Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skíðasvæðið á Siglufirði opið - gott færi Skíðasvæðið á Siglufirði verður opið í dag frá kl 16-20 við frábærar aðstæður. Í tilkynningu frá skíðasvæðinu segir að verður og færi séu eins og best verði á kosið, S-gola, -6c° og heiðskírt. 13.1.2009 15:02
Stakk hníf í gegnum hendi manns Tuttugu og sjö ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir fyrir að hafa stungið mann með eldhúshnífi í hægri hönd þannig að hnífurinn fór í gegnum höndina. Sauma þurfti saman skurðinn sem hlaust af hnífnum. Ákæra gegn manninum var gefin út 22 desember en málið var þingfest í héraðsdómi í gær. Maðurinn neitaði sök við þingfestingu málsins. 13.1.2009 14:46
Býður sig fram gegn Geir Haarde Listamaðurinn Snorri Ásmundsson er búinn að taka ákvörðun um að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins á landsfundi í lok mánaðarins. Snorri segist ekki vera neitt sérstakur pólitíkus en telur sig geta tekið til hendinni. Hann finnur fyrir gríðarlegum stuðningi innan flokksins og segist hafa talað við stjórnmálafræðinga sem styðji við bakið á sér. 13.1.2009 14:31
Mennirnir enn í haldi lögreglu Mennirnir tveir sem handteknir voru við Alþingi í morgun eftir að þeir brutu öryggismyndavél við húsið eru enn í haldi lögreglunnar. Búist er við því að teknar verði skýrslur af mönnunum síðar í dag og þeim síðan sleppt, eins og venja er í málum af þessu tagi. 13.1.2009 13:23
Níu stöðvaðir án ökuréttinda Níu réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Að sögn lögreglu höfðu fimm þeirra þegar verið sviptir ökuleyfi og fjórir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Á sama tímabili voru fimmtíu umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en þrjú þeirra má rekja til aksturs undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. 13.1.2009 13:23
Miklar hættur í kringum okkur Það eru miklar hættur á ferðinni í nálægum löndum eins og við sjáum á viðbrögðum ríkisstjórna um allan heim, sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir ríkisstjórnarfund i dag. 13.1.2009 12:34
Þingvallavegur lokaður í dag Þingvallavegi númer 36 var lokað klukkan níu í morgun og verður svo fram til klukkan fimm í dag, þar sem verið er að skipta um ræsi í veginum. Vegagerðin bendir vegfarendum á að aka Suðurlandsveg og Biskupstungnabraut að Þingvöllum á meðan. 13.1.2009 12:15
Vill tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá „Atvinnuleysi er því miður að aukast en okkar verkefni er að tryggja að sem fæstir lendi á atvinnuleysisskrá og þeir séu þar sem styst," sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. 13.1.2009 12:07
Atvinnuleysi jókst um 45 prósent á milli mánaða Skráð atvinnuleysi var tæp fimm prósent í desember og jókst það um 45 prósent að meðaltali frá mánuðinum á undan. Búist er við að atvinnuleysi aukist verulega nú í janúar. 13.1.2009 12:01
Segist ekki hafa hótað ræðumanni á borgarafundi Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræðingur, sem hélt framsögu á borgarafundinum í Háskólabíói í gær, sagði í ræðu sinni að ónefndur ráðherra hefði hringt í sig fyrir fundinn og hvatt sig til þess að gæta orða sinna á fundinum vegna starfsheiðurs síns og framamöguleika. 13.1.2009 11:23
Ók á barn og stakk af Ekið var á barn í Suðurhólum í Breiðholti laust upp úr klukkkan átta í morgun þegar það var á leið í skólann. Þetta gerðist á móts við Hólabrekkuskóla, og ók ökumaður af vettvangi án þess að gæta að líðan barnsins. Það slasaðist lítið en var flutt á Slysadeild til skoðunar og aðhlynningar. 13.1.2009 10:41
