Verslun dróst saman um tugi prósenta í febrúar 12. mars 2009 16:48
Velta í raftækjaverslun dróst saman um 52,9% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra og um 28,9% á breytilegu verðlagi. Á síðasta ári minnkaði velta raftækjaverslana töluvert að raunvirði. Veltan í janúar síðastliðnum var þannig 45,2% minni en í janúar í fyrra, eftir því sem fram kemur í tölu Rannsóknarseturs verslunarinnar. „Dagvöruverslun dróst saman um 13,8% á föstu verðlagi í febrúar miðað við sama mánuð árið áður. Þetta er óvenjumikill samdráttur í veltu dagvöruverslunar á milli ára og hefur aðeins einu sinni áður mælst svo mikill samdráttur, en það var í desember síðastliðnum. Velta dagvöruverslunar jókst á breytilegu verðlagi um 13,5% í febrúar miðað við febrúar í fyrra. Verð á dagvöru hækkaði um 31,7% á einu ári samkvæmt verðmælingu Hagstofunnar. Sala á áfengi minnkaði um 16,4% í febrúar miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 10% á breytilegu verðlagi. Verð á áfengi hækkaði um 31.6% í febrúar miðað við sama mánuð í fyrra. Velta fataverslunar var 23,7% minni í febrúar á föstu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra og um 2,4% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Á milli mánaðanna janúar og febrúar minnkaði velta fataverslunar um 40,6% á föstu verðlagi og 36,7% á breytilegu verðlagi, sem skýrist að einhverju leyti af lokum janúarútsala. Velta í fataverslun hefur ekki verið minni að raunvirði frá því að Rannsóknasetur verslunarinnar hóf að mæla hana í janúar 2007. Þetta átti einnig við um skóverslun. Þannig minnkaði velta skóverslunar í febrúar um 19,4% á föstu verðlagi og um 0,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Velta skóverslunar í febrúar dróst saman um 35,2% á föstu verðlagi frá janúar á undan, sem jafnan er útsölumánuður í skóverslun. Verð á skóm hækkaði um 4,9% í febrúar frá mánuðinum á undan og á fötum um 6,6%. Næstmestur samdráttur, af þeim flokkum verslunar sem smásöluvísitalan nær til, var í húsgagnaverslun í febrúar. Veltan dróst saman um 40,8% á föstu verðlagi á síðustu 12 mánuðum og um 22,6% á breytilegu verðlagi. Velta húsgagnaverslunar hefur ekki verið lægri frá því að Rannsóknasetrið hóf að mæla veltuna í ágúst 2007. Verð á húsgögnum hækkaði um 30,8% frá því í febrúar 2008," segir í frétt frá Rannsóknarsetrinu.
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Sjá meira