Innlent

Grunaður um að hafa keyrt á mann

Jón Kristinn Ásgeirsson með föður sínum á góðri stundu.
Jón Kristinn Ásgeirsson með föður sínum á góðri stundu.

Jón Kristinn Ásgeirsson, er grunaður um að hafa ekið á mann á Laugaveginum um miðjan janúar samkvæmt DV. Hann er sakaður um að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hann ók bílnum.

Hann á að hafa keyrt á ungan mann á þrítugsaldri með þeim afleiðingum að hann stórslasaðist. Maðurinn var á gjörgæslu en hann hefur verið færður á heila- og taugadeild. Hann hefur ekki komist til meðvitundar.

Þá kemur fram í DV að faðir Jóns Kristins, sé Ásgeir Þór Davíðsson, Jón ók bifreið merktri veitingastaðnum Steak and Play sem er í eigu Ásgeirs.

Jón Kristinn játaði að hafa verið ökumaður bílsins umrætt kvöld en hann flúði af vettvangi eftir að hann keyrði á manninn. Hann var handtekinn nokkrum klukkustundum síðar. Honum var sleppt eftir yfirheyrslur.

Samkvæmt yfirmanni rannsóknardeildar umferðardeildar er málið enn á þeirra borði og hefur ekki verið sent ákæruvaldinu. Hann segir ennfremur að rannsókn miði vel.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×