Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Barnadagurinn haldinn í Viðey á sunnudag Barnadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Viðey, sunnudaginn 29. júlí næstkomandi. Sú hefð hefur skapast í Viðey að bjóða yngstu meðlimum fjölskyldunnar sérstaklega velkomna og bjóða skemmtun og afþreyingu sem þeim er að skapi. 27.7.2012 13:39
Stórafmæli Ray Cup fagnað með tónleikum Jón Jónsson og hljómveitin Retro Stefson munu troða upp á opnum útitónleikum í Laugardalnum í Reykjavík í dag. Tilefnið er 10 ára afmæli knattspyrnumótsins Ray Cup. 27.7.2012 12:56
Hækkunin ákveðin án samráðs við verslunareigendur Samtök kaupmanna og fasteignaeigenda við Laugaveginn í Reykjavík mótmæla harðlega áformum um hækkun bílastæðagjalda í miðborginni sem borgaryfirvöld kynntu í gær. Þar er gert ráð fyrir hækkunum bílastæðagjalda um fimmtíu prósent, auk þess sem til stendur að lengja gjaldskyldu á laugardögum. 27.7.2012 12:14
Á rústabjörgunaræfingu í Þýskalandi Hópur unglinga úr björgunarsveitum af Suðurnesjunum hefur verið á alþjóðlegri rústabjörgunaræfingu í Þýskalandi síðustu vikuna. 27.7.2012 10:37
Flokkstjórnarfundur Samfylkingarinnar í ágúst Flokksstjórnarfundur Samfylkingarinnar verður haldinn á Hótel Natura, sem áður hét Hótel Loftleiðir, í Reykjavík laugardaginn 25. ágúst. Um er að ræða fund sem boðaður hafði verið í júníbyrjun. Á fundinum verða ræddar tillögur um reglur um val á framboðslista, tillaga um sátta- og siðanefnd, tillaga um uppfærða aðgerðaáætlun í málefnum ungs fólks og kosningavorið 2013 ásamt öðrum póltískum málefnum. 27.7.2012 09:49
Börn afskiptalaus á gæsluvelli í Setbergi „Ég fann dóttur mína úti í horni gæsluvallarins í leikfangabíl, umkringda þremur helmingi eldri drengjum, sem voru að djöflast í henni og vildu greinilega hafa af henni bílinn. Hún var orðin skelfd, enda föst í bílnum og enginn starfsmaður í grenndinni til að skakka leikinn,“ segir Laufey Ómarsdóttir, móðir tveggja ára stúlku í Hafnarfirði. 27.7.2012 09:30
Óvenjumikið um sjúkraflutninga í borginni Óvenjumikið var um sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu í nótt og sinntu sjúkraflutningamenn 25 útköllum frá klukkan átta í gærkvöldi. 27.7.2012 07:07
Tveir laumufarþegar teknir í annað sinn í Sundahöfn Lögreglan handtók tvo hælisleitendur á öryggissvæðinu við Sundahöfn í Reykjavík í gærkvöldi þar sem þeir ætluðu að laumast um borð í eitt skip Eimskipa, sem hélt vestur um haf í gærkvöldi. 27.7.2012 06:32
Innanríkisráðherra beitir sér gegn áformum Huang Nubos Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vill að ríkisstjórnin afturkalli leyfi sem veitt hafa verið um ívilnanir vegna fyrirhugaðra áforma kínverska kaupsýslumannsins Huang Nubos um leigu á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann mun taka málið upp í ríkisstjórn á þriðjudag. 27.7.2012 06:30
Andlát fanga enn í rannsókn Rannsókn á andláti fanga á Litla-Hrauni í maí síðastliðnum stendur enn yfir. Niðurstaða úr krufningu er ókomin enn. 27.7.2012 08:30
Vísindin sem keppa við tímann og vatnið Útlit er fyrir að fornleifafræðirannsóknir færi okkur fljótlega stór brot í púsluspili sjálfsvitundar okkar. Þar koma stóriðja, umsvif útlendinga og markaðslögmál við sögu. Fréttablaðið kynnti sér nokkrar rannsóknir sem nú standa yfir. 27.7.2012 08:15
