Innlent

Verri afkoma í fjármálum en stefnt var að

Nýjustu áætlanir um hallarekstur ríkissjóðs sýna nokkuð verri afkomu á næstu árum en þær sem lagðar voru fram í fyrra og hitteðfyrra. Ekki er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum fyrr en 2014.

Sumarið 2009 kynnti fjármálaráðherra áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum til 2013, en þá var ráðgert að hallalaus fjárlög næðust undir lok tímabilsins.

Þegar fjárlagafrumvarp þessa árs var kynnt í fyrra var gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum á næsta ári.

Nú hefur áætlun um afkomuna verið birt í tengslum við fjárlög næsta árs, en þar sést dekkri mynd en í báðum áætlunum síðustu ára. Ekki er ráðgert að ná hallalausum ríkisrekstri fyrr en 2014 og þá um tæpt prósent af landsframleiðslu.

Samkvæmt upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu stafar þetta einkum af því að ráðist var í harðar aðhaldsaðgerðir fyrr á tímabilinu sem hafi skilað ríkissjóði miklu, en fjármálaráðherra hefur haldið því á lofti á að viðsnúningur hafi orðið á fjárlögum síðustu misserin. Það hafi skapað svigrúm til að seinka markmiðum um afgang af heildarjöfnuði, en auk þess hafi kjarasamningar í vor haft mikil áhrif á afkomu ríkissjóðs. Þá standi hagfræðileg rök til þess að ganga ekki jafnhart fram í aðhaldsaðgerðum og upphaflega var ráðgert og því hafi verið dregið úr aðhaldskröfunni.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, segir því í samtali við fréttastofu að seinkun markmiðanna sé til marks um að áætlun AGS og ríkisstjórnarinnar hafi gengið vel frekar en hitt, og vísar því alfarið á bug að ríkisstjórninni sé að mistakast að ná tökum á ríkisfjármálunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×