Atvinnulaus vann 19 milljónir í lottóinu um helgina Allir þrír vinningshafarnir í lottóútdrættinum á laugardaginn eru búnir að hafa samband við Íslenska getspá. Tveir þeirra keyptu miðana sína á lotto.is og einn keypti miðann í N1 við Háholt í Mosfellsbæ. 13.1.2009 10:34
Reiknar með að ráða sérstakan saksóknara í dag Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra sagðist vongóður um að ráðið yrði í starf sérstaks saksóknara Í bítinu á Bylgjunni í morgun. Framlengdur umsóknarfrestur rann út í gær en einn aðili sótti um starfið. 13.1.2009 10:07
Sjálfstæðiskonur fordæma árásir Ísraela Landssamband sjálfstæðiskvenna samþykkti í gærkvöldi ályktun á stjórnarfundi þar sem framferði Ísraelsmanna á Gaza er fordæmt. 13.1.2009 09:52
Tveir handteknir við Alþingishúsið - myndband Hópur mótmælenda tók sér stöðu fyrir framan inngang Alþingishússins og reyndu þau að varna ráðherrum inngöngu í húsið í morgun. Um þrjátíu manns tóku þátt í aðgerðinni og gerðu þau tilraun til þess að varna því að að Geir H. Haarde forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kæmust inn. Lögreglumenn aðstoðuðu ráðherrana að lokum við að komast inn í húsið en ríkisstjórnarfundur hófst þar klukkan hálftíu. 13.1.2009 09:27
Kolmunnaveiðar í stað loðnu Sex stór fjölveiðiskip, sem í venjulegu árferði væru byrjuð loðnuveiðar, hafa gefið þær veiðar upp á bátinn í bili að minnsta kosti, og eru farin til kolmunnaveiða suður af Færeyjum. 13.1.2009 07:16
Lögregla leitar enn manns vegna ránstilraunar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn að ungum manni, sem gerði tilraun til vopnaðs ráns í matvöruverslun í austurborginni í gærdag. 13.1.2009 07:12
Ingibjörg fékk hlýjar móttökur í Stokkhólmi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, fékk hlýjar móttökur þegar hún og eigingmaður hennar, Hjörleifur Sveinbjörnsson, komu til Stokkkhólms á laugardaginn þar sem Ingibjörg gengst undir geislameðferð á Karólínska sjúkrahúsinu. Um er að ræða lokahnykk á meðferð Ingibjargar. 12.1.2009 19:45
Óljóst hvort leyfilegt verður að greiða út séreignarsparnað Niðurstöðu er að vænta um hvort leyft verði að greiða fólki út séreignarlífeyrisparnað sinn. Skiptar skoðanir eru um málið, en fjármálaráðherra vill ekki tjá sig um það. 12.1.2009 19:15
Seðlabankinn reistur við úr tæknilegu gjaldþroti Seðlabanki Íslands mun afskrifa 75 milljarða af kröfum fjármálafyrirtækja. Verið er að reisa Seðlabankann við úr því tæknilega gjaldþroti sem hann kom sér í og reikningurinn er sendur til skattgreiðenda, segir hagfræðingur. 12.1.2009 18:30
Útilokar ekki uppsagnir Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, útilokar ekki að starfsfólki heilbrigðisstofnanna verði sagt upp störfum í tengslum við fyrirhugaðar skipulagsbreytingar á heilbrigðiskerfinu. ,,Ég get ekkert fullyrt um það yfir línuna," sagði Guðlaugur aðspurður í Kastljósi í kvöld hvort hann gæti fyllyrt að engum verði sagt upp vegna aðgerðanna. Hann sagði að kerfið sé í stöðugri þróun. 12.1.2009 20:08
Innganga Íslands í ESB hefði ekki áhrif í Noregi Talsmaður norska Miðflokksins í utanríkismálum hefur ekki trú á því að það hefði mikil áhrif í Noregi, ef Ísland yrði meðlimur í Evrópusambandinu. Þriggja manna sendinefnd flokksins fundaði með forsætisráðherra í dag um stöðuna í íslenskum stjórnmálum. 12.1.2009 19:30
Minni og færri jólatré prýddu heimili landsmanna Færri og minni jólatré prýddu heimili landsmanna um jólin ef marka má trén sem borgarstarfsmenn hafa hirt upp síðustu daga. Borgarstarfsmenn hafa síðustu daga haft í nógu við að safna saman jólatrjám sem borgarbúar sem borgarbúar hafa losað sig við eftir jólin. 12.1.2009 19:05
Öngþveiti í Gilinu á Aukureyri Umferðaröngþveiti varð í Gilinu á Akureyri í morgun þegar snjómokstur olli eignatjóni og ýmisskonar vanda. Verkstjóri hjá bænum telur að loka hefði átt Gilinu á meðan snjómoksturinn fór fram. 12.1.2009 18:46
Sunnudagsútgáfu Fréttablaðsins hætt Ákveðið hefur verið að fækka útgáfudögum Fréttablaðsins og hættir blaðið að koma út á sunnudögum frá og með næstu helgi. Þess í stað verður helgarútgáfa blaðsins efld til muna, að sögn Jóns Kaldals ritstjóra Fréttablaðsins. Engar uppsagnir eru fyrirhugaðar vegna breytinganna. 12.1.2009 17:30
Fimm bíla árekstur á Miklubraut Fimm bíla árekstur varð á Miklubraut á fimmta tímanum. Áreksturinn varð rétt við frárein í Stakkahlíð en bifreiðarnar voru á leið vestur Miklubraut. Talsverðar umferðatafir eru á svæðinu í kring. Lögreglubifreið og sjúkrabifreið er á staðnum. 12.1.2009 17:12
Bein launalækkun hjá 14% landsmanna vegna bankahrunsins Fjórtán prósent þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í beinni launalækkun frá bankahruninu í byrjun október og starfshlutfall hefur verið lækkað hjá 7% aðspurðra. 12.1.2009 15:59
Heimskaffihúsafundur hjá verkfræði- og náttúruvísindasviði Heimskaffihúsafundir verða haldnir á vegum Verkfræði- og náttúruvísindasviðs á Háskólatorgi næstu mánuði til að ræða brýn málefni fyrir íslenskt þjóðfélag. 12.1.2009 15:47
Viðbrögð íslenskra stjórnvalda við ástandinu á Gaza Viðbrögð íslenskra stjórnvalda við ástandinu á Gaza hafa verið gagnrýnd nokkuð undanfarið og söfnuðust nokkrir mótmælendur saman fyrir utan stjórnarráðið í morgun og létu í sér heyra. 12.1.2009 15:28
Heimilt að skerða bætur um 50% eftir umferðarslys Verði tryggingafélagi var heimilt að skerða bætur ökumanns sem lenti í alvarlegu umferðarslysi 7. október 2006. 12.1.2009 15:14
Rafræn ferðaheimild til Bandaríkjanna tekur gildi í dag Frá og með deginum í dag þurfa þeir sem hyggja á ferðalag til Bandaríkjanna að sækja um rafræna ferðaheimild, svokallaða ESTA. Hún mun koma í stað eyðublaðsins sem hingað til hefur verið afhent um borð í flugvélum á leið til Bandaríkjanna. 12.1.2009 15:11
Umboðsmaður snuprar fjármálaráðuneytið Umboðsmaður Alþingis snuprar fjármálaráðuneytið fyrir að hafa ekki svarað fyrirspurn frá framkvæmdastjóra fyrirtækis þar sem óskað var eftir því að ráðuneytið svaraði fyrri áskorun þess um lækkun á álagningu eldsneytis á hópbifreiðar. 12.1.2009 14:35
Ungir Sjálfstæðismenn ánægðir með Guðlaug Þór Samband ungra sjálfstæðismanna fagnar þeim breytingum sem Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur lagt til á sviði heilbrigðismála. Með tillögunum er gerð tilraun til þess að ná fram varanlegum umbótum á rekstri heilbrigðisstofnana á Íslandi í því skyni að auka skilvirkni og hagræði. 12.1.2009 14:06
Þrír vilja á formannsstól í VR Framboðsfrestur til formanns, stjórnar og trúnaðarráðs VR rann út á hádegi í dag og fundar kjörstjórn félagsins þessa stundina til að fara yfir framboðin. Þrír hafa gefið kost á sér til formanns, en það eru þeir Gunnar Páll Pálsson, núverandi formaður félagsins, Lúðvík Lúðvíksson og Kristinn Örn Jóhannesson. 12.1.2009 14:01
