Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mikið slasaður eftir bílveltu Karlmaður sem lenti í bílveltu við Deildará, rétt sunnan við Raufarhöfn er talinn mikið slasaður. Hann er nú í sjúkraflugi á leið til Reykjavíkur. Enn er ekki vitað nákvæmlega hvernig slysið átti sér stað. Maðurinn var einn í fólksbíl á leið eftir beinum vegi. Bíllinn lenti út af veginum og tók í leiðinni nokkrar veltur. Lögreglan á Húsavík er sem stendur að rannsaka slysstaðinn. 9.10.2011 11:39
Skjálftar í nótt Skjálftahrina mældist við Hellisheiðarvirkjun í kringum miðnætti. Sá stærsti var mældist þrír á richter. Tíðar skjálftahrinur hafa verið á svæðinu og hafa þúsundir skjálfta mælst þar síðastliðinn mánuð. Skjálftana má rekja til jarðvarmavinnslu Orkuveitunnar við virkjunina. Skjálftarnir verða þegar affallsvatni er dælt frá virkjuninni niður í sprungur á svæðinu. Þeir stærstu fundist vel í Hveragerði, en þeirra hefur einnig orðið vart í Mosfellsbæ og á Hvollvelli. 9.10.2011 11:00
Söfnun SEM skilar milljónum Landssöfnun SEM samtakanna hefur skilað 19 milljónum í peningum og 6 milljónum í vinnuframlagi og gjöfum. Söfnunin fór fram í beinni útsendingu Stöðvar 2 á föstudagskvöldið síðasta. Samtök Endurhæfðra Mænuskaddaðara (SEM) hleypti söfnuninni af stokknum í því skyni að fjármagna viðgerðir á húsnæði samtakanna. „Við erum afar þakklát þjóðinni fyrir að bregðast svona vel við beiðni okkar," sagði Haraldur Sigþórsson, formaður Húsnæðisfélags SEM samtakanna, og var ánægður með söfnunina. 9.10.2011 10:44
Varar við ísingu á vegum Vegagerðin varar við ísingu á vegum á Norður- og Norðvesturlandi í dag. Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og fylgja þeim merkingum sem uppi eru. Í dag mun vindur snúast upp í norður-átt og kólna ákveðið. Færðin versnar fyrst á fjallvegum en í byggðum eftir því sem á líður.Gert er ráð fyrir éljagangi á Vestfjörðum síðar í dag. Vestantil á Norðurlandi versnar veður um hádegi með snjómuggu krapi. Þetta á m.a. við um Holtavörðuheiði. 9.10.2011 10:35
Dagur Leifs Heppna Í dag er dagur Leifs Eiríkssonar eða Leifs Heppna sem talinn er hafa fundið Ameríku árið þúsund, fimm hundruð árum áður en Kristófer Kólumbus kom þangað. Lengi hafa menn velt fyrir sér hvort Leifur hafi verið Íslendingur eða norðmaður en níundi Október er ekkert sérstaklega tengdur atburði í lífi Leifs. Hann var valinn sem dagur Leifs heppna vegna þess að þennan dag árið 1825 kom skipið Restauration til New York eftir þriggja mánaða siglingu frá Stafangri í Noregi, með 52 farþega innanborðs. Þetta var fyrsta skipulagða ferðin frá Skandinavíu til Bandaríkjanna. 9.10.2011 09:53
Trompaðist í sjúkrabíl Ung stúlka missti gersamlega stjórn á sér í sjúkrabíl í nótt, sló til sjúkraflutningamanna og sparkaði í lögreglumenn. Lögreglan fékk tilkynningu um að stúlkan lægi í krampakasti á Lækjartorgi um hálfþrjú leytið í nótt. Þegar sjúkraflutningamenn komu á staðinn var hún nær meðvitundarlaus. Hún var sett á börur og færð inn í sjúkrabíl. Þar kom hún til sjálfrar sín og missti gersamlega stjórn á sér. Eftir nokkur átök var ákveðið að færa hana í fangageymslur. 9.10.2011 09:44
Umferðarslys við Raufarhöfn Umferðarslys varð rétt við Raufarhöfn upp úr klukkan 9 í morgun. Um er að ræða mann sem var einn í bíl. Sjúkraflutningamenn hafa þegar flutt manninn af svæðinu. Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir sem stendur, en lögreglan á Húsavík mun vera á leiðinni á slysstað. 9.10.2011 09:42
Bátur í vanda Stjórnstöð siglinga fékk tilkynningu lítinn bát sem var í vandræðum um fjögurleytið í nótt. Aðeins einn maður var um borð og hafði hann ætlað að sigla bátnum frá Norðurfirði til Skagastrandar. Þegar hann kom út á flóann lenti hann í leiðindaveðri, dæla bilaði og stjór kom inn í vélarúmið. Björgunarbáturinn Húnabjörg á Skagaströnd var sendur honum til aðstoðar og dró hann að bryggju á Skagaströnd. 9.10.2011 11:30
