Fleiri fréttir

Tjón vegna jarðskjálfta á sjöunda milljarð króna

Áætlað er að tjón vegna jarðskjálftans á Suðurlandi síðasta vor nemi á sjöunda milljarð króna. Af því greiðir ríkið rúmar sjö hundruð milljónir króna í styrki meðal annars vegna tjóns sem ekki fæst bætt hjá Viðlagatryggingu.

Uppsagnir hjá Landhelgisgæslunni

Um tuttugu starfsmönnum Landhelgisgæslunnar verður sagt upp störfum um næstu mánaðamót. Boðað hefur verið til starfsmannafundar á morgun þar sem þetta verður tilkynnt formlega en um 160 manns vinna nú hjá Landhelgisgæslunni.

Ráða lögfræðing vegna deilu við Háskóla Íslands

Félag prófessora við ríkisháskóla hafa ráðið Ragnar Tómaas Árnason lögfræðing til þess að gæta hagsmuna og réttinda félagsmanna vegna ákvörðunar Háskóla Íslands um að auka kennsluskyldu kennara og minnka rannsóknarskyldu þeirra. Félagið telur að þarna sé um kjarabundin starfsréttindi að ræða.

Lönduðu 650 tonnum af gulldeplu í Eyjum

Nýlokið er löndun á 650 tonnum af gulldeplu úr Hugin VE 55 í Vestmannaeyjum. Aflinn veiddist á Grindavíkurdjúpi. Gulldeplan finnst nú í stórum torfum suður af landinu.

Atvinnulausum fjölgar um eitt þúsund á einni viku

Rúmlega 11 þúsund manns eru nú á atvinnuleysisskrá samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar. Fyrir viku síðan voru atvinnulausir 10.050 og hefur því fjölgað um rúmlega eitt þúsund á einni viku.

Héraðsdómur dæmir handtöku löglega

Íslenska ríkið hefur verið sýknað af bótakröfu karlmanns sem taldi á sér brotið þegar lögreglan handtók hann á skemmtistaðnum Áttunni í Hafnarfirði í febrúar 2007. Maðurinn krafðist einnar milljónar króna í bætur.

Náði að forða sér út eftir að kveikt var í íbúðinni - myndband

Lárus Pálmi Magnússon, eigandi veitingastaðarins Krua Thai sem staðsettur er í næsta húsi við Tryggvagötu 10 sem brann í dag segir að brennuvargurinn sé eiginmaður starfsstúlku á staðnum. Konan var búsett í húsinu ásamt fleirum og höfðu hjónin átt í erjum undanfarið.

Reyndi að nauðga vinkonu dóttur sinnar - fékk 15 mánaða fangelsi

Karlmaður var í gær dæmdur í 15 mánaða fangelsi fyrir tilraun til þess að nauðga vinkonu dóttur sinnar á heimili fjölskyldunnar. Sambýliskona mannsins varð vitni að tilrauninni, réðist að honum og lamdi í hausinn með bók. Hún hringdi síðan á lögreglu sem kom á staðinn. Maðurinn var margsaga í skýrslutöku hjá lögreglu en sagði í þeirri síðustu að hann hefði ekkert munað eftir atvikinu þar sem hann hefði verið mjög drukkinn.

Handtekinn grunaður um íkveikju á Tryggvagötu

Einn maður hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa kveikt í húsinu á Tryggvagötu 10 sem skemmdist mikið í eldi fyrr í dag. Að sögn lögreglu var hann handtekinn í nágrenninu og er rökstuddur grunur um að hann hafi komið að málum. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag er talið að málið tengist fjölskylduerjum en ein fjölskylda bjó í húsinu sem var mannlaust þegar eldurinn kom upp.

Henti jólatréi í bíl nágrannans

Ekki eru allir jafn duglegir að koma jólatrjám í hendur sorphirðumanna en víða á höfuðborgarsvæðinu hefur verið hægt að setja trén út við lóðarmörk. Þangað eru sótt af starfsmönnum sveitarfélaganna og mælist þjónustuna vel fyrir.

Grunur um íkveikju á Tryggvagötu

Fjölskylda býr í húsinu við Tryggvagötu sem kviknaði í um hádegisbilið. Lögreglan hefur staðfest við fréttamann Stöðvar 2 sem er á staðnum að sterkur grunur sé um að kveikt hafi verið í húsinu. Talið er að málið tengist að einhverju leyti erjum hjá fjölskyldunni sem býr í húsinu.

Eldurinn slökktur á Tryggvagötu

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í húsi við Tryggvagötu 10 rétt eftir klukkan eitt. Sjónarvottar segja að um mikinn eld hafi að ræða og Kjartan Skaptason sem leigir aðstöðu í húsinu segist halda að kveikt hafi verið í. Mikill reykur kom út um glugga og dyr hússins og voru þrír slökkviliðsbílar á svæðinu.Eftir að slökkviliðið hóf slökkvistörf gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins.

