Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bræðslunni lauk án meiriháttar áfalla Síðasta kvöld útihátíðarinnar Bræðslunnar í Borgarfirði eystri fór fram í gær. Hátíðin gekk öll fyrir sig án meiriháttar áfalla að sögn lögreglu. 29.7.2012 15:06
Undarlegt að Sæferðir séu eina fyrirtækið sem er kært Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða, segir að það sé ekkert leyndarmál að fyrirtækið hafi farið með ferðamenn upp að arnarhreiðrum til að fylgjast með fuglunum. Hann hafnar því hins vegar algerlega að þeir beri sérstaka ábyrgð á því að arnarvarp hafi misfarist í Breiðafirði og Vestfjörðum. Honum finnst einnig undarlegt að Sæferðir séu eina fyrirtækið sem er kært fyrir skoðunarferðir á svæðinu. 29.7.2012 14:00
Íslendingar óvenju hjátrúarfullir miðað við menntaðar þjóðir Íslendingar eru ákaflega hjátrúafullir í samanburði við önnur menntuð þjóðfélög. Þá hafa Íslendingar orðið enn hjátrúafyllri eftir hrun. Þetta kemur fram í rannsókn doktors í sálfræði við Oxford háskóla. 29.7.2012 13:15
Vill að fundargerðir ríkisstjórnar um félag Nubos verði opinberaðar Lilja Mósesdóttir, alþingismaður, óskar eftir því að fundargerðir ríkisstjórnarinnar frá fundi þar sem fjallað var um stofnun íslensks félags í eigu Huang Nubo verði gerðar opinberar. Ívilnanasamningur var kynntur ríkisstjórninni í vor en engin ákvörðun var tekin. Aðkoma ríkisstjórnarinnar að málinu hefur í raun verið mjög lítil. 29.7.2012 12:45
Náttúrufræðistofnun kærir Sæferðir vegna bágborins arnarvarps Náttúrufræðistofnun Íslands hefur kært ferðaþjónustufyrirtækið Sæferðir fyrir að sigla með ferðamenn upp að arnarhreiðrum á viðkvæmum tíma. Málið er nú til rannsóknar hjá lögreglu. 29.7.2012 12:14
Hvers vegna villast grindhvalir upp að landi? Það er sjaldgæft að grindhvalavaða villist upp að ströndum lands, líkt og gerðist undan ströndum Njarðvíkur í gær. Það hefur gerst um það bil á tíu ára fresti hér við land að sögn Gísla Víkingssonar, hvalasérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. Þá eiga dýrin það til að synda upp í fjöru og festast. Ekki er vitað hvað veldur þessari hegðun en ýmsar kenningar hafa verið settar fram. 29.7.2012 11:12
Lögreglan hafði afskipti af skemmdarvörgum, röftum og þjófum Nóttin var erilsöm hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mikið um ölvun í miðborginni. 29.7.2012 10:36
Slökkviliðið kallað að Hrafnistu Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var þrisvar sinnum kallað út í nótt. Rétt fyrir sex í morgun barst tilkynning um reyk og reykjarlykt frá Hrafnistu. Einn dælubíll var sendur á svæðið. Engin hætta reyndist á ferðum en skýringin fannst aldrei. Í gærkvöldi var tilkynnt um svartareyk upp af þakinu á Lágafellsskóla í Mosfellsbæ. Öflugt lið af þremur stöðvum var sent á staðinn en þegar fyrsti bíll mætti á svæðið kom á daginn að um brennandi ruslahrúgu aftan við húsið var að ræða. Einnig var tilkynnt um brennandi rusl í hrauninu við Kaplakrika. 29.7.2012 10:23
Arnarvarp með slakasta móti Arnarvarpið var með slakasta móti í ár. Varp misfórst hjá meirihluta þeirra 45 para sem urpu í vor. Helsta ástæðan er að líkindum kuldakastið í maí og truflun af mannavöldum, segir á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. 29.7.2012 10:10
Júlíus Vífill er hræddur um verslunina á Laugarveginum Borgarfulltrúi sjálfstæðismanna óttast að hækkun bílastæðagjalds í Reykjavík muni hafa neikvæð áhrif á þróun verslunar í miðborginni. Hann gagnrýnir meirihlutann fyrir samráðsleysi. 28.7.2012 20:47