Vilja aðgerðir vegna HIV sýkinga Sóttvarnarráð vill að skimað verði í auknu mæli fyrir HIV-sýkingum, svo sem meðal ófrískra kvenna, fanga, fíkla og á húð- og kynsjúkdómadeild, til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sjúkdómsins. 8.10.2011 19:05
1,5 milljarður til Háskóla Íslands Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, tilkynnti í dag um fjárframlög til Háskóla Íslands við hátíðlega athöfn í Hörpunni vegna 100 ára afmælis háskólans. Um er að ræða sjóð upp á 1,5 milljarð króna sem Háskólanum verður ráðstafað næstu fjögur ár. 8.10.2011 17:46
Undirbúa vegaframkvæmdir í Teigsskógi Vegagerðin er byrjuð að safna upp efni í grjótfyllingu fyrir umdeildan veg í gegnum Teigsskóg og þekur það nú heilan flugvöll í Gufudalssveit. 8.10.2011 21:30
Æskulýðsstarf fyrir bí vegna nýrra reglna Djákni í grafarvogskirkju segir það sárt að sjá eftir því æskulýðsstarfi sem fellur niður vegna nýrra reglna Reykjavíkurborgar sem setja samskiptum skóla og trúfélaga miklar skorður. 8.10.2011 21:00
Verri afkoma í fjármálum en stefnt var að Nýjustu áætlanir um hallarekstur ríkissjóðs sýna nokkuð verri afkomu á næstu árum en þær sem lagðar voru fram í fyrra og hitteðfyrra. Ekki er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum fyrr en 2014. 8.10.2011 20:30
Vímaðir fangar hafa enn ekki sofnað Mennirnir tveir sem voru teknir við ránstilraun í Kópavogi síðustu nótt og gleyptu í kjölfarið mikið magn amfetamíns til að koma því undan lögreglu voru enn undir miklum áhrifum efnisins og höfðu ekkert sofnað þegar klukkan var sex í dag. 8.10.2011 20:25
Skemmdarvargur á Seltjarnarnesi Skemmdarvargur gekk um götur Seltjarnarnes í nótt og skar á dekk tuga bíla. Tjónið getur hlaupið á hundruðum þúsunda segir starfsmaður á dekkjaverkstæðinu Nesdekk, en brjálað var að gera þar í morgun. 8.10.2011 20:00
RÚV liggur niðri á Vatnsnesi Útsending Ríkisútvarpsins liggur niðri á Vatnsnesi í Vestur Húnavatnssýslu. Það urðu íbúar á svæðinu varir við í gærkvöldi og þegar ekkert hafði lagast í dag fór fólk að ókyrrast. 8.10.2011 19:56
Jarðskjálftar fá á íbúa Hveragerðis Íbúar í Hveragerði eru orðnir þreyttir á tíðum jarðskjálftum út frá Hellisheiðarvirkjun. Þeir hafa fundið vel fyrir þeim stærstu en önnur skjálftahrina varð á svæðinu í morgun. 8.10.2011 19:30
Eldur í Hafnarfirði Eldur kom upp í söluturni við Kaplahraun í Hafnarfirði uppúr klukkan sex í dag. Dælubíll slökkviliðs Reykjavíkur var sendur á staðinn. Slökkviliðsmönnum tókst að ráða niðurlögum eldsins um klukkan hálf sjö. Slökkviliðsmenn eru nú á heimleið. 8.10.2011 18:47
Sprengiefni stolið Um 300 kg af dýnamíti var stolið úr sprengiefnagám 6. október síðastliðinn. Gámurinn stendur í Þormóðsdal ofan við Hafravatn. 8.10.2011 18:03
Klukkan: 06.07.08.09.10.11 á morgun Þeir sem hafa unun af tölum og talnarunum ættu að gera sér far um að vakna snemma í fyrramálið, því klukkan nákvæmlega 8 sekúndur yfir 7 mínútur yfir 6 mun stafræna tölvuklukkan þeirra sýna tölurnar 06.07.08.09.10.11. Á morgun er 9. október árið 2011 og því mun þessi einstæða talnaruna myndast á tölvuúrum fólks í eina sekúndu á morgun og svo aldrei aftur í hundrað ár. 8.10.2011 16:25
Friðarsúlan tendruð Friðarsúlan verður tendruð annað kvöld á afmælisdegi John Lennon. Af því tilefni býður Yoko Ono gestum í fría kvöldsiglingu til Viðeyjar. 8.10.2011 15:44
Búast við stjörnuhröpum í kvöld Nokkur hundruð stjörnuhröp gætu sést í kvöld þegar jörðin fer í gegnum straum agna frá halastjörnu en um mikið sjónarspil er að ræða að sögn formanns Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Stjörnuáhugamenn eru hvattir til þess að horfa til Drekans. 8.10.2011 13:55
Kona í sjóinn Kona féll í sjóinn við austurbakkann á höfninni í Reykjavík um eitt leytið í dag. Lögregla, slökkvilið og sjúkrabílar voru sendir á staðinn. Konunni var bjargað úr vatninu án teljandi erfiðleika. Hún er nú á slysavarnarstofu en er ekki illa haldin. 8.10.2011 13:47
Óbyggðanefnd úrskurðar um Norðurland Óbyggðanefnd mun á mánudaginn kemur kveða upp úrskurði í deilumálum um eignaréttarlega stöðu lands á Norðurlandi milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar. Uppkvaðningin fer fram klukkan 10:00 í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. 8.10.2011 13:13
Segir lyf sín ekki hafa banað Jackson Upptaka af skýrslutöku læknisins Conrads Murray hjá lögreglu tveimur dögum eftir að hann er sakaður um að hafa gefið poppstjörnunni Michael Jackson banvænan skammt af deyfilyfjum var spilaður fyrir kviðdómendur í máli Jacksons í gær. Þar lýsir hann því hvernig Jackson hafi grátbeðið hann um mjólkina sína, en það var orðið sem hann notaði yfir propofol, deyfilyfið sem olli dauða hans. Murray útskýrir í skýrslutökunni hvernig hann reyndi að gefa poppstjörnunni ýmis önnur róandi lyf í marga klukkutíma til að hjálpa henni að sofna, en ekkert hafi virkað. Að lokum hafi hann látið til leiðast að gefa Jackson propofol, en þegar læknirinn kom aftur af klósettinu eftir að hafa gefið honum lyfið hafi hafi Jackson verið hættur að anda. Murray hefur neitað því að bera ábyrgð á dauða Jackson. 8.10.2011 12:00
Landsæfing Landsbjargar í dag Mikið er um að vera á Ísafirði í dag þar sem landsæfing Slysvarnarfélagsins Landsbjargar fer fram. Reiknað er með að 300 björgunarsveitarmenn taki þátt í æfingunni en tvö hundruð til viðbótar koma að æfingunni í hlutverki sjúklinga, umsjónarmanna eða æfingarstjóra. Björgunarsveitir á Vestfjörðum hafa unnið að undirbúningi æfingarinnar síðustu vikur. 8.10.2011 11:30
Eldsvoði á Grettisgötu Töluvert tjón varð þegar eldur kom upp í litlu húsi á Grettisgötu í miðbæ Reykjavíkur um miðnætti. Búið var að slökkva eldinn þegar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á staðinn en nokkurn tíma tók að reykræsta húsið. Svo virðist sem kviknað hafi í út frá kerti en íbúarnir voru heima og urðu eldsins varir. 8.10.2011 11:16
Afmæli Háskóla Íslands í Hörpu Það verður mikið um að vera í Eldborg í Hörpu í dag þar sem Háskóli Íslands fagnar aldarafmæli sínu. Starfsfólk, stúdentar og fleiri ætla því að gera sér glaðan dag. Hátíðin er hápunktur afmælisársins og hefur undirbúningur vegna hennar staðið yfir undanfarna mánuði. Fullbókað er í öll sæti á hátíðinni. 8.10.2011 11:04
Týndir hundar Tveir einstaklingar tilkynntu um veglausa hunda í nótt, einn í Vesturbæ og annar í Kópavogi. Í báðum tilfellum tók heimilisfólk að sér að hýsa hundana þar til eigandi gefur sig fram. 8.10.2011 10:34
Ganga berserksgang í fangaklefa Tveir innbrotsþjófar sem voru í haldi lögreglu fóru hamförum í fangaklefum í nótt eftir að hafa gleypt mikið magn af amfetamíni. Mennirnir náðust á flótta eftir að hafa brotist inn í raftækjaverslun í Kópavogi í nótt. 8.10.2011 10:13
Útköll vegna veðurofsa Mikið hvassviðri gengur nú yfir Suðurland, Faxaflóa og Miðhálendið. Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa farið í tvö útköll í morgun vegna veðurs. Um var að ræða skjól- og glerveggi sem höfðu losnað í Hafnarfirði. Þá losnaði bátur losnaði frá bryggju við Keflavíkurhöfn í morgunsárið en nokkuð greiðlega gekk að festa hann aftur. Allt innanlandsflug liggur niðri en athuga á klukkan ellefu hvort hægt verði að fljúga þá. Búast má við því að veðrið gangi niður Suðvestanlands um hádegisbil. Áfram má þó búast við skúrum fram eftir degi. 8.10.2011 10:07
Stigi opni laxfiskum sextíu kílómetra leið Veiðifélag Jökulsár á Dal bíður þess nú að Skipulagsstofnun gefi grænt ljós á gerð fiskvegar fram hjá svokölluðum Steinboga. 8.10.2011 08:30
Vilja síður viðurkenna að hafa lagt í einelti Talsverð breyting hefur orðið innan þess hóps sem telur sig tengjast einelti í grunnskólum. Gerendum eineltis hefur fækkað um 34 prósent síðan árið 2006, en þolendum hefur hins vegar fjölgað um 26 prósent. 8.10.2011 08:00
Vekja athygli á tíðum slysum ungmenna Fjöldi alvarlegra umferðarslysa meðal ungs fólks er kveikjan að keppninni Vertu til, sem Umferðarstofa hefur efnt til meðal framhaldsskólanema. 8.10.2011 07:30
Hópur Guðmundar fer ört stækkandi „Þetta gengur alveg glimrandi vel. Þetta verður úti um allt land, það er þannig áhugi,“ segir Guðmundur Steingrímsson þingmaður um viðræður vegna væntanlegs framboðs nýs flokks í þingkosningunum árið 2013. „Hópurinn er alltaf að stækka.“ 8.10.2011 07:00
Ákærður fyrir að bana manni Ríkissaksóknari hefur ákært fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur tæplega fertugan karlmann, Redouane Naoui, fyrir manndráp. 8.10.2011 06:00
Sýna þrjár myndir um Nick Cave Þrjár heimildarmyndir um upptökur á hljómplötum ástralska tónlistarmannsins Nick Cave verða sýndar í Hörpu í næstu viku í tilefni ráðstefnunnar You Are in Control (YAIC), sem fram fer 10. til 12. október. 8.10.2011 06:00
Ríkið samræmir leigugjald á lóðum Landbúnaðarráðuneytið hefur sent um 160 aðilum bréf þar sem tilkynnt er um hækkun á leigu fyrir sumarhúsalóðir og ýmsa aðra smáskika í eigu ríkisins þar sem ekki er greidd sú 54 þúsund króna lágmarksleiga sem ráðuneytið hefur sett. 8.10.2011 06:00
Treystir stöðu Íslands í makrílviðræðum Niðurstöður rannsóknarleiðangurs sem sýnir að um fjórðungshluti makrílstofnsins í Norðaustur-Atlantshafi hafi haldið sig innan íslensku efnahagslögsögunnar við fæðuöflun um fjögurra mánaða skeið í ár, ættu að treysta samningsstöðu Íslands í viðræðum um skiptingu makrílkvótans. 8.10.2011 05:00
Dagbækur Tryggva studdu ákvörðunina Þau sjónarmið hafa ítrekað komið fram að margt hafi farið svo alvarlega úrskeiðis við rannsókn svonefnds Guðmundar- og Geirfinnsmáls að það varði almannahag að rannsókn fari fram á sjálfri rannsókninni. 8.10.2011 04:15
Viðurkennir vonda stjórnsýslu í ráðinu Fulltrúar í samfélags- og mannréttindaráði Akureyrarbæjar fóru á styrktartónleika í Menningarhúsinu Hofi í boði bæjarsjóðs. Frá þessu er greint í vikublaðinu Akureyri. 8.10.2011 03:00
Í vímu undir stýri Tveir ökumenn voru teknir í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í dag grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Í báðum tilfellum voru ökumennirnir undir áhrifum kannabis. Annar var tekinn um hálf fimm leytið í dag og hinn um tíu leytið í kvöld en þeir voru báðir að aka bifreið innanbæjar. Þeir eiga yfir höfði sér ákæru. 7.10.2011 23:45
Yfir 18 milljónir söfnuðust Yfir átján milljónir söfnuðust í beinum fjárframlög í söfnunarátaki SEM, Samtaka Endurhæfðra Mænuskaddaðra, sem fram fór í beinni útsendingu á Stöð 2 og Vísi í kvöld. Gera má ráð fyrir enn hærri upphæð því fjöldi fólks bauð fram vinnu sína. 7.10.2011 23:05
Formaður BSRB: Óeirðasveit lögreglunnar fær ekki aukalega greitt Formaður BSRB segir hækkanir á launum þingmanna hafa komið á óvart. Hún lítur á þær sem fordæmisgefandi fyrir sína félagsmenn í kjarabaráttunni. 7.10.2011 19:15
Komin með nóg - ætla að flýja til Noregs Fjögurra barna móðir segist ekki lengur ná endum saman og því hafi fjölskyldan ákveðið að flýja land. Hún hefur keypt miða aðra leið til Noregs á sunnudaginn. 7.10.2011 18:45