Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fullkomin óvissa um frestun þingfunda fyrir kosningar Fullkomin óvissa ríkir um frestun þingfunda fyrir kosningar, eftir að leiðtogum stjórnarflokkanna mistókst í dag að ná samkomulagi við stjórnarandstöðuna um afgreiðslu þingmála. Samkomulag náðist hins vegar um að tilkynna kjördag með formlegum hætti á Alþingi á morgun, þannig að utankjörfundaratkvæðagreiðsla geti hafist. 12.3.2009 18:42
Hald lagt á 700 kannabisplöntur í þremur húsleitum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lagt hald á 700 kannabisplöntur í þremur húsleitum undanfarna daga. Talið er að málin tengist. 12.3.2009 18:37
Samfylkingin stærst - lítill stuðningur við grasrótarframboð Grasrótarframboðin nýju fá engan fulltrúa inn á Alþingi Íslendinga samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins á fylgi flokkanna. Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins og hefur fylgið lítið breyst eftir brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stjórnmálum. 12.3.2009 18:33
Raddir fólksins boða til útifundar Samtökin Raddir fólksins, undir yfirskriftinni Breiðfylking gegn ástandinu, standa fyrir útifundi á Austurvelli laugardaginn 14. mars. Þetta er 23. vika útifundanna og 29. fundurinn á Austurvelli. 12.3.2009 18:23
Fer ekki fram þátt fyrir áskoranir Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi þingmaður, hefur fengið áskoranir um að hún bjóði sig fram sem formaður Samfylkingarinnar á komandi landsfundi. Hún segir þó í samtali við fréttastofu að hún hafi engin áform um að snúa aftur í stjórnmál og ætli því ekki að bjóða sig fram til formanns. 12.3.2009 17:31
Ríkið sýknað af fjögurra milljóna króna bótakröfu Íslenska ríkið var sýknað af bótakröfu frá manni sem sat í gæsluvarðhaldi árið 2006 í Hæstarétti í dag. Maðurinn var handtekinn í tengslum við svokallað BMW-mál þar sem 15 kíló af amfetamíni og 10 kíló af kannabisefnum voru haldlögð í BMW bifreið sem kom hingað til lands. Maðurinn fór fram á fjórar milljónir í skaðabætur. 12.3.2009 16:53
Dæmdur til vistunar á Sogni Hæstiréttur staðfesti dóm yfir manni á þrítugsaldri sem var dæmdur fyrir þjófnað, fjársvik, nytjastuldur, rán, fíkniefnalagabrot og svo umferðarlagabrot. Maðurinn áfrýjaði dómum til Hæstarréttar þar sem hann var dæmdur til þess að afplána sjö mánaða dóm á viðeigandi stofnun þar sem hann er haldinn alvarlegum geðkvillum. 12.3.2009 16:48
Verslun dróst saman um tugi prósenta í febrúar Velta í raftækjaverslun dróst saman um 52,9% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og um 28,9% á breytilegu verðlagi. Á síðasta ári minnkaði velta raftækjaverslana töluvert að raunvirði. Veltan í janúar síðastliðnum var þannig 45,2% minni en í janúar í fyrra, eftir því sem fram kemur í tölu Rannsóknarseturs verslunarinnar. 12.3.2009 16:48
Þingrof líklega tilkynnt á morgun Afgreiðsla mála hefur gengið hratt fyrir sig á Alþingi í dag, enda mikil áhersla lögð á að afgreiða sem flest mál áður en þing lætur af störfum fyrir kosningar. Þannig hafa þingmenn lokið fyrstu umræðu um þrettán mál og umræður standa nú yfir um hið fjórtánda. Annarri umræðu er lokið í tveimur málum og þingið hefur afgreitt eina þingsályktunartillögu. Að auki hafa ráðherrar svarað fyrirspurnum þingmanna og ein utandagskrárumræða hefur farið fram. Líklegt er talið að þingrof verði tilkynnt á morgun. 12.3.2009 16:03
Mikill verðmunur á fiski Mikill munur er á fiskverði á milli verslana og eru dæmi um að hægt sé að spara sér yfir helming þegar fiskur er keyptur í soðið. Í nýrri könnun ASÍ sést að kílóið af þorski getur kostað allt frá 690 krónum upp í 1.490 krónur. 12.3.2009 15:56