Kviknaði í bíl á þjóðveginum Eldur kom upp í jepplingi á veginum til móts við bæinn Neðri-Ás III rétt við Hofsós í kvöld. Frá þessu er greint á vef mbl.is en þar segir að bíllinn sé gerónýtur. Slökkvilið er komið á staðinn. 28.7.2012 20:42
Fyrsti vinningur kom á miða úr Hyrnunni Lottóspilari sem keypti miða í Hyrnunni í Borgarnesi vann fyrsta vinning í Lottó í kvöld. Hann var með fimm tölur af fimm réttar og hlýtur rúma 16 og hálfa milljón króna. 28.7.2012 20:00
Gat keypt hálfan dal án leyfis en hefði þurft undanþágu í Danmörku Sænskur kaupsýslumaður gat keypt þrjár og hálfa jörð í Langadal við Ísafjarðardjúp án sérstaks leyfis, ólíkt Kínverjanum Huang Nubo. Hefðu svipaðar lagareglur gilt hér og í Danmörku um búsetu hefði Svíinn þurft undanþágu stjórnvalda. 28.7.2012 19:12
Ferðamennirnir borða líka sveppi Framleiðsla Flúðasveppa er jöfn allt árið um kring, en á sumrin anna þeir ekki eftirspurn. Skýringin er einföld, segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins, erlendir ferðmenn borða líka sveppi og markaðurinn stækkar. 28.7.2012 19:02
Jóhannes segir mikilvægt að gefa Löng röð myndaðist fyrir utan matvöruverslunina Iceland í Kópavogi í dag. Kaupmaðurinn sjálfur, Jóhannes Jónsson, opnaði dyr verslunarinnar í fyrsta sinn og fékk að launum heillaóskir og blómagjafir. 28.7.2012 18:56
Sundkona fetar í fótspor Grettis sterka Sundkonan Birna Hrönn Sigurjónsdóttir ákvað að synda Drangeyjarsundið í dag og á um 700 metra eftir þegar þetta er skrifað. Veðrið er ekki sem hagstæðast, eða um 8 m/s suðvestan átt. Sjórinn er nokkuð úfinn en Birna er vön sundkona og hefur bát til fylgdar. 28.7.2012 18:17
Bræðslan hefur gengið vonum framar Útihátíðin Bræðslan stendur nú yfir í Borgarfirði Eystri. Hún hefur farið friðsamlega fram og allt gengur vonum framar að sögn lögreglunnar á Egilsstöðum. 28.7.2012 17:45
Stutt í kosningar í Heimdalli Nú styttist í kosningar til stjórnar Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík. Kosningarnar fara fram næsta miðvikudag, þann 1. ágúst. 28.7.2012 17:20
Laumufarþeginn kominn til Bandaríkjanna Hælisleitandinn sem fannst um borð í bandaríska rannsóknarskipinu Knorr í síðustu viku er kominn á land í Bandaríkjunum. Mál hans eru nú í höndum bandarískra stjórnvalda. Frá þessu var greint á vef Ríkisútvarpsins. 28.7.2012 15:58
Alcatraz sundgarparnir óttast ekki hákarla Íslensku þrímenningarnir sem ætla að synda yfir San Francisco-flóa voru rétt í þessu að stíga um borð í skipið og leggja af stað. Þeir eru í fjölmennum hóp sundkappa en segjast vera þeir einu sem stefni á að synda á adamsklæðunum einum saman, aðrir ætli að synda í blautbúning. 28.7.2012 15:07
Grindhvalavaða hamast rétt undan ströndum Njarðvíkur Hundruð grindhvala hafa verið í allan morgun rétt undan landi neðan við byggðina í Dalshverfi Innri Njarðvíkur. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína að staðnum til að berja hvalina augum og áætlar að milli tvö og þrjú hundruð hvalir séu á svæðinu. 28.7.2012 14:21
Tæplega byggilegt við Ísafjarðardjúp vegna tófu Bóndi á Laugabóli við Ísafjarðardjúp hefur misst nákvæmlega 173 lömb í gin tófunnar á sex árum. Hún skilur ekki af hverju er verið að vernda jafngrimmt dýr og tófuna. 28.7.2012 13:53
Þingmenn VG tortryggnir gagnvart áformum Nubos Formaður þingflokks Vinstri grænna segir að almennt séu þingmenn flokksins tortryggnir í garð uppbyggingar Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum, ekki síst vegna misvísandi yfirlýsinga umboðsmanns hans hér á landi. 28.7.2012 13:42
Skrifar um spillingu og kröfuna um sterkan leiðtoga Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, skrifar í Morgunblaðið í dag undir yfirskriftinni "Tröllriðna land - sprungið af spillingu". Í greininni líkir hún tíðaranda dagsins við ástandið í Weimarlýðveldinu sem leiddi til uppgangs fasisma í Evrópu. 28.7.2012 13:34
Verndun votlendis ber ávöxt Verndun votlendisins í Vatnsmýrinni í Reykjavík virðist vera skila árangri. Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að í sumar hafi reglulega sést þar þrjár andartegundir sem ekki hafi sést á svæðinu í áraraðir. Um er ræða rauðhöfðaönd, skúfönd og duggönd. 28.7.2012 13:01
Lögreglan fylgist með hraðakstri úr þyrlu Lögreglumenn flugu með þyrlu Landhelgisgæslunnar um Suðurland í gær og höfðu eftirlit með umferð úr lofti. Afskipti voru höfð af sex ökumönnum sem óku of hratt. 28.7.2012 12:57
Fólk mætti með blóm fyrir Jóhannes Fólk mætti með blómvendi og rósir fyrir Jóhannes Jónsson þegar hann opnaði nýju matvöruverslunina Iceland í morgun. Fjölmenni var komið saman og beið fyrir utan þegar verslunin opnaði. 28.7.2012 12:18
Sér fyrir endann á vatnsskorti Framkvæmdir við nýja vatnsveitu fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki í Borgarfirði verða boðnar út um helgina. Með framkvæmdum vonast menn til að sjái fyrir endann á þeim erfiðleikum sem hafa verið í vatnsveitu á svæðinu. 28.7.2012 11:53
Hugmyndir um skipulag Öskjuhlíðar streyma inn Í sumar stendur yfir hugmyndasamkeppni um nýtingu Öskjuhlíðar og eru tillögur byrjaðar að streyma inn. Ólöf Örvarsdóttir, sviðstjóri skipulags- og byggingarsviðs hjá Reykjavíkurborg, segir að fólk þurfi ekki að vera landslagsarkitekt eða sérmenntað til að taka þátt. 28.7.2012 11:21
Ættleiðingardagurinn í Kattholti Í dag er ættleiðingardagurinn í Kattholti, en hann er haldinn á hverju ári. Þar geta þeir sem vilja fá sér kött komið í heimsókn og valið þann kött sem þeim líst best á. Sömuleiðis gefst fólki kostur á að skoða starfsemina í Kattholti. Fjölmargir kettir eru í kattholti, bæði stálpaðir og kettlingar. Fjölmargt fólk sótti viðburðinn í fyrra en opið verður á milli klukkan ellefu og tvö. 28.7.2012 11:00
Aukinn stuðningur við fatlaða í Hinu Húsinu Borgarráð samþykkti fyrir helgi að veita 10,8 milljónir til starfsemi fyrir fatlaða í Hinu Húsinu. Viðvera verður lengd og reynt að mæta þörfum allra fatlaðra framhaldsskólanema að fullu. 28.7.2012 10:46
350 ár liðin frá Kópavogsfundinum Í dag eru liðin þrjú hundruð og fimmtíu ár frá Kópavogsfundinum þar sem Íslendingar samþykktu erfðaeinveldið, en hann fór fram árið 1662. 28.7.2012 10:24
Slökkviliðið ræst vegna gufu úr ræsum Allt tiltækt slökkvilið var ræst um fjögur leytið í nótt vegna tilkynningar um reyk og reykjarlykt á Héðinsgötu. Þegar fyrstu dælubílar mættu á staðinn kom þó á daginn að um var að ræða gufu úr brunnlokum og ræsum á svæðinu. Engin hætta var á ferðum og því var liðinu öllu snúið við. 28.7.2012 10:07
Ungur maður stunginn í nótt Rúmlega tvítugur karlmaður var stunginn um tvö leytið í nótt í austurbæ Reykjavíkur. Þegar lögregla og sjúkraliðar komu á vettvang var gerandinn flúinn þaðan. Margir urðu hins vegar vitni að atvikinu og nú hefur meintur gerandi verið handtekinn. Maðurinn var stunginn með hníf í öxlina og var í kjölfarið fluttur á slysadeild til aðhlynningar. 28.7.2012 10:06
Átök hafin í Aleppo Orrustan um Aleppo, stærstu borg Sýrlands, er hafin. Stjórnarhermenn hafa nú hafið gagnsókn sína gegn uppreisnarmönnum Frelsishers Sýrlands en þeir hafa hertekið stór svæði borgarinnar. 28.7.2012 09:16
Vill svipta lögbrjóta stöðu hælisleitenda „Verði menn uppvísir að svona lögbroti eiga þeir náttúrulega að missa öll réttindi sem hælisleitendur,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, um þá menn sem hafa verið gripnir við að brjótast inn á athafnasvæði fyrirtækisins undanfarið og reynt að lauma sér um borð í skip. 28.7.2012 09:00
Dreginn á þurrt að Fjallabaki Ferðamenn á jepplingi sem þeir höfðu tekið á leigu lentu í ógöngum á miðvikudag þegar þeir festu bílinn í á sem rennur á Fjallabaksleið syðri. 28.7.2012 08:30
Bæta starfið á gæsluvellinum í Setbergi „Nokkrar úrbætur voru gerðar á gæsluvellinum,“ segir Axel Guðmundsson, yfirflokkstjóri Vinnuskóla Hafnarfjarðar, um gæsluvöllinn í Setbergshverfi í Hafnarfirði. Gæsluvöllurinn heyrir undir Vinnuskólann. 28.7.2012 08:00
Kippur í sölu byggingarkrana Þýska fyrirtækið Rueko GmbH hefur keypt 60 prósenta hlut í fyrirtækinu Hýsi – Merkúr, sem flytur meðal annars inn byggingarkrana og vinnuvélar. Kaupin, ásamt uppbyggingu nýrra höfuðstöðva, kosta þýska fyrirtækið hundruð milljóna króna. 28.7.2012 07:00
21 hringur fyrir gott málefni Baldvin Vigfússon hefur í dag hringferð um landið til styrktar góðu málefni. 28.7.2012 07:00
„Ekki mögulegt að uppfæra daglega“ Viðmiðunargengi evru sem Bláa Lónið notar til að ákvarða verðskrá sína er tæpum fimm krónum hærri en skráð gengi evru hjá Seðlabankanum. Bláa Lónið hækkaði í vikunni viðmiðunargengi upp í 155 krónur á evru en Seðlabankagengi evru sem var rúmar 150 krónum í gær. 28.7.2012 06:00
Íslenski hópurinn glæsilegur í London Íslenski hópurinn gekk inn á Ólympíuleikvanginn í Lundúnum fyrr í kvöld. Ásdís Hjálmsdóttir spjótkastari var fánaberi Íslands og stóð hún sig með stakri prýði. Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaeiff forsetafrú voru í stúkunni og klappaði Ólafur Ragnar fyrir okkar keppendum og Dorrit dansaði. 27.7.2012 22:47
Bændur, myllur og kindur á setningarhátíð "Það er alveg stappað af fólki hérna og það eru allir að bíða bara eftir því að þetta byrji,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, íþróttafréttamaður Vísis og Fréttablaðsins, sem staddur er á Ólympíuleikvanginum í London. Opnunaratriðið byrjar núna klukkan átta og segir Eiríkur að mikil stemming í fólki. "Það er búið að grasleggja allt hérna og búa til svona litla sveitastemmingu. Hér eru hús, myllur, bændur, geitur og kindur. Þetta verður örugglega ótrúlega flott. Það er reyndar búið að rigna aðeins, sem er svo sem ekkert óvenjulegt hér í Bretlandi. En menn eru bara hressir og í góðum fíling,“ segir hann. Opnunaratriðið hefst á slaginu 20 og er hægt að horfa á það í beinni útsendingu á RÚV.is. 27.7.2012 19:58
Yngsta Byrgisstúlkan orðin afburðanemandi Stúlka sem lenti á glapstigum fíkniefna tólf ára gömul og var misnotuð í Byrginu þegar hún var sextán ára ákvað að breyta lífi sínu þegar hún var lífguð við í fjórða skiptið sem hún sprautaði sig með of stórum skammti eiturlyfja. Í sumar hlaut hún styrk frá Háskóla Íslands sem aðeins er veittur afburðarnemendum og stefnir á að læra sálfræði. 27.7.2012 19:25
Fjögur þúsund á Landsmóti skáta Gestum á mótssvæði Landsmóts skáta fer fjölgandi og straumur ferðafólks hefur legið á svæðið síðan síðdegis í gær, enda veðurspá helgarinnar góð. Fjöldi gesta fjölskyldubúða mótsins eru nú þegar kominn yfir eitt þúsund. 27.7.2012 18:19