Vilja aðgerðir vegna HIV sýkinga 8. október 2011 19:05 Sóttvarnarráð vill aukið aðgengi að smokkum.
Sóttvarnarráð vill að skimað verði í auknu mæli fyrir HIV-sýkingum, svo sem meðal ófrískra kvenna, fanga, fíkla og á húð- og kynsjúkdómadeild, til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu sjúkdómsins. Sóttvarnarráð hittist í gær til að ræða fjölgun HIV sýkinga hér á landi. Læknar hafa þungar áhyggjur af þróuninni en það sem af er árinu hafa sautján greinst með HIV. Af þeim eru flestir sprautufíklar. Sóttvarnarráð sendi eftir fundinn velferðarráðherra tillögur um hvernig best sé að bregðast við til að koma í veg fyrir frekar útbreiðslu sjúkdómsins. Á meðal þess sem ráðið leggur til er að er að gera sprautur og nálar aðgengilegri fyrir fíkla. Til að mynda með því að styrkja verkefni Reykjavíkurdeildar Rauða krossins sem rekur bíl sem leitar uppi staði þar sem fíkniefnaneytendur halda til að auðvelda þeim að fá nýjar nálar. Þá vill ráðið að aðgengi að smokkum verði bætt og þeir gerðir ódýrari. Það eru náttúrulega ýmsar leiðir til þess sem að stjórnvöld munu örugglega skoða. Annað hvort að niðurgreiða þá eða fella niður virðisaukaskatt eða eitthvað þess háttar og síðan hafa þá á stöðum þar sem ungt fólk getur auðveldlega náð til þeirra. Sóttvarnarráð telur ástæðu til að skima í auknu mæli fyrir HIV-smiti. „Við erum að mæla með því að þetta verði gert betur í mæðraverndinni. Það á að bjóða öllum ófrískum konum mótefnamælingar fyrir HIV. Því miður er ekki nema tæplega helmingur sem að er prófaður," segir Haraldur Briem sóttvarnarlæknir. Þá segir Haraldur einnig mikilvægt að auka skimanir á meðferðastofnunum og í fangelsum en í dag er fangar ekki skimaðir fyrir HIV-smitum. „Við viljum gjarnan gera það að þetta sé húð- og kynsjúkdómadeildum, þetta sé í mæðraverndinni, þetta sé í fangelsum og víðar," bætir hann við.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Fleiri fréttir Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Sjá meira