Gjafir til guðshúsa setja sóknir í vanda Brýnt er að koma á ákveðnu vinnulagi varðandi gjafir og innkaup fyrir kirkjur landsins, segir Páll V. Bjarnason, formaður húsafriðunarnefndar. Hann segir að í flestum sóknum landsins sé kirkjunnar fólk í vandræðum með gjafir og innkeypta muni sem sýnt þykir að henti kirkjunum ekki eða stingi hreinlega í stúf. 27.7.2012 07:30
Fleira en vatnsskortur veldur minni laxagengd Það er eitthvað fleira í lífríkinu en vatnsskortur, sem veldur þvi að töluvert minna er um lax í flestum ám en í fyrra. 27.7.2012 07:11
Ökumaður slapp ómeiddur úr bílveltu Ökumaður slapp ómeiddur þegar bíll hans valt á hvolf í hringtorgi við Rauðavatn í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt. 27.7.2012 07:09
Notar frekar bílinn en göngin „Þetta eru löng göng og maður fær hroll þegar maður gengur þarna í gegn, göngin eru svo dimm,“ segir Ósk Kvaran sem sendi Fréttablaðinu ábendingu um göng við Kringluna undir Miklubraut. 27.7.2012 07:00
Áhersla á mannúð og réttindi Málefni hælisleitenda hafa verið mikið í fréttum undanfarið. Forstjóri Útlendingastofnunar hefur kallað eftir auknum fjárframlögum og telur að ráða þurfi fjóra lögfræðinga til stofnunarinnar. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist margoft hafa gert fjárþörf stofnunarinnar að umtalsefni. 27.7.2012 07:00
Greiðsluþak dregur úr notkun dýrra lyfja Árangur af aðgerðum stjórnvalda til að draga úr lyfjakostnaði hefur skilað gríðarlegum árangri, að sögn Guðrúnar Gylfadóttur, deildarstjóra lyfjadeildar Sjúkratrygginga Íslands. „Í fyrra lækkaði kostnaðurinn þriðja árið í röð. Kostnaður sjúkratrygginga vegna þunglyndislyfja lækkaði til dæmis um 575 milljónir króna frá árinu 2009 til 2011 eða um 53 prósent,“ greinir Guðrún frá. 27.7.2012 06:00
Tryggingastofnun fór ekki að lögum Tryggingastofnun og Úrskurðarnefnd almannatrygginga fóru ekki að lögum þegar umsókn foreldra fatlaðs drengs um styrk til bílakaupa var hafnað árið 2010. Þetta er niðurstaða Umboðsmanns Alþingis, sem birti álit í þá veru í gær. 27.7.2012 05:30
Ný rannsókn: Líkamleg heilsa íslenskra geðklofa er slæm Líkamleg heilsa geðklofasjúklinga á Íslandi er slæm og heilsubrestir þeirra oft vangreindir og vanmeðhöndlaðir. Þetta sýnir ný íslensk rannsókn. ,,Áhættuhópur sem virkilega þarf að hlúa að," segir geðlæknir. 26.7.2012 19:30
Tekjuhæstu Íslendingarnir hækkuðu í launum í fyrsta skiptið frá hruni Laun tekjuhæstu Íslendinga landsins hækkuðu í fyrsta skipti frá hruni á árinu 2011. Ritstjóri Frjálsrar verslunar segir efnahagslífið vera farið að mjakast upp á við og meira svigrúm til launahækkana sé nú innan fyrirtækja eftir mörg hundruð milljarða afskriftir. 26.7.2012 18:31
Umferðarslys í Norðurárdal Umferðarslys varð í Norðurárdalnum rétt fyrir utan Borgarnes um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út og flutti hún að minnsta kosti einn einstakling til Reykjavíkur á sjúkrahús. Lögregla og sjúkrabílar eru á vettvangi en ferkari upplýsingar fengust ekki hjá varðstjóra um slysið. 26.7.2012 17:45
Ólafur og Dorrit í drottningarveislu í Buckinghamhöll Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussiaeff forsetafrú, verða viðstödd setningu Ólympíuleikanna í Lundúnum á morgun. Síðdegis í dag heimsóttu þau Ólympíuþorpið og heilsuðu upp á íslensku keppendurna, þjálfara og fararstjóra. Þá voru þau viðstödd sérstaka athöfn þar sem Ísland var boðið velkomið á leikanna. 26.7.2012 17:22