Meintir kannabisræktendur lausir úr haldi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mjög umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Skipasundi í gærkvöld, eftir því fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 12.3.2009 15:53
Endurreisn efnahagslífsins hafin Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur að stjórnvöld séu komin með miklu víðtækara hlutverk í efnahagslífinu en staðið hafði til og miklu stærra hlutverk en ríkissjóður ætti að hafa. Þetta sagði ráðherrann á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands sem haldið var um helgina. Hún gerði líka ábyrgð á bankahruninu að viðfangsefni. 12.3.2009 15:17
VG leigja af Kristjáni í hvalnum „Við leigjum þarna á annarri hæðinni," segir Gestur Svavarsson formaður kjördæmisráðs Vinstri grænna í suðvesturkjördæmi. Vinstri Grænir leigja skrifstofuhúsnæði á Strandgötu 11 í Hafnarfirði. 12.3.2009 15:13
Samningur við Cayman-eyjar til að stöðva skattaflótta Eftir umfangsmikla undirbúningsvinnu var í síðustu viku gengið frá samkomulagi milli aðildarríkja Norrænu ráðherranefndarinnar og Cayman-eyja um undirritun upplýsingaskiptasamnings. Samningurinn er liður í sameiginlegri viðleitni samningsaðilanna til að stöðva skattaflótta. 12.3.2009 15:09
Vísa reiknikúnstum Samfylkingarinnar á bug Fulltrúar meirihlutans í borgarráði vísa fullyrðingum og reiknikúnstum Samfylkingarinnar, sem koma fram í bókun Samfylkingarinnar um fjármagnskostnað vegna Laugavegar 4 og 6 á bug. Líkt og fram kom í frétt á Vísi fyrr í dag segir Samfylkingin að tap á uppkaupum á húsunum við Laugaveg 4 og 6 verði rúmur hálfur milljarður. Þetta kom fram í bókun Samfylkingarinnar eftir svar borgarstjóra við fyrirspurn vegna húsanna. 12.3.2009 14:46
Borginni tókst að skera niður um 2,3 milljarða Tillaga að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 var lögð fram í borgarráði í dag. Endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2009 hófst strax í byrjun janúar með það að markmiði að mæta 2,3 milljarða króna hagræðingarkröfu. 12.3.2009 13:48
Yfir hálfur milljarður tapast vegna Laugavegs 4 og 6 Tap Reykjavíkurborgar vegna uppkaupa húsanna við Laugaveg 4 og 6 fyrir ári síðan verður meira en 500 milljónir króna. Kostnaðurinn við uppkaupin er orðinn hátt í 700 milljónir en þetta kemur fram í bókun Samfylkingarinnar í borgarráði í dag. 12.3.2009 13:18
Fjöldi manns spyrst fyrir um séreignasparnaðinn Fjöldi manna hefur hringt eða sent fyrirspurnir til lífeyrissjóða landsins síðan á þriðjudag til að kanna hvenær hægt verður að taka út séreignasparnaðinn. 12.3.2009 12:20
Truflanir á símasambandi hjá Vodafone Bilun er í ljósleiðarasambandi sem orsakar miklar truflanir á GSM símasambandi Vodafone notenda á stórum svæðum á Norður- og Austurlandi. Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segist telja að þetta ástand geti varað fram eftir degi. 12.3.2009 12:01
Fé aldrei lagt inn á barnlandsreikning Anna Hermína Gunnarsdóttir, sem er ein þriggja kvenna sem hafa verið kærðar af Félagi ábyrgra foreldra á Akureyri, segist ekkki hafa notið persónulegs ávinnings af söfnun sem hún kom af stað á Barnalandi í mars á síðasta ári. 12.3.2009 11:56
Breiðavíkurdrengur segir Jóhönnu sýna yndislegt fordæmi Georg Viðar Björnsson, varaformaður Breiðavíkursamtakanna, fagnar því að forsætisráðherra hafi beðið drengina sem vistaðir voru á Breiðavíkurheimilinu afsökunar á illri meðferð sem þeir sættu. 12.3.2009 11:32
Grunaður um að hafa keyrt á mann Jón Kristinn Ásgeirsson, er grunaður um að hafa ekið á mann á Laugaveginum um miðjan janúar samkvæmt DV. Hann er sakaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hann ók bílnum. Hann á að hafa keyrt á ungan mann á þrítugsaldri með þeim afleiðingum að hann stórslasaðist. Maðurinn var á gjörgæslu en hann hefur verið færður á heila- og taugadeild. Hann hefur ekki komist til meðvitundar. 12.3.2009 11:03
