsmet í samhæfðu sprellikarlahoppi á morgun. Forsetafrúin mun hitta hóp barna á morgun og munu þau hefja hoppið. Hún mun síðan leiða hóp ríflega 20.000 einstklinga hvaðanæva úr heiminum. 6.10.2011 20:40
Tilkynnt um mótmæli við jarðarför Steve Jobs Leiðtogi sérstrúarsafnaðarins Westboro Baptist Church lýsti því yfir í dag að meðlimir safnaðarins muni mótmæla við jarðarför Steve Jobs, fyrrum forstjóra Apple. 6.10.2011 20:23
Mikið mannfall í Sýrlandi Talið er að 2.900 manns hafi nú fallið í Sýrlandi síðan mótmæli hófust þar í mars. Þetta segir mannréttindastofa Sameinuðu Þjóðanna. Mótmælendur krefast lýðræðisumbóta og að Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, fari frá völdum. 6.10.2011 20:01
Obama gagnrýnir fulltrúadeildina Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann muni beita öllum brögðum til að fá atvinnufrumvarp sitt samþykkt í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. 6.10.2011 19:46
Tomas Tranströmer fær Nóbelsverðlaunin í bókmenntum Sænska skáldið Tomas Tranströmer fær Nóbelsverðlaunin í bókmenntum þetta árið en Nóbelsakademían tilkynnti það í Stokkhólmi í dag. Tranströmer er á meðal þekkustu skálda Norðurlanda en hann er fæddur árið 1931. Fyrsta ljóðasafn hans kom út árið 1954 og hefur hann hlotið margvíslegar viðurkenningar á ferlinum. Árið 1990 hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir ljóðabókina "För levande och döda“ og kom hún út á íslensku í bókinni "Tré og himinn“ í þýðingu Njarðar P. Njarðvík. 6.10.2011 11:44
Vildu sýna mun á kynþáttum Stjórnendur Charité-háskólasjúkrahússins í Berlín hafa skilað fulltrúum ættbálka frá Namibíu hauskúpum 20 Namibíubúa sem fluttar voru til Þýskalands á árunum 1904 til 1908, þegar landið var þýsk nýlenda. 6.10.2011 11:15
Sýndi fram á hið ómögulega Ísraelski vísindamaðurinn David Schechtman fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að hafa bylt hugmyndum efnafræðinga um föst efni. 6.10.2011 11:00
Fær Dylan Nóbelinn í dag? Í dag klukkan tvö mun Nóbelsakademían í Stokkhólmi tilkynna um hver verði þess heiðurs aðnjótandi að hljóta verðlaunin í bókmenntum þetta árið. Ávallt hvílir mikil leynd yfir ákvörðun akademíunnar en veðbankar keppast við að giska hver sá heppni verði. 6.10.2011 10:01
Kínverjar hóta Bandaríkjunum viðskiptastríði Kínversk stjórnvöld hafa brugðist ókvæða við lagafrumvarpi sem öldungadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að taka á dagskrá. Frumvarpið felur í sér heimild til stjórnvalda til að refsa ríkjum sem vísvitandi halda gengi gjaldmiðils síns niðri. 6.10.2011 09:30
Mótmælin á Wall Street breiðast út Þúsundir Bandaríkjamanna komu saman í gær á Wall Street og víðar til þess að mótmæla bankakerfinu og þeim tilslökunum sem stórfyrirtæki hafa fengið hjá ríkisstjórn Bandaríkjanna og hækkandi atvinnuleysi. 6.10.2011 08:06
Palin eyðir óvissunni - ætlar ekki í framboð Sarah Palin, fyrrverandi ríkisstjóri í Alaska hefur greint frá því að hún ætli ekki að bjóða sig fram sem forsetaefni Repúblikanaflokksins en baráttan um hver fái það verkefni harðnar nú með hverjum deginum. 6.10.2011 08:03
Minnast spámannsins í rúllukragabolnum Barack Obama Bandaríkjaforseti segir að með fráfalli Steve Jobs stofnanda Apple hafi heimurinn misst mikinn hugsjónamann. Í minningarorðum sem birt hafa verið á heimasíðu Hvíta hússins segir Obama að Jobs hafi verið á meðal merkustu frumkvöðla bandarískrar sögu. "Nægilega hugaður til þess að hugsa á annan veg, Nægilega djarfur til að halda að hann gæti breytt heiminum og nægilega hæfileikaríkur til þess að takast það,“ segir forsetinn um forstjórann. 6.10.2011 07:28