Ekki í herferð gegn einkabílnum Aðspurður segir Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar, að Besti flokkurinn sé ekki í herferð gegn einkabílnum. Borgarráð samþykkti í morgun að stöðumælagjöld í Reykjavík munu hækka umtalsvert frá og með næsta mánudegi. 26.7.2012 16:11
Verulegar hækkanir á bílastæðagjöldum Verulegar hækkanir verða á bílastæðagjöldum á þremur gjaldsvæðum í Reykjavíkurborg í næstu viku. Gjaldsvæði 1 mun kosta 225 krónur í stað 150 krónur. Gjaldsvæði 2 og 4 mun fara úr 80 krónum í 120 krónur. Um er að ræða skammtímasvæði sem eru miðsvæðis. Hækkunin gildir frá og með mánudeginum 30. júlí. Engin hækkun verður á gjaldsvæði 3, sem er ætlað sem langtímastæði, en á því svæði er m.a. hægt að kaupa miða á u.þ.b. 1.900 krónur sem gildir í tvær vikur. 26.7.2012 15:20
Frábært á meðal fallega fólksins á Íslandi Ben Stiller segir að það sé frábært að vera á Íslandi þar sem sólin sest aldrei og fólkið er fallegt. Hann spjallaði um Ísland þegar hann var gestur í spjallþætti Jimmy Kimmel í gær. 26.7.2012 15:00
Hönnunarsamkeppni um útilaug við Sundhöllina Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu um hönnunarsamkeppni um útfærslu útilaugar við Sundhöll Reykjavíkur. Hugmyndir um útilaug hafa um nokkurt skeið verið til skoðunar hjá Reykjavíkurborg og mun samkeppnin taka mið af þeirri vinnu. 26.7.2012 14:33
Innovit kyndir undir áhuga ungs fólks á sjávariðnaði Innovit fékk nýverið styrk frá Norrænu nýsköpunarmiðstöðinni til að vera umsjónaraðili verkefnis sem nefnist Nordic Innovation Marine Marketing Project (Norrænt nýsköpunarverkefni í markaðssetningu sjávarútvegs). Innovit mun fá til liðs við sig samstarfsaðila af öllum Norðurlöndunum. 26.7.2012 14:30
Getur ekki séð ósamræmi hjá Hæstarétti Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, getur ekki séð að Hæstiréttur sé ósamkvæmur sjálfum sér þegar hann ákveður að ógilda ekki forsetakosningarnar öfugt við stjórnlagaþingskosningarnar á sínum tíma. 26.7.2012 13:41
Allt að verða klárt í Ólympíuþorpinu Nú fer allt að verða klappað og klárt fyrir Ólympíuleikana í London, enda verða þeir settir á morgun. Íslensku keppendurnir hafa verið að týnast þangað hver á fætur öðrum að undanförnu. 26.7.2012 11:42
Litli pokinn í skókössum bannaður Neytendastofa hefur lagt bann við markaðssetningu á vörum sem innihalda dímetýlfúmarat (DMF). Íslenskir neytendur þekkja efnið helst sem innihald lítilla poka sem festir eru innan í ný húsgögn eða sett í kassa hjá vöru, t.d. skókassa. Þannig er efnið notað til að koma í veg fyrir að húsgögn, skór eða aðrar vörur mygli þegar þær eru fluttar frá hitabeltislöndum, t.d. Kína og öðrum ríkjum Asíu. 26.7.2012 11:24
Segir gullgrafaraæði í ferðaþjónustu Mikil aukning hefur verið í útgáfu ferðaskipuleggjendaleyfa á síðasta ári að sögn Ernu Hauksdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Ferðamálaskrifstofa náði á dögunum þeim áfanga að gefa út 500. leyfið á landinu. 26.7.2012 10:49
Íslenskum geitum fjölgar Geitum á Íslandi hefur fjölgað á síðustu árum. Síðustu fimm ár hafa 300 geitur bæst í geitastofn landsins sem nú telur átta hundruð dýr. 26.7.2012 09:49
Fiskar í Kleifarvatni sagðir í andarslitrum „Það er eitthvað mikið að ske þarna og mikið að,“ segir stangveiðimaðurinn Guðmundur Falk á spjallsvæði vefsins veidi.is þar sem hann gerir stöðuna í lífríkinu í Kleifarvatni að umtalsefni. 26.7.2012 09:00