Jóhanna bað Breiðavíkurdrengi afsökunar Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, bað Breiðavíkurdrengi og aðra sem sætt hafa illri meðferð á heimilum ríkisins, afsökunar, fyrir hönd ríkisins, á Alþingi nú fyrir stundu. Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, spurði hana hvort þetta stæði til af hálfu ríkisins, og sagði Jóhanna sjálfsagt að verða við því. Þó væri ekki sjálfgefið að þeir sem bjuggu við vondar aðstæður á þessum meðferðarheimilum veittu fyrirgefninguna. 12.3.2009 10:56
Olíufélögin lækkuðu öll verð á eldsneyti í morgun Olíufélögin hafa lækkað verð á bensíni í dag. Bensínorkan lækkaði verð á bensíni um tvær krónur og dísel um 2,6 krónur. Almennt verð á bensíni hjá Orkunni verður þá 139,70 og almennt verð á díeselolíu 149,90. 12.3.2009 10:35
Rýmingu aflétt í Bolungarvík Þeir Bolvíkingar sem þurftu að yfirgefa heimili sín í gær vegna snjóflóðahættu geta nú snúið heim á ný. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni verður ástandið kannað í dag og metið í framhaldinu þar sem veðurspáin fyrir helgina er nokkuð óviss. 12.3.2009 10:07
Tilkynnir mögulega um þingrof Forsætisráðherra tilkynnir mögulega um þingrof í dag eða á morgun. Ríkisstjórnin kom saman til aukafundar í stjórnarráðinu klukkan átta í morgun, til að afgreiða frá sér síðustu málin sem hún ætlar að leggja fyrir Alþingi. 12.3.2009 09:49
Fíkniefnaaðgerð í Skipasundi í gærkvöld Tvennt var handtekið í fíkniefnaaðgerð lögreglunnar í Skipasundi í gærkvöld. Samkvæmt heimildum fréttastofu var gífurlegt magn af kannabisplöntum í rætkun þar. Fólkið sem var handtekið er enn í haldi lögreglunnar. Sjónvarvottur sem fréttastofa talaði við sagðist hafa séð lögreglumenn fylla sendiferðabíl af plöntum í gær. 12.3.2009 09:25
Rösklega helmingur vill Jóhönnu Rúm 55 prósent þeirra, sem spurðir voru í skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis segjast vilja að Jóhanna Sigurðardóttir verði næsti formaður Samfylkingarinnar. 12.3.2009 09:06
Iðnaðarráðherra mælti fyrir frumvarpi um Helguvík Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra mælti í gærkvöldi fyrir frumvarpi um samning um álver í Helguvík. Ungliðar í Vinstri grænum, samstarfsflokki Samfylkingarinnar í ríkisstjórn, skora hins vegar á þingmenn sína að greiða atkvæði gegn samningnum. 12.3.2009 07:16
Þyrlan sótti mann um borð í Árna Friðriksson Maður veiktist um borð í hafrannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni, þegar það var statt norðaustur af Langanesi í gær. Óskað var eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að sækja hann og kom hún að skipinu eftir millilendingu á Egilsstöðum, þar sem tekið var eldsneyti. 12.3.2009 07:13
Fíkniefnalögregla á ferð í Sundahverfi Fíkniefnalögreglan var með aðgerðir í húsi í Sundahverfi í Reykjavík í gærkvöldi, en ekki liggur fyrir í hverju þær fólust eða hver árangurinn varð. Hins vegar liggur fyrir að hún handtók karlmann um þrítugt í Garðabæ í fyrradag. Í bíl hans fundust tugir gramma af hassi og marijuana. Efnin voru ætluð til sölu, en maðurinn hefur áður verið uppvís að slíku. 12.3.2009 07:11
Tók óvart krók til Keflavíkur „Kassarnir með blöðunum fundust svo eftir allt saman í einhverju skúmaskoti hjá póstinum í Reykjavík," segir alþingismaðurinn Árni Johnsen sem varð fyrir því að 1.700 eintök af prófkjörsblaði hans virtust hafa gufað upp í meðförum Íslandspósts. Umrædd sending var ætluð til Vestmannaeyja. 12.3.2009 06:15
Sagan endurtekur sig frá því síðast Nýir formenn munu leiða Framsóknarflokkinn, Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn í kosningunum í apríl. Sama var upp á teningnum í kosningunum vorið 2007. 12.3.2009 06:00