Bylting í geimvísindum Flóknasta stjörnustöð á jörðu niðri, ALMA, var tekin formlega í notkun á dögunum. Mörg þúsund vísindamenn frá öllum heimshornum hafa keppst um að vera meðal þeirra fyrstu sem fá tækifæri til að kanna dimmustu, köldustu, fjarlægustu og best földu svæði alheims með sjónaukanum. 6.10.2011 06:00
Stendur við niðurskurðinn David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, segir að skuldavandi evruríkjanna ógni nú efnahagslífi heimsins ekki síður en lánsfjárkreppan árið 2008. 6.10.2011 06:00
Steve Jobs látinn Steve Jobs, stofnandi og fyrrum forstjóri Apple, lést í dag en þetta kom fram á heimasíðu Apple fyrir stundu. Hann var 56 ára að aldri en hann hefur barist við krabbamein í brisi í nokkurn tíma. 5.10.2011 23:52
Google vandamál Rick Santorum Rick Santorum, einn af hugsanlegum forsetaframbjóðendum í Bandaríkjunum, á við heldur óheppilegt vandamál að stríða. 5.10.2011 23:31
Palin ætlar ekki í framboð til forseta Sarah Palin sagði í dag að hún ætlaði ekki að bjóða sig fram til forseta á næsta ári. Palin, sem var varaforsetaefni John McCain árið 2008, var ekki talin líklega til að fara í framboð. Þó voru margir sem vonuðust eftir því. Núverandi frambjóðendur Repúblikana eru ekki taldnir heilla kjósendur. 5.10.2011 23:30
Google fjarlægir smáforrit úr vefverslun Google hefur fjarlægt smáforrit úr vefverslun sinni eftir að hagsmunasamtök og baráttuhópar lýstu yfir vonbrigðum sínum. 5.10.2011 22:43
Kröfuganga í New York á miðvikudaginn Mótmælin halda áfram í Bandaríkjunum. Síðustu daga hefur hreyfingin Occupy Wall Street vaxið ásmeginn og hafa mótmælendahópar sprottið upp víða þar í landi. 5.10.2011 22:14
Vísindamenn klóna stofnfrumur Vísindamönnum í Bandaríkjunum hefur tekist að klóna stofnfrumur út frá DNA kjarnsýru sjúklings. Árangurinn hefur vakið mikil athygli enda eru stofnfrumurannsóknir mikið hitamál í Bandaríkjunum. 5.10.2011 21:45
Skotárás í Kalforníu Ofbeldismaður skaut átta mans í sementverksmiðju nú fyrir stuttu í Kaliforníu. Lögreglan segir að starfsmaður verksmiðjunnar, Shareed Allman, hafi verið að verki. Allman flúði af vettvangi og leitar lögreglan hans nú. 5.10.2011 21:22
Drakk kaffi og var í fartölvunni undir stýri Þau er jafn ólík og þau eru mörg málin sem lögreglumenn þurfa að kljást við í daglegum störfum sínum. Í sérstöku átaki hjá lögreglunni í bænum Hampshire á Englandi á dögunum kom í ljós að ökumenn virtust vera uppteknir við að gera eitthvað allt annað en að keyra bílinn. 5.10.2011 21:11
Palestína sækir um aðild að UNESCO Stjórn UNESCO hefur ákveðið að kjósi skuli um aðild Palestínu að ráðinu. 5.10.2011 20:47
Mannskæð flóð í Tælandi Mikil flóð hafa verið á Tælandi undanfarna mánuði og er talið að minnsta kosti 237 hafi farist í flóðunum. 5.10.2011 20:28
Bleik Kristsstytta í Rio de Janeiro Kristsstyttan sem vakir yfir Rio de Janeiro er nú böðuð bleikri birtu. Er þetta gert í tilefni af mánaðarlangri vitundarvakningu um brjóstakrabbamein sem nú stendur yfir. 5.10.2011 20:14
Mál fangavarða útrýmingarbúða tekin upp Þýskir saksóknarar rannsaka nú að nýju fjölda mála tengdum grunuðum fangavörðum í útrýmingarbúðum nasista. 5.10.2011 20:00