Embættismenn funduðu með Robert Wade

Robert Wade, stjórnmálahagfræðingur við London School of Economics fundaði í morgun með fulltrúum frá fjármála-, forsætis- og viðskiptráðuneytinu. Fundurinn stóð yfir í nærri tvær klukkustundir.

Mega banna mótmælendum að hylja andlit sitt

Nokkuð hefur borið á því að mótmælendur sem hafa haft sig hvað mest í frammi undanfarnar vikur og mánuði hylji andlit sitt með treflum og lambhúshettum. Hér á landi geta skapast þær aðstæður að lögreglu sé heimilt að krefjast þess að grímurnar séu teknar niður. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að grímurnar hafi ekki valdið lögreglu vandræðum hingað til. Hann segir mikilvægast að laga það ástand sem uppi hefur verið í stað þess að magna það.

Funda um framtíð Birnu

Björgvin G. Sigðurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra funda með Vali Valssyni, formanni bankaráðs Glitnis nú í hádeginu, en ákveðið hefur verið að stöður bankastjóra ríkisbankanna verða auglýstar lausar til umsóknar á næstu dögum.

Venus skín skært um þessar mundir

Margir hafa rekið augun í stjörnu á kvöldhimninum í suðri sem hefur skinið afar skært undanfarið. Á störnufræðivefnum segir að um reikistjörnuna Venus sé að ræða en í dag kemst Venus lengst frá sólinni frá jörðu séð sem þýðir að hún nær hæstu stöðu á himninum áður en hún fer lækkandi á ný.

Menn reyndu hvorki að temja sér hófsemi né fyrirhyggju

Margt bendir til þess að rótleysi og lítil áhersla á grunngildi hafi dregið menn út á hálan ís í íslensku viðskiptalífi að undanförnu. Fátt bendir til dæmis til þess að menn hafi, að minnsta kosti í ákveðnum fyrirtækjum, reynt að temja sér hófsemi eða fyrirhyggju í

Suðurlandsskjálftinn: 733 milljónir í styrki

Íslenska ríkið mun greiða út 733 milljónir króna í styrki vegna jarðskjálftans á Suðurlandi þann 29. maí í fyrra. Stærsti hluti þess, eða 402 milljónir, fara til einstaklinga sem urðu fyrir tjóni en tryggingar ná ekki til. Þá fara 200 milljónir króna til sveitarfélaga á svæðinu vegna fyrstu viðbragða við skjálftanum.

Ísland gerir ráð fyrir fleiri sjó- og mengunarslysum í norðurhöfum

Ísland hefur tekið við formennskunni í Norrænu ráðherraráðinu og leggur til þar að komið verði á fót gagnabanka um siglingarleiðir í norðurhöfum. Íslenskir ráðmenn gera ráð fyrir að fleiri sjó- og mengunarslys verði á þessum slóðum í kjölfar þess að heimskautsísinn hopar stöðugt og fleiri leiðir opnast fyrir skipasiglingar.

Hnífakastarinn ákærður

Búið er að gefa út ákæru á hendur þriggja barna föður sem grunaður er um að hafa beitt þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi.

Hátt í 30 nýnemar í Lögregluskólanum

Tuttugu og níu nýnemar hófu í gær nám á fyrstu önn grunnnámsdeildar Lögregluskóla ríkisins. Námið á önninni tekur um fjóra mánuði og í september 2009 fara nemendurnir í fjögurra mánaða starfsþjálfun í lögreglunni, eftir því sem fram kemur á vef

Eldur í Sjálfsbjargarhúsinu í nótt

Einn var fluttur á slysadeild vegna gruns um reykeitrun eftir að eldur kviknaði út frá lampa í herbergi í Sjálfsbjargarhúsinu við Hátún í Reykjavík í nótt.

Átján ökumenn ljóslausir

Lögreglan á Selfossi stöðvaði átján ökumenn í gærkvöldi þar sem ljósabúnaður á bílum þeirra var ekki í lagi. Þeir voru skrifaðir upp og gefinn frestur til lagfæringa, en ekki sektaðir að svo stöddu.

Ölvaðir ökumenn gerðu víðreist í nótt

Ölvaður ökumaður ók út af Eyjafjarðarbraut við Akureyri í gækvöldi og hafnaði ofan í skurði. Hann slapp ómeiddur en ökumaður sem kom þar að taldi hinn óheppna ekki með fullri rænu og hringdi á lögreglu.

Veikur sjómaður sóttur á þyrlu

Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku fiskiskipi þegar það var statt 50 sjómílur norður af Horni síðdegis í gær. Skipstjórinn óskaði eftir aðstoð og sendi Landhelgisgæslan þyrlu eftir manninum.

Óviðunandi ógn við ráðherra

Lögreglumenn á vettvangi tóku ekki eftir því þegar mótmælandi við Alþingishúsið veittist að forsætisráðherra eftir að hafa stjakað við lögreglumanni. Forseti Alþingis segir tilburðina vera algerlega óviðunandi.