Glötuðu sjúkraskrám heilsugæslu á Dalvík Allar sjúkraskrár á Heilsugæslustöðinni á Dalvík á tíu mánaða tímabili glötuðust í tölvukerfi. Engan árangur bar að senda búnaðinn til tölvusérfræðinga í tveimur löndum. Öryggi sjúklinga stefnt í hættu og gríðarlegt fjárhagslegt tap. 12.3.2009 06:00
Endurskoðendaskýrslur verða sendar sérstökum saksóknara Skýrslur endurskoðenda um aðdraganda bankahrunsins, sem nú eru í vörslu Fjármálaeftirlitsins, verða sendar í heild sinni sérstökum saksóknara, Ólafi Þ. Haukssyni. Þetta segir Gunnar Haraldsson, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins. 12.3.2009 06:00
OR mæli ekki eigin mengun „Bæjarráð hlýtur að undrast það viðhorf sem fram kemur í bréfi Umhverfisstofnunar að sá sem mengar eigi að hafa umsjón með mælingum á áhrifum mengunarinnar,“ segir bæjarráð Hveragerðis sem er ósátt við þá skoðun Umhverfisstofnunar að Orkuveita Reykjavíkur annist vöktun á áhrifum af brennisteinsvetni frá eigin jarðvarmavirkjunum á Hellisheiði. 12.3.2009 05:30
Maður ærðist á Eyrarbakka Maður fékk æðiskast við veitingastaðinn Rauða húsið á Eyrarbakka aðfaranótt sunnudagsins. Hann skemmdi lampa inni á veitingahúsinu og að því búnu æddi hann út og réðist að næsta bíl og sparkaði í hann. Lögregla hafði afskipti af manninum, sem virtist lítið róast við það. Eftir handtöku reyndi hann ítrekað að skalla lögreglumenn. Maðurinn var ölvaður og því vistaður í fangageymslu. 12.3.2009 05:15
Formannsefni sagt stefnulaust Þingmenn Framsóknarflokks og Samfylkingar sökuðu Sjálfstæðisflokkinn og formannsefni hans, Bjarna Benediktsson, um stefnuleysi í Evrópumálum á Alþingi í gær. Sjálfstæðismenn þvertóku fyrir það og sökuðu Samfylkinguna á móti um að hafa skipt um skoðun. Afstaða til ESB skipti engu þegar kæmi að stjórnarsamstarfi við Vinstri græna. 12.3.2009 05:00
Heimili rýmd í gær og varðskip til taks „Menn hafa verið að kanna snjóalög undanfarna daga og meta að það sé veikt millilag í Traðargili,“ segir Elías Jónatansson, bæjarstjóri í Bolungarvík, þar sem fimm íbúðarhús voru rýmd fyrir kvöldmat í gær. 12.3.2009 04:45
Kostnaðurinn við þingið óviss Ekki fást svör um áætlaðan kostnað við stjórnlagaþing, hvorki úr forsætis- né fjármálaráðuneyti. Í því síðarnefnda er unnið að kostnaðaráætlun vegna þessa en Lúðvík Guðjónsson, starfsmaður þar, vill ekki segja hvort kostnaður sem Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, hefur áætlað, upp á 1,5 milljarða, sé í hærra lagi eða ekki. 12.3.2009 04:45
Kosningaplagg eða krafa þjóðfélagsins Þingmenn nefndu frumvarp um stjórnskipunarlög ýmist kosningaplagg eða svar við lýðræðiskröfu þjóðfélagsins. Ásakanir gengu á víxl um annarlegar hvatir á Alþingi í gær. Sjálfstæðismenn eru einangraðir í afstöðu sinni á þingi. 12.3.2009 04:45
Fimmtungur heimila skuldar umfram eign Áttatíu prósent heimila landsins eru með jákvæða eiginfjárstöðu en tuttugu prósent með neikvæða stöðu. Ástandið er viðkvæmt og þarf lítið til að fjölga í hópnum, segir Þorvarður Tjörvi Ólafsson, hagfræðingur í Seðlabankanum. 12.3.2009 04:30
Baugur Group tekið til gjaldþrotaskipta Héraðsdómur hafnaði í gær beiðni Baugs Group um áframhaldandi greiðslustöðvun. Dómari taldi áform um endurskipulagningu félagsins óraunhæf. 12.3.2009 04:30
Bæklingur um lítinn rétt karla Félag um foreldrajafnrétti hefur gefið út bækling sem meðal annars er ætlað að varpa ljósi á það að réttarstaða íslenskra karla hvað varðar jafnrétti foreldra sé líklega sú lakasta í vestrænum ríkjum. 12.3.2009 04:30
Fresturinn rann út á miðnætti Frestur til að sækja um starf forstjóra Fjármálaeftirlitsins rann út á miðnætti. Gunnar Haraldsson, formaður stjórnar eftirlitsins, vildi í gærkvöldi ekkert segja um hversu margar umsóknir hefðu borist. Hann ítrekar hins vegar að ráðningarferlið sé opið og gegnsætt og að ráðið verði í gegnum ráðningarskrifstofu. „Við erum ekki að pikka út neitt fólk fyrirfram,“ segir hann. 12.3.2009 04:30