Stigi opni laxfiskum sextíu kílómetra leið 8. október 2011 08:30 Í venjulegu sumarrennsli smeygir Jökulsá á Dal sér undir urðina sem nefnd er Steinbogi. Veiðifélagið vill opna laxi veg með því að fleyga farveg í bergið í austurbakkanum. Mynd/Þröstur Elliðason
Veiðifélag Jökulsár á Dal bíður þess nú að Skipulagsstofnun gefi grænt ljós á gerð fiskvegar fram hjá svokölluðum Steinboga. „Það er trú okkar í stjórn veiðifélagsins að það að fleyga fiskveg í klöppina við hliðina á urðinni yrði til þess að fiskur gengi upp Jökuldalinn en það er um sextíu kílómetra langt vatnasvæði sem ekkert hefur nýst hingað til. Einnig myndi koma lax í þverár Jökulsár; Hrafnkelu, Gilsá oog Hneflu,“ segir í umsókn veiðifélagsins um framkvæmdaleyfi. Bæjarráð Fljótsdalshéraðs frestaði afgreiðslu málsins á síðasta fundi þar sem umsögn Skipulagsstofnunar um hvort gera þurfi mat á umhverfisáhrifum liggur ekki fyrir. Grunnurinn að nýjum lendum fyrir laxfiska í Jökulsá er Kárahnúkavirkjun og Hálslón. Í stað þess að vera gruggug af jökulvatni árið um kring er Jökla nú tær þar til Hálslón fyllist síðla sumars og fer á yfirfall. Guðni Guðbergsson hjá Veiðimálastofnun hefur kannað farveg Jöklu. Í mati sínu á hindrunum á gönguleið laxfiska í ánni segir Guðni að rafleiðni í vatninu bendi til góðra uppeldisskilyrða fyrir lax og bleikju, bæði sjógengna og staðbundna. „Á þessari stundu er mesta óvissan fólgin í því hvaða áhrif aurugt yfirfallsvatn kemur til með að hafa,“ segir Guðni. Áðurnefndur Steinbogi er urð sem lokar nánast algerlega fyrir fiskgengd í ánni um þrjá kílómetra fyrir ofan þjóðveg 1, í landi Sellands og Gilja. Þá eru enn yfir sextíu kílómetrar að ósi Desjár en alls eru þangað 109 kílómetrar frá ósi Jöklu í Héraðsflóa. Þröstur Elliðason, hjá veiðifélaginu Strengjum, sem hefur Jökulsársvæðið á leigu, segir í sinni skýrslu að sleppt hafi verið laxaseiðum fyrir á bilinu sjö til átta milljónir króna á vatnasvæðinu fyrir ofan Steinboga. „Er búist við að lax reyni í framhaldi af þessum sleppingum að ganga upp Jökuldalinn í töluverðu magni og dreifa sér um þetta víðfeðma og skemmtilega veiðisvæði sem þetta getur þá orðið,“ segir Þröstur. Útfærslan á fiskveginum er sú önnur sem lögð er fram. Þeirri fyrri var hafnað. Veiðifélagið telur það hafa verið vegna misskilnings. Verkfræðistofan Verkís gerir ráð fyrir að vegurinn verði fleygaður í bergið við hlið farvegarins og steyptur að hluta. gar@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira