Mega banna mótmælendum að hylja andlit sitt Breki Logason skrifar 14. janúar 2009 12:36 Stefán Eíríksson fyrir miðju ásamt Jóni HB Snorrasyni og Herði Jóhannessyni. MYND/VILHELM
Nokkuð hefur borið á því að mótmælendur sem hafa haft sig hvað mest í frammi undanfarnar vikur og mánuði hylji andlit sitt með treflum og lambhúshettum. Hér á landi geta skapast þær aðstæður að lögreglu sé heimilt að krefjast þess að grímurnar séu teknar niður. Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að grímurnar hafi ekki valdið lögreglu vandræðum hingað til. Hann segir mikilvægast að laga það ástand sem uppi hefur verið í stað þess að magna það. „Það eru ákveðnar forsendur í lagaákvæðinu sem þurfa að vera fyrir hendi til þess að við getum beitt því," segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Í lögreglulögum númer 90 frá 1996 segir: „Ef uggvænt þykir að óspektir verði á mótmælafundi, í kröfugöngu eða á annarri slíkri samkomu á opinberum stað er lögreglu heimilt að banna að maður breyti andliti sínu eða hylji það eða hluta þess með grímu, hettu, málningu eða öðru þess háttar sem er til þess fallið að koma í veg fyrir að kennsl verði borin á hann." „Ef þessar aðstæður skapast og ef þetta leysir þann vanda sem við okkur blasir útilokum við ekki að beita þessu," segir Stefán. Hann segir grímurnar ekki hafa valdið lögreglu vandræðum hingað til. „Við búum nú bara í þannig landi að nú er allt á kafi í snjó og fólk er með húfur og trefla sem hylja andlitið. Við höfum ekki lent í vandræðum með þetta hingað til." Hann segir bæði lögreglu og fjölmiðla vera í erfiðri stöðu gagnvart mótmælendum en lögregla vinni nú að því að laga ástandið í stað þess að magna það upp með einhverjum hætti.
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira