Innlent

Fjöldi manns spyrst fyrir um séreignasparnaðinn

Fjöldi manna hefur hringt eða sent fyrirspurnir til lífeyrissjóða landsins síðan á þriðjudag til að kanna hvenær hægt verður að taka út séreignasparnaðinn.

Svo virðist sem fólk hafi fylgst grannt með störfum Alþingis á þriðjudag því eftir að lögin voru samþykkt upp úr klukkan tvö í fyrradag tók fólk að hringja og senda fyrirspurnir til lífeyrissjóðanna. Alls getur fólk tekið út eina milljón króna af séreignasparnaði sínum, ekki þó í einu lagi heldur á níu mánuðum, sem þýðir að hámarksúttekt verður rétt tæpar sjötíu þúsund krónur þegar búið er að greiða skatt af úttektinni. Fréttastofa hafði samband við Lífeyrissjóð verslunarmanna en þar þurfa menn að sækja um skriflega fyrir 25. mars til að fá útborgaðan sparnaðinn um næstu mánaðamót.

Um 40 þúsund manns eiga séreignasparnað hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Meðalinneign er um 150 þúsund krónur og því fjarri því allir sem geta tekið út eina milljón eins og lögin heimila. Ekkert úttektargjald er hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Almenni lífeyrissjóðurinn innheimtir 0,5% af úttektarupphæðinni í þóknun.

Um 28 þúsund manns eiga viðbótarsparnað í Íslenska lífeyrissjóðnum hjá Landsbankanum. Bankinn á eftir að útbúa umsóknareyðublað og óvíst er að sjóðsfélagar þar geti fengið sparnaðinn útborgaðan um næstu mánaðamót. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um úttektargjald.

Um 85 þúsund manns eiga viðbótarsparnað í Kaupþingi. Þar bíða menn eftir reglugerð fjármálaráðuneytisins, verði hún komin verður hægt að sækja um fyrirframgreiðslu á miðvikudaginn í næstu viku. Óvíst er hvenær hægt verður að fá fyrstu greiðslu.

Alls eiga um 120 þúsund landsmenn viðbótarlífeyrissparnað og talið er að meðalinneign sé um tvær milljónir króna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×