Samfylkingin stærst - lítill stuðningur við grasrótarframboð 12. mars 2009 18:33
Grasrótarframboðin nýju fá engan fulltrúa inn á Alþingi Íslendinga samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins á fylgi flokkanna. Samfylkingin er stærsti stjórnmálaflokkur landsins og hefur fylgið lítið breyst eftir brotthvarf Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur úr stjórnmálum. Endurnýjun, raddir fólksins, kosningar strax voru slagorðin sem ómuðu í búsáhaldabyltingunni. Nú styttist í kosningar, tvær nýjar hreyfingar hafa ákveðið að bjóða fram og stefna að framboðum í öllum kjördæmum - en ef marka má nýja könnun Stöðvar tvö, sem gerð var í gær, njóta þessar nýju hreyfingar lítils stuðnings. L listinn með Bjarna Harðarson og séra Þórhall Heimisson í broddi fylkingar fengi 1,6 prósent atkvæða og engan mann á þing. Borgarahreyfingin sem segir fjórflokkakerfið rotið, nær ekki að hrófla við því, og fengi 2 prósent atkvæða. Samfylkingin er stærsti flokkurinn samkvæmt þessari könnun, fengi 33 prósent atkvæða og eykur fylgi sitt um rúm tvö prósent frá því í febrúar. Allar breytingar milli mánaða í þessari könnun eru þó innan skekkjumarka. Hinn ríkisstjórnarflokkurinn, Vinstri grænir, dalar um tæp þrjú prósent milli mánaða en tæp 22 prósent kváðust í gær myndu kjósa hann. Fylgi Sjálfstæðisflokksins dregst lítillega saman og er nú nærri 27%. Framsóknarflokkurinn stendur í stað með rúm tólf prósent og sömuleiðis Frjálslyndir sem fengi rúm 2 prósent atkvæða og næðu ekki manni inn á þing. Niðurstaðan byggist á 800 svörum sem skiptist jafn á milli karla og kvenna og hlutfallslega eftir búsetu.
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Erlent Fleiri fréttir Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Sjá meira