Mikið magn af olíu lak á götuna Talið er að um 50 til 100 lítrar af olíu hafi lekið úr strætisvagni í nótt og í morgun þar sem hann var staðsettur á lóð Strætó við Helstháls. Slökkviliðið var kvatt á staðinn um hálfníuleytið í morgun og hófst þegar handa við að hreinsa upp olíuna ásamt mönnum frá Hreinsitækni. Hreinsunarstarfið gekk vel að sögn slökkviliðsins og tók um klukkustund. 12.1.2009 13:40
Robert Wade á Borgarafundinum í kvöld Borgarafundur verður haldinn í Háskólabíó í kvöld klukkan 20:00 í áttunda sinn. Öllum formönnum stjórnmálaflokkanna og Viðskiptaráði Íslands hefur verið boðin þátttaka í pallborðsumræðum. Efni fundarins er íslenskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunnar og spurt er hvað hafi farið úrskeiðis og fjallað verður um hriplekt lagaumhverfi og veikar eftirlitsstofnanir. Þetta kemur fram í frétt frá aðstandendum fundarins. 12.1.2009 13:33
Aðgerðir til að sporna við atvinnuleysi í vinnslu Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað starfshóp um vinnumarkaðsaðgerðir með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaganna, fjármálaráðuneytisins og félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Hlutverk starfshópsins er að móta tillögur um aðgerðir til að sporna gegn atvinnuleysi. 12.1.2009 12:29
Bjarni segir ekki ákveðið að hann taki við af Birni Bjarni Benediktsson alþingismaður segir það ekki hafa verið ákveðið að hann taki við embætti dómsmálaráðherra, eins og Fréttablaðið fullyrti um helgina. Hann segir ekkert hafa verið ákveðið um framtíðar ráðherraskipan. 12.1.2009 12:22
Norðmenn reyna að tala um fyrir Íslendingum Fjögurra manna nefnd frá norska Miðflokknum og flokki Jafnaðarmanna kom hingað til lands um helgina í þeim tilgangi að reyna að tala um fyrir Íslendingum og leiða þá í sanninn um að Evrópusambandsaðild muni ekki verða Íslandi hagstæð. 12.1.2009 12:22
Þingvallavegur lokaður á morgun Á morgun verður Þingvallavegur nr. 36 lokaður vegna ræsagerðar frá klukkan 9 - 17. Vegfarendum er bent á Suðurlandsveg og Biskupstungnabraut að Þingvöllum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni sem bendir einnig á að ekki sé ráðlegt faraNesjavallaleiðina af því að sá vegur er ekki í þjónustu. 12.1.2009 10:54
Íslensk kona í Palestínu óttast ísraelska hermenn og lögreglu Íslensk kona sem býr í Jerúsalem, í um þriggja tíma akstursleið frá Gaza, segist varla hafa komist út úr húsi eftir að átökin á Gaza hófust í desember. Konan sem býr þar ásamt palenstínskum eiginmanni og tveimur dætrum sínum hefur dvalið í Pakistan frá því í ágúst síðastliðnum. Vegabréfsáritun hennar er útrunnin og þess vegna óttast hún afskipti lögreglu og hermanna. 12.1.2009 10:31
Mótmæli við stjórnarráðið - myndband Hópur fólks kom saman fyrir framan stjórnarráðið í morgun til þess að mótmæla framferði Ísraelsmanna á Gaza. Um fimmtíu manns taka þátt í mótmælunum og hefur rauðri málningu verið kastað á veggi hússins og flugeldar hafa verið sprengdir á tröppunum. 12.1.2009 08:49
Aflaverðmæti í fyrra meira en nokkru sinni Aflaverðmæti íslenska fiskiskipaflotans var meira í fyrra en nokkru sinni fyrr og fór aflaverðmæti um það bil 20 skipa yfir einn milljarð króna. 12.1.2009 07:15
Harma hvernig staðið var að breytingum á St. Jósefs Félag sérfræðinga í meltingarsjúkdómum harmar hvernig var staðið að þeim breytingum, sem stjórnvöld kynntu nýverið á rekstri St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. 12.1.2009 07:13
Vel á öðru hundraðinu í hálku Lögreglan á Selfossi stöðvaði í gærkvöldi tvo ökumenn vegna hraðaksturs á Biskupstungnabraut. Annar mældist á 116 kílómetra hraða en hinn á 130, þrátt fyrir að hálka væri á veginum. 12.1.2009 07:11