Vilja bæta fyrir skemmdir á tækjabúnaði Stöðvar 2

Hópur mótmælenda býðst til að safna fé vegna skemmda sem urðu á tækjabúnaði Stöðvar 2 við Hótel Borg þegar Kryddsíldin fór þar fram á gamlársdag. Fólkið óskar eftir upplýsingum um skemmdirnar frá óháðum aðila. Jafnframt furðar hópurinn á sig því að Ari Edwald, forstjóri 365, telji sig hafa vald til að geta sagt lögreglu til hvernig hún eigi að haga störfum sínum. Undir bréfið skrifa Agnar Kr. Þorsteinsson, Björg Sigurðardóttir og Gunnar Gunnarsson.

Minnir þingmenn Samfylkingarinnar á stefnu flokksins

Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, minnir flokksfélaga sína á þingi á stefnu flokksins og sérstaklega á þann hluta hennar sem fjallar um lýðræðismál. Hún segir flokksfélaga um land uggandi vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar. Hlusti kjörnir fulltrúar ekki á raddir fólksins fá þeir umboð sitt ekki endurnýjað.

Alda innbrota á höfuðborgarsvæðinu

Alda innbrota gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið og er talið að um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða í sumum tilfellum. Versnandi efnahagur er hugsanlega hluti af vandanum, segir yfirlögregluþjónn.

Fjórir sendiherrabústaðir til sölu

Utanríkisráðuneytið undirbýr nú sölu á fjórum sendiherrabústöðum. Um er að ræða bústaðina í New York, Washington, London og Osló. Gert er ráð fyrir að ríkissjóður geti hagnast um 500 til 1000 milljónir króna á sölu fasteignanna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Óvíst með framvindu Héðinsfjarðarganga

Óvissa ríkir um framvindu Héðinsfjarðarganga, þar sem kostnaður við framkvæmdina hefur stóraukist. Tékkneski verktakinn Metrostav á í vandræðum með að klára verkið.

Bankastjórastöður ríkisbankanna auglýstar

Stöður bankastjóra ríkisbankanna verða auglýstar lausar til umsóknar á næstu dögum. Þetta var ákveðið í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar funduðu Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni M. Matthiesen fjármálaráðherra með formönnum bankaráða Landsbanka, Glitnis og Kaupþings í dag. Á fundinum mun hafa verið farið yfir starfsmannamál bankanna og ráðherrarnir tilkynnt formönnum bankaráðanna að það væri vilji ríkisvaldsins, sem eiganda bankanna, að stöður bankastjóranna yrðu auglýstar lausar til umsóknar.

Vilja að Guðlaugur endurskoði ákvörun um St. Jósefsspítala

Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar heilsugæslustöðvanna í Hafnarfirði og Garðabæ lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðum breytingum vegna ákvörðunar Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra, um stórfelldar breytingar á starfsemi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Starfsfólkið vill að Guðlaugur endurskoði ákvörðun sína.

Lúðvík og Guðlaugur funduðu um St. Jósefsspítala

Heilbrigðisráðherra og bæjarstjórinn í Hafnarfirði funduðu um Sánkti Jósefsspítala í dag og eru sammála um að skoða verði alla heilbrigðisþjónustuna í bænum í samhengi. Bæjarstjórinn segir spítalann mikilvægan í almennri heilbrigðisþjónustu í bænum.

Örvæntingar gætir meðal umbjóðanda Vinnumálastofnunar

Nýtt yfirlit Vinnumálastofnunar um stöðuna á vinnumarkaði sýnir að tæplega átta þúsund manns - eða 4,8 prósent - voru skráðir atvinnulausir í desember síðast liðnum og hafði fólki án atvinnu fjölgað um 45 prósent frá því í mánuðinum á undan. Annir eru gríðarlegar á vinnumiðlun Vinnumálastofnunar.

Mótmælendur lausir úr haldi lögreglu

Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru lausir úr haldi lögreglu. Þetta staðfesti varðstjóri í samtali við fréttastofu.

Ingibjörg ráðlagði Sigurbjörgu fyrir borgarafundinn

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, ráðlagði Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, stjórnsýslufræðingi, sem hélt framsögu á borgarafundinum í Háskólabíói í gær að nálgast ræðu sína á fundinum af varfærni og gæta þess að ganga ekki á faglegan heiður sinn.

Sótti um stöðu saksóknara vegna bankahrunsins eftir hvatningu

Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á Akranesi, sem Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, skipaði í dag til að gegna embætti sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins gerði það eftir hvatningu. Hann vill ekki greina frá því hvort að Björn hafi hvatt hann til að sækja um stöðuna. Dómsmálaráðherra hafði samráð við fulltrúa allra þingflokka í allsherjarnefnd Alþingis þegar hann skipaði Ólaf í starfið. Nýja starfið leggst afar vel í Ólaf.

Fundar um fjárstyrki og hjálparstarf vegna jarðskjálftanna

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, mun á morgun greina frá fjárstyrkjum og hjálparstarfi til þeirra sem urðu fyrir tjóni vegna jarðskjálfanna á Suðurlandi 29. maí sem ekki fæst bætt með öðrum hætti. Geir mun greina frá þessu á fundi með blaðamönnum á Selfossi í fyrramálið.

Sjá næstu 50 fréttir