Veðurblíðan dregur úr hraðakstri Minna hefur verið um hraðakstur á helstu ferðamannaleiðum suðvestanlands í sumar en undanfarin sumur, að mati lögreglumanna. 26.7.2012 06:56
Íslendingar mega ekki sigla með frönsku lúxusskipi hér við land Íslenskir ferðamenn eru einu ferðamennirnir í heiminum sem ekki mega sigla með eina farþegaskipinu, sem stundar reglubundnar strandsiglingar við Ísland á sumrin. 26.7.2012 06:41
Yfir 600 laxar úr Elliðaánum Veiðin í Elliðaánum fór yfir 600 laxa á morgunvaktinni á þriðjudag. Dálítið hefur hægt á veiðinni síðari hluta júlímánaðar eftir frábært gengi fram að því. 26.7.2012 08:00
Hafnar kröfu um ógildingu Innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að ekkert sé athugavert við ráðningu Mýrdalshrepps á systursyni oddvita hreppsins sem landvarðar við Dyrhólaey. Systursonurinn var ráðinn án auglýsingar og til þriggja mánaða. Ábúandi einnar jarðarinnar sem á land í Dyrhólaey kærði ráðninguna. 26.7.2012 07:30
Fleiri konur í hópi hákarla en í fyrra Þorsteinn Hjaltested landeigandi greiddi hæsta skatta í fyrra annað árið í röð. Þrettán af 50 hákörlum á lista ríkisskattstjóra eru konur. Hákarlarnir 50 greiða samtals rúman 3,1 milljarð króna í opinber gjöld. Upphæðin hækkar á milli ára. 26.7.2012 07:00
Gúmmítékkar fjölmennir á Akureyri Um það bil 70 áhangendur tékkneska fótboltaliðsins Mladó Bolislov, sem komu til Akureyrar í gær til að styðja lið sitt í leiknum við Þór í Evrópukeppninni á Akureyri í kvöld, þver brutu allar hefðir um fótboltabullur. 26.7.2012 06:58
Björgunarskip kemur með línubátinn til hafnar fyrir hádegið Björgunarskip Landsbjargar frá Rifi á Snæfellsnesi er væntanlegt til heimahafnar um tíu leitið með rúmlega hundrað tonna línubát í togi, eftir að báturinn fékk veiðarfærin í skrúfuna í fyrrinótt og varð vélarvana. 26.7.2012 06:52
Appelsínuguli dagurinn í gær lAppelsínuguli dagurinn er nú haldinn 25. dag hvers mánaðar til höfuðs ofbeldi gegn konum. UNiTE heitir herferð framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna og UN Women. Þá er skorað á fólk hvarvetna í heiminum að klæðast appelsínugulu. 26.7.2012 06:00
Rannsóknarleyfi í Stóru Laxá gefið út Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna áætlana um virkjun í Stóru Laxá. Iðnaðarráðherra vill að um óflokkuð landsvæði gildi það sama og svæði í biðflokki. Best væri ef hið opinbera stæði fyrir rannsóknum. 26.7.2012 06:00
Óttast að fé rústi skógrækt í Þórsmörk Landgræðslustjóri og Skógrækt ríkisins óttast að sauðfé sem rekið er á Almenninga álpist inn í Þórsmörk og eyðileggi áratuga starf við skógrækt. Bændur telja að Skógræktinni beri að girða svæðið af. 26.7.2012 05:15
Jóhannes í Bónus verður Jóhannes í Iceland á laugardaginn Jóhannes Jónsson kaupmaður segist ætla að halda áfram að bjóða upp á lægsta vöruverð á Íslandi, eins og hann hefur gert í tuttugu ár, í nýrri verslun sinni Iceland. Áætlað er að búðin opni á laugardaginn. 25.7.2012 19:54
Tveggja ára á leið í sína fjórðu hjartaaðgerð Þrátt fyrir að vera einungis tveggja og hálfs árs hefur Matthildur Haraldsdóttir gengist undir þrjár stórar hjartaaðgerðir og er útlit fyrir að sú fjórða verði gerð á næstu dögum. Vinir hafa tekið höndum saman og stefna á að halda styrktartónleika í tveimur löndum. 25.7.